„Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 2. nóvember 2026 15:11 Íris Helga Jónatansdóttir gefur skýrslu fyrir dómi í dag. Vísir Íris Helga Jónatansdóttir, sem er gefið að sök að hafa beitt umfangsmiklu umsáturseinelti, segist ekkert hafa haft með það að gera að saur var makað á hurðarhún heimilis brotaþola.
Aðalmeðferðin hófst klukkan níu í morgun og stendur til að taka skýrslu yfir Írisi Helgu í allan dag. Fyrir hádegi var tekinn fyrir fyrsti kafli ákærunnar af fjórum. Sá hluti snýr að meintum brotum Írisar gagnvart einum manninum, sambýliskonu hans og fjölskyldu hennar. Annar maður er ákærður fyrir hlutdeild í umsáturseineltinu. Í ákærunni er Írisi Helgu gefið að sök að hafa fengið manninn til þess að fara að heimili eins brotaþolans og sambýliskonu hans og maka saur á hurðarhún heimilisins. Rúmum mánuði síðar átti hann að hafa makað saur á hurðarhún bíls fólksins. Aðspurð sagðist Íris Helga ekki hafa haft neitt með það að gera. Hún og maðurinn hefðu verið að vinna saman en hefðu þekkst frá barnsaldri og því verið góðir vinir. Hún lýsti honum sem einum besta vini sínum. Þá sagðist Íris ekkert hafa vitað um að hann ætlaði sér að gera það heldur hefðu þau einungis verið að ræða málið í gríni. Skilaboðin sem lesin voru upp fyrir dómi fjölluðu meðal annars um að „taka skít og nudda á allt“, hvernig Íris væri heima með fjarvistarsönnuna þar sem hún væri heima og hversu klígugjarnir brotaþolar væru svo þeir gætu ekki hugsað sér að þrífa saurinn. „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst,“ stóð í skilaboðum frá Írisi. „Þetta er samtal á milli tveggja vina um mann sem er búinn að valda þvílíkri vanlíðan hjá mér og fjölskyldunni,“ sagði hún fyrir dómi. Til stóð að sýna myndskeið sem maðurinn á að hafa sent Írisi eftir að hann makaði saurnum. Hún sagðist einungis hafa séð hluta myndbandanna í skýrslutöku lögreglu en ekki opnað þau. Verjandi mannsins lagðist hins vegar harðlega gegn því að myndskeiðin yrðu sýnd og því varð ekki af því. Verjandi mannsins bókaði sérstaklega og lagði til að ákæran á hendur honum yrði felld niður vegna óskýrleika í ákærunni. Hann væri ákærður fyrir hlutdeild að brotum sem væru ekki dagsett. Ósátt með rannsókn lögreglunnar Vert er að taka fram að í allri skýrslutökunni hefur Íris Helga tekið fram ósætti hennar og manns, sem hún er sökuð um að hafa beitt umsáturseinelti. Hún sakaði hann meðal annars um að hafa hagað sér á óviðeigandi hátt gagnvart dóttur hennar, þar á meðal gefið henni gjafir og átt í samskiptum. Vegna þessa hefði hún sent á hann tvenn skilaboð. Fyrst hefði hún skrifað „Aldrei, aldrei, aldrei tala við mig aftur ógeðið þitt!“ og í seinni skilaboðunum sagði hún að maðurinn myndi aldrei heyra frá henni aftur og hún myndi slást í hóp kvenna sem saka hann um kynferðisofbeldi. „Ég vildi losna við hann, ég vildi ekki hafa hann í lífinu okkar,“ sagði Íris Helga. Dóttir hennar hefði verið mjög hrædd við manninn og málið hefði haft gríðarleg áhrif á fjölskylduna. „Þetta er búið að valda öllum mikilli vanlíðan.“ Þá væri hún einnig ósátt við meðferð lögreglu á málinu og hefði verið þvinguð til þess að segja alls kyns hluti. Bróðir sambýliskonu mannsins hefði einnig setið mikið fyrir henni og fjölskyldan öll. Bróðirinn hefði mætt heim til hennar með lambhúshettu og hótað öllu illu en lögreglan hefði lítið sem ekkert gert þrátt fyrir kærur. Íris og sambýliskonan hefðu verið vinkonur áður en móðir mannsins aldrei viljað neitt með Írisi hafa. Hún nefndi einnig að hún hefði hurðað bíl fyrir slysni fyrir nokkrum vikum og verið hent í fangaklefa vegna þessa. Allir komist í tölvuna Töluvert af ákæruliðunum í þessum hluta varðar tölvunotkun en í málsgögnunum liggur fyrir að hún hafi öll farið fram í tölvu í eigu Írisar. Hún kannaðist ekki við tölvunotkunina og gat ekki útskýrt. Hún gat ekki heldur útskýrt netföng sem búin voru til í hennar tölvu og báru nafn barns mannsins og sambýliskonunnar. Hún hefði ekki einu sinni vitað hvað barnið heitir. „Mér sýnist ýmislegt hafa verið gert í tölvunni en nei, ég get ekkert tjáð mig um það,“ sagði hún aðspurð um eitt brotið. Íris Helga sagði að tölvan hefði verið tölva fjölskyldunnar og fjöldi fólks hefði getað komist inn í hana. Einnig voru nokkrar tilkynningar til barnaverndar um vanhæfi mannsins og sambýliskonunnar meðal gagnanna sem farið var yfir. Þá kannaðist Íris ekki við að hafa birt nafnlausa færslu á Mæðratips á Facebook þar sem þau voru sögð hafa skilið ungbarn eftir úti í bíl. Málið endaði á borði lögreglunnar sem staðfesti að ekkert væri til í ásökununum. Neitar að hafa átt við fjölskylduna Fjölskylda sambýliskonunnar kærði Írisi Helgu einnig og er hluti af málsókninni. Í ákærunni er henni gefið að sök að hafa hótað og setið um foreldra hennar. Hún neitaði allri sök hvað það varðar og sagðist ekki hafa átt í neinum samskiptum við þau, heldur væri því öfugt farið. Faðir sambýliskonunnar hefði verið afar dónalegur við dóttur Írisar Helgu og sakað hana um einn ákæruliðinn. Í honum segir að Íris hafi hellt sírópi yfir póstkassa og bréfalúgu á heimili sambýliskonunnar. Þá hefðu þau flutt í húsnæði mjög nálægt húsinu hennar og ítrekað haft afskipti af henni. Með þessu lauk yfirferð á fyrstu tveimur köflum ákærunnar en gert er ráð fyrir því að skýrslutakan muni taka allan daginn.
Dómsmál Mál Írisar Helgu Jónatansdóttur Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Fleiri fréttir Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Sjá meira