Innlent

Hefja leit að Lúð­vík í fyrra­málið

Árni Sæberg skrifar
Leitað að Lúðvík í kjölfar þess að hann hvarf við störf í Hópshverfi 10. janúar 2024.
Leitað að Lúðvík í kjölfar þess að hann hvarf við störf í Hópshverfi 10. janúar 2024. Vísir

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum verður á morgun með aðgerð sem miðar að leit að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar sem féll niður um jarðfall í Grindavík í janúar 2024.

Í fréttatilkynningu þess efnis frá lögreglunni segir að viðbragðsaðilar og og sérfræðingar verði við vinnu í dag til að huga að öryggi og setja upp vinnusvæði vegna leitarinnar, sem stefnt sé á að fara í um klukkan 09:00 á morgun við Vesturhóp 29 í Grindavík.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hafi  virkjað vettvangsstjórn vegna þessa, sem sé að störfum í Grindavík.

Leitaraðgerð þessi sé gerð í kjölfar áhættumatsvinnu sem lögreglustjóri beri ábyrgð á og unnið sé eftir.


Tengdar fréttir

Stefna á að hefja leit í nóvember

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir að í næsta mánuði verði mögulega hægt að hefja leit að jarðneskum leifum manns sem féll ofan í sprungu í Grindavík árið 2024. Nú sé unnið að mótvægisaðgerðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×