Átti Arsenal að fá annað víti?
Arsenal menn voru mjög ósáttir með vítið sem þeir höfðu fengið á sig en fannst eflaust réttlætinu fullnægt þegar þeir fengu síðan vítaspyrnu sjálfir. Eberechi Eze var þá felldur í teignum af David Hancko og dómarinn dæmdi vítaspyrnu en dróg það til baka eftir að hafa skoðað atvikið aftur á myndbandi.