Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Áróra L Davíðsdóttir skrifar 2. nóvember 2026 16:14 Elías Pétursson bróðir Lúðvíks heitins Péturssonar (t.v) sem lést í vinnuslysi í Grindavík árið 2024. Vísir/Bjarni Bróðir Lúðvíks Péturssonar, sem lést þegar hann féll niður um jarðfall í Grindavík árið 2024, segir ákvörðunina um að hætta að leita að líkamsleifum Lúðvíks vonbrigði og að hún kalli á svör. Hann hafi sjálfur lagt til lausnir en þær hafi ekki verið teknar til greina. Hann, fyrir hönd fjölskyldunnar, muni beina erindi að nýju til bæjarstjórnar Grindavíkur.
Elías Pétursson, bróðir Lúðvíks Péturssonar, tjáir sig um ákvörðun lögreglu að hætta alfarið formlegri leit að líkamsleifum Lúðvíks í Facebook-færslu. Á þriðjudaginn síðastliðinn var ráðist í leitaraðgerð undir stjórn lögreglustjórans á Suðurnesjum í von um að finna líkamsleifar Lúðvíks. Í tilkynningu frá lögreglu var greint frá því að aðgerðin hafi falið í sér að leitarmenn sigu ofan í sprungu og framkvæmdu skoðun. Við leitina hefðu engar vísbendingar fundist. Sjá einnig: Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Samkvæmt frétt Ríkisútvarpsins frá degi aðgerðanna hafi fyrsti sigmaður farið ofan í sprunguna um hádegisbil. Elías hafi fengið símtal frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum klukkan 15:44 og honum tjáð að leitinni yrði alfarið hætt. Í tilkynningu frá lögreglu sagði að leit hefði staðið yfir í sjö og hálfa klukkustund. „Vonbrigði mín, og okkar, eru mikil og ég ætla ekki að reyna að lýsa þeim frekar. Ég veit að þeir sem misst hafa ástvini af slysförum eða í hamförum, og ekki fengið að kveðja þá, skilja hvað ég á við,“ skrifar Elías. Í ágúst 2025 hafi Elías, fyrir hönd fjölskyldunnar, sent erindi til bæjarstjórnar Grindavíkur þar sem farið var fram á að bærinn hefði forgöngu um að Lúðvík yrði grafinn upp. Svarið hafi verið að málið væri ekki á forræði Grindavíkurbæjar. „Þarna er grundvallarmunur“ Í febrúar hafi fjölskyldunni verið tjáð að lögreglustjóri ákveddi hvort að ráðist yrði í leit og fenginn yrði óháður aðili til að meta öryggisaðstæður. Verkfærðistofan COWI hafi unnið mat og gert grein fyrir því í minnisblaði, dagsett 20. apríl. Engar vísbendingar um líkamsleifar Lúðvíks fundust við leit á þriðjudaginn síðastliðinn og var því formlegri leit lögreglu hætt. einar/vísir Í lok minnisblaðsins sé tekið fram að ef engar vísbendingar finnist með myndavél þurfi að meta hvaða skref yrðu næst tekin. Aðeins eftir leitina hafi fjölskyldunni verið tjáð að aðgerðin væri afmörkuð við sjónskoðun og myndavélar og að frekari aðgerðir hefðu aðeins komið til greina hefðu vísbendingar fundist með sjónskoðun. Sjá einnig: Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík „Okkur hafði ekki verið gerð grein fyrir þeirri afmörkun. Þarna er grundvallarmunur. COWI segir að finnist ekkert þurfi að meta framhaldið. Okkur var sagt eftir á að framhald hefði aðeins komið til greina ef eitthvað fyndist. Hvenær var það ákveðið, á hvaða forsendum og hvers vegna var okkur ekki sagt frá því áður en farið var af stað? Ég hef óskað eftir gögnum og skýringum en hvorki gögn né svör hafa borist,“ skrifar hann. Hljóti að hafa legið fyrir Fjölskyldunni þyki líklegast að líkamsleifar Lúðvíks „liggi í hraunhaugum, undir þjöppunni,“ á þrettán til sextán metra dýpi og ef svo sé telji hann engar líkur á að sjónskoðun fyndu hann. Hann trú ekki öðru en að það hafi legið fyrir þegar var farið af stað í aðgerðir. Elías telur þó aðra leið standa til boða. Hann hafi lengi lagt til að grafið verði niður í sprunguna frá hlið, annað hvort ofan eða neðan við slysstað. Þessa leið hafi hann kynnt þáverandi Lögreglustjóra í október 2024 og lýst efasemdum um þá nálgun sem lögð hafi verið til. Leiðin sem hann lagði til hafi þó aldrei verið metin og hafi verið talin ótímabær. „Með þeirri leið þarf enginn að síga ofan í sprungu. Þetta er jarðvinnuverkefni sem krefst góðs skipulags og varfærni, eins og önnur slík verk. Ömurlegt verk, en jarðvinna engu að síður.“ Frá fyrsta degi hafi fjölskyldan sagt að þurfi að fara farlega við aðgerðir og að enginn eigi að legja líf sitt í hættu við að sækja Lúðvík. „Það höfum við aldrei beðið um og munum aldrei biðja um.“ Beinir erindinu að nýju Á næstu dögum hyggist Elías beina erindinu að nýju til bæjarstjórnar Grindavíkur. Þar verði farið fram á að Grindavíkurbær hafi forgöngu um að Lúðvík verði grafinn upp og að ekki verði ráðist í niðurrif hússins eða fyllingu sprungunnar fyrr en það hefur verið reynt til þrautar. „Eitt er þó ljóst. Við gefumst ekki upp. Við munum halda áfram svo lengi sem stætt er… og mögulega eitthvað lengur.“ „En Lúlli valdi sér ekki þennan stað“ Hann segir Lúðvík ekki hafa valið sér þennan stað og að börn hans eigi rétt á að fá að kveðja og fylgja honum til grafar. „Sumir segja við okkur að best sé að leyfa Lúlla að hvíla þar sem hann er. Ég skil þá hugsun. En Lúlli valdi sér ekki þennan stað. Hann var að vinna. Börnin hans eiga rétt á að fá að kveðja föður sinn og fylgja honum til grafar. Það er sú lúkning sem við biðjum um, í einum hluta þessa ömurlega máls. Sjá einnig: „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Einhverjir hafa líkt þessu við það þegar maður fellur útbyrðis og týnist á sjó. Sorgin er hvorki meiri né minni eftir því hvar ástvinur deyr. En aðstæður til endurheimtar eru ólíkar. Við vitum hvar Lúlli féll og hvar hann að öllum líkindum liggur. Þetta er því ekki spurning um að finna hann… heldur um að sækja hann,“ Hann og fjölskyldan séu þeim sem sinntu vinnu á vettvangi og sigu í sprunguna ævinlega þakklát.
Grindavík Féll í sprungu í Grindavík Eldgos á Reykjanesskaga Lögreglumál Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent Fleiri fréttir Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Sjá meira