Glæpahópur nýtti íslenska innviði
Íslensk löggæsluyfirvöld tóku þátt í alþjóðlegri lögregluaðgerð gegn netþjónustu sem glæpahópar notuðu til peningaþvættis. Hóparnir leigðu netþjóna af íslenskum hýsingarfyrirtækjum og þannig voru íslenskir innviðir misnotaðir í starfseminni. Ekkert tjón varð þó á Íslandi og enginn var handtekinn hér á landi. Europol segir að tveir meintir höfuðpaurar hafi verið handteknir í Georgíu og rúmlega þrjátíu netþjónar teknir niður.