Þroskahjálp 50 ára: Að geta gert ráð fyrir góðu lífi Guðmundur Ármann Pétursson skrifar 2. nóvember 2026 22:00 Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga formenn samtakanna fyrr og nú niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar. Þetta er fimmta greinin í ritröðinni. Flest okkar hugsa öðru hverju um hvernig við viljum hafa lífið. Hvar okkur langar að búa, hvað við viljum fást við og með hverjum við viljum verja tímanum. Við gerum áætlanir, skiptum um skoðun og reynum aftur ef eitthvað gengur ekki upp. Í þessu felst frelsi sem okkur hættir stundum til að taka sem sjálfsögðum hlut. Á fimmtíu ára afmæli Þroskahjálpar hef ég hugsað um þetta frelsi. Um það að geta horft fram á veginn með eftirvæntingu og treyst því að eiga val. Að fá að kynnast sjálfum sér, láta reyna á hugmyndir sínar og finna sína leið í lífinu. Þannig vil ég að framtíðin blasi við fólki með þroskahömlun og skyldar fatlanir. Í afmælisboði okkar fann ég sterkt fyrir því hversu mikils virði samstaða er. Þar var gleði, hlýja og stolt yfir starfi sem svo margir hafa lagt alúð í. Mér varð hugsað til fólksins sem hóf þessa vegferð og alls þess sem hefur þurft til að koma okkur hingað. Við eigum því fólki mikið að þakka. Arfur þess felst meðal annars í því að við getum nú leyft okkur að horfa lengra og setja markið hærra. Mig langar að við gefum óskum fólks meira rými. Hlustum af áhuga þegar einhver segir frá því sem hann vill læra, starfinu sem hann langar að vinna eða draumnum um eigið heimili. Sýnum áhuga á því sem gæti orðið og verum tilbúin að finna leiðir saman. Stundum geta fyrstu viðbrögðin ráðið miklu. Það er munur á því að mæta strax efasemdum eða að heyra: „Hvernig getum við hjálpað þér?“ Fólk sem þarf mikla aðstoð í daglegu lífi á sér líka óskir, áhugamál og framtíðardrauma. Okkar verkefni er að tryggja að stuðningurinn hjálpi því að fylgja þeim eftir. Mér finnst eitt mikilvægasta verkefni næstu ára vera að skapa samfélag þar sem fatlað fólk getur treyst því að óskir þess séu teknar alvarlega og að það fái raunveruleg tækifæri til að láta á þær reyna. Til þess að það geti orðið að veruleika þurfa réttindi að skila sér alla leið inn í daglegt líf. Lögum þarf að fylgja, ábyrgð þarf að vera skýr og stuðningur að vera til staðar þegar hans er þörf. Ég vona að með tímanum verði jafnræði svo ríkur þáttur í samfélagi okkar að ekki þurfi sérstök lög til að tryggja fötluðu fólki sama rétt og öðrum. Á leiðinni þangað þurfum við að standa vel vörð um áunnin réttindi. Við þurfum að vanda ákvarðanir dagsins í dag svo frelsi og tækifæri morgundagsins verði raunveruleg. Þar vil ég sjá Þroskahjálp halda áfram að vera vettvang samtals, hugmynda og breytinga, með fólk með þroskahömlun sjálft í fararbroddi. Við höfum margt að læra hvert af öðru og margt gott getur orðið til þegar reynsla, þekking og nýjar hugmyndir fá að mætast. Eftir fimmtíu ára starf megum við vera stolt og þakklát. Ég finn líka til eftirvæntingar. Mig langar að sjá fleiri fá svigrúm til að uppgötva hvað þau vilja, velja sér leið og breyta um stefnu. Fá að lifa lífinu með öllum þeim möguleikum sem því fylgja. Og ég hlakka til þess dags þegar ungt fatlað fólk horfir fram á veginn og hugsar fyrst og fremst: „Hvað langar mig að gera við líf mitt?“ Í þeirri spurningu býr falleg framtíð. Höfundur er formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Málefni fatlaðs fólks Mest lesið Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun Hvert í fjandanum erum við eiginlega komin sem samfélag? Steindór Þórarinsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Hagræðing fyrir hvern? Stefán Pettersson Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson Skoðun Hvað verður um störfin okkar? Auður Alfa Ólafsdóttir Skoðun Allir með Willum Þór Þórsson,Jóhann Steinar Ingimundarson,Þórður Á. Hjaltested Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Traust byggist á vönduðum vinnubrögðum Ragnar Þór Reynisson,Valdimar Víðisson Skoðun Skoðun Skoðun Tvöfalt álag – frjósemi á vinnusta Sigríður Auðunsdóttir skrifar Skoðun Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Að geta gert ráð fyrir góðu lífi Guðmundur Ármann Pétursson skrifar Skoðun Íslensk bókhaldsgögn eiga heima innan Evrópu Jóhann Tómas Sigurðsson skrifar Skoðun Enginn á að standa einn – sérstaklega ekki fyrir jólin Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Stillum ekki íþróttum og menningu upp sem andstæðum pólum Gunnar M. Gunnarsson skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn? Hópur fulltrúa í Ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða skrifar Skoðun Allir með Willum Þór Þórsson,Jóhann Steinar Ingimundarson,Þórður Á. Hjaltested skrifar Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Börn með fjölþættan vanda – hver hugsar um framtíð þeirra? Þórdís Hulda Tómasdóttir skrifar Skoðun Hvað verður um störfin okkar? Auður Alfa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn minnkar kökuna Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Traust byggist á vönduðum vinnubrögðum Ragnar Þór Reynisson,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Hagræðing fyrir hvern? Stefán Pettersson skrifar Skoðun Hvert í fjandanum erum við eiginlega komin sem samfélag? Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Hvað viltu verða þegar þú verður stór? Jónína Lovísa Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Vafasama Viðreisn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir skrifar Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson skrifar Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? Kristný Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Sjá meira
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun
Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa skrifar
Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun
Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun