Skoðun

Ráð­herrann sem skiptir litlu máli

Arnar Sigurðsson skrifar

Ímyndum okkur skurðlækni sem segir sjúklingi sínum að skoðun hans á því hvar eigi að skera skipti litlu máli. Eða prest sem segir söfnuðinum að trú hans skipti í raun litlu. Við myndum treysta hvorugum. Samt þótti ekkert tiltökumál þegar Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra sagði í vikunni, spurður um áform ÁTVR um heimsendingu áfengis, að hans skoðanir skiptu í þessu máli litlu.

Þýski félagsfræðingurinn Max Weber gerði fyrir rúmri öld greinarmun á embættismanni og stjórnmálamanni. Sómi embættismannsins felst í að framfylgja fyrirmælum af trúmennsku, jafnvel þótt hann sé þeim ósammála. Sómi stjórnmálamannsins felst í hinu gagnstæða: að taka afstöðu og bera á henni persónulega ábyrgð. Weber taldi að stjórnmálamaður sem hagaði sér eins og embættismaður brygðist hlutverki sínu. Ráðherra sem segir eigin skoðanir skipta litlu er að lýsa sjálfum sér sem embættismanni. En hann er ekki embættismaður. Hann er sá sem gefur fyrirmælin og á að hafa til þess dómgreind.

Málið er nefnilega ekki á annarra forræði. ÁTVR heyrir undir fjármála- og efnahagsráðuneytið og ákvörðun um framtíð stofnunarinnar er á borði ráðherrans sjálfs. Flokkur hans, Viðreisn, hefur talað fyrir því að einokunarverslun ríkisins með áfengi verði afnumin. Ráðherrann fer því með málaflokk þar sem flokkur hans hefur skýra stefnu og hann sjálfur hefur valdið. Það er erfitt að hugsa sér aðstæður þar sem skoðun ráðherra skiptir meira máli.

Ráðherrann vísar til þess að skiptar skoðanir séu innan ríkisstjórnarinnar. Það kann að vera. En formaður Samfylkingarinnar hefur lýst stuðningi við einkareknar verslanir, og þá stendur eftir Flokkur fólksins. Á að skilja ráðherrann svo að minnsti flokkurinn í stjórnarsamstarfinu hafi neitunarvald um stefnu Viðreisnar í málaflokki sem heyrir undir ráðherra Viðreisnar?

Ráðherrann sagði líka að mestu skipti að starfað væri innan ramma laganna. Það er góð regla. Í vor var forsvarsmaður Smáríkisins sakfelldur í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að selja hvítvín í netverslun af lager hér á landi og afhenda það með sendli. Nú undirbýr stofnun undir ráðuneyti hans að selja vín á netinu af lager hér á landi og afhenda það með sendli. Lögin um verslun með áfengi og tóbak gera ráð fyrir verslunum með leyfi sveitarstjórnar, sama verði um allt land og aldursstaðfestingu á staðnum. Heimsending er hvergi nefnd. Einkaaðilar mega gera allt sem ekki er bannað, en ríkisstofnun þarf lagaheimild fyrir því sem hún gerir.

Forstjóri ÁTVR segir engar athugasemdir hafa borist frá ráðuneytinu. Ráðherrann sem vill starfa innan ramma laganna virðist ekki hafa spurt hvar sá rammi liggur. Samflokksráðherra hans í dómsmálaráðuneytinu hefur raunar sagt að lögregla eigi að bregðast við refsiverðri háttsemi, og að engu eigi að skipta hvort hún sé stór í sniðum eða lítil. Á það líka við þegar seljandinn er ríkið?

Þegar Daði Már var spurður hvort þá þyrfti ekki bara að breyta lögunum svaraði hann að það gæti vel verið. Það er rétt. Og sá sem helst getur lagt fram slíkt frumvarp er fjármála- og efnahagsráðherra.

Sami ráðherra hefur innleitt orðið skattstyrk í opinbera umræðu, um það þegar ríkið innheimtir minna en það gæti og að hans gjaldskrárhækkanir séu verðbólguvaldandi en ekki hvetjandi. Hann hefur hins vegar ekki fundið orð yfir það þegar hagnaður af heildsölu tóbaks er notaður til að niðurgreiða smásölu ríkisins á áfengi í samkeppni við einkaaðila. Kannski hefur hann enga skoðun á því. Eða hún skiptir litlu. ,,Ríkið” ætlar sér að bjóða tveggja daga heimsendingu á hærra verð en einkaaðilar en þá bregður svo við að ráðherrann hefur loks skoðun, nánar tiltekið að það sé ,,eðlilegt að þjónusta vínbúðanna þróist í takt við samfélagið”

„Í pistli í Morgunblaðinu skrifaði ráðherrann svo að ríkisstjórnin vikist ekki undan verkefninu og að viðsnúningur í rekstri ríkisins krefðist „festu, ábyrgðar og erfiðra ákvarðana“. Það er vel mælt. En ef það að leggja niður einokunarverslun á 21. öldinni er ekki bara erfið ákvörðun heldur svo erfið að skoðanir ráðherrans skipta litlu, hvar eru þá auðveldu ákvarðanirnar?“

Edmund Burke sagði kjósendum sínum í Bristol árið 1774 að kjörinn fulltrúi skuldaði þeim dómgreind sína, og að hann brygðist þeim ef hann fórnaði henni fyrir skoðanir annarra. Kjósendur Viðreisnar kusu flokk með skýra stefnu í þessu máli. Þeir eiga rétt á að vita hvort ráðherrann deilir henni.

Ef skoðanir ráðherrans skipta litlu, hverra skoðanir ráða þá?

Höfundur er annar eigenda Sante.




Skoðun

Skoðun

Brjóstaskimun enn mikil­væg?

Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar

Sjá meira


×