Skoðun

Bláskóga­skatturinn minnkar kökuna

Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar

Ríkisstjórnin ætlar að sækja sex til sjö milljarða króna á ári með nýju gjaldi vegna heimsókna á Þingvelli, við Gullfoss og Geysi. Allir þrír staðirnir eru í Bláskógabyggð sem þýðir að heimsóknir í eitt sveitarfélag eiga að fjármagna verkefni um land allt. Það er fráleitt að leggja slíka byrði á sunnlenskt atvinnulíf.

Í umræðunni undanfarið hefur ítrekað verið haldið fram að ferðamenn muni greiða gjaldið, ekki íbúarnir. Fyrir heimafólk sem hefur afkomu sína af viðskiptum við þessa sömu gesti er það lítil huggun. Dýrari Íslandsferð getur þýtt styttri dvöl eða færri viðkomustaði sem mun óhjákvæmilega leiða til minni viðskipta. Það mun þá koma niður á fyrirtækjum og starfsfólki þeirra, þótt gjaldið verði einungis innheimt af erlendum gestum.

Á Laugarvatni fundu menn fyrir þessum áhrifum þegar Fontana lokaði tímabundið vegna framkvæmda. Þá drógust umsvif líka saman í gistingu, veitingasölu og verslun í nágrenninu. Eitt fyrirtæki getur haft mikil áhrif á rekstrargrundvöll annarra. Það ætti ríkisstjórnin að hafa í huga áður en hún gerir heimsóknir hingað dýrari.

Ekki verið að afnema undanþágur heldur hækka skatta

Við þetta bætast áform um að hækka virðisaukaskatt á baðlón úr 11% í 24%. Samkvæmt Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga tengjast baðlónum og tengdum rekstri á Suðurlandi yfir 35 milljarða króna fjárfesting og rúmlega 400 heilsársstörf. Fyrir fjölskyldu sem rekur gistihús getur aðdráttarafl baðlónsins í nágrenninu ráðið miklu um hvort hægt sé að hafa fólk í vinnu yfir veturinn og þannig hefur ferðaþjónustan gert fleirum kleift að byggja sér framtíð í sinni heimabyggð.

Sveitarfélög hafa einnig lagt fé í uppbygginguna, meðal annars með veituframkvæmdum. Þau hafa tekið á sig skuldbindingar í trausti þess að atvinnustarfsemin dafni. Ríkið verður að taka tillit til þeirra hagsmuna þegar það breytir forsendum rekstrarins.

Ársþing SASS hefur nú krafist þess að fallið verði frá sérstöku gjaldtökunni á þessum þremur stöðum. Sú krafa er fullkomlega eðlileg og ríkisstjórnin getur ekki afgreitt áhyggjur sveitarfélaganna með því einu að benda á hver fær greiðslukröfuna.

Auðvitað þarf að verja náttúruna og bæta innviði. Góðir vegir og traust vetrarþjónusta eru forsenda heilsársferðaþjónustu. En frumvarpsdrögin um náttúru- og innviðagjald tryggja ekki eyrnamerkingu teknanna til þeirra þriggja staða sem gjaldtakan tekur til. Almenn fyrirheit um uppbyggingu réttlæta ekki að eitt sveitarfélag sé sérstaklega tekið fyrir.

Ferðaþjónustan skapar miklar tekjur fyrir þjóðarbúið

Stjórnvöld þurfa að sýna hvernig tekjur sem þegar eru innheimtar af ferðaþjónustunni nýtast og forgangsraða þeim til nauðsynlegra framkvæmda. Þau eiga jafnframt að meta samanlögð áhrif nýrra álaga með sveitarfélögum og atvinnurekendum áður en ákvarðanir eru teknar. Fyrirtæki sem hafa selt ferðir og ýmsa þjónustu langt fram í tímann geta ekki breytt samningum sínum jafnóðum og ríkisstjórnin breytir um stefnu.

Ferðaþjónustan skapar tekjur fyrir þjóðarbúið allt. Það er því sameiginlegt hagsmunamál landsmanna að fyrirtækin geti haldið áfram að fjárfesta og ráða fólk. Ríkisstjórnin verður að líta lengra en til tekjuáætlunar af hverju nýju gjaldi og horfa líka á áhrifin á viðskiptin sem skatttekjurnar byggjast á.

Ég þekki af eigin reynslu hvað felst í að byggja upp fyrirtæki og bera ábyrgð á störfum annarra. Fólk þarf að geta treyst rekstrarskilyrðunum þegar það leggur eigið fé og vinnu í uppbyggingu. Það á líka við um næstu fjárfestingu sem skapar ný störf og auknar tekjur fyrir samfélagið. Við Sjálfstæðismenn munum beita okkur á Alþingi fyrir því að ríkisstjórnin falli frá Bláskógaskattinum og skattahækkunum á baðlón. Það hefur sjaldan verið jafn brýnt og nú að ríkisstjórnin hvetji atvinnulífið til dáða í stað þessa að fella það í dróma.

Höfundur er formaður Sjálfstæðisflokksins.




Skoðun

Sjá meira


×