Körfubolti

Bræður bættu stigamet pabba þeirra

Andri Broddason skrifar
Bræðurnir Sigurður og Hilmar Péturssynir áttu stórleik gegn hvor öðrum en Sigurður hafði betur að lokum.
Bræðurnir Sigurður og Hilmar Péturssynir áttu stórleik gegn hvor öðrum en Sigurður hafði betur að lokum. Samsett/Guðmundur/Vísir

Sigurður Pétursson, leikmaður Álftanes í körfubolta, átti stórleik þegar liðið tók á móti Keflavík í þriðju umferð Bónus-deildar karla í körfubolta. Það hefur gefið honum auka kraft að spila gegn bróður sínum Hilmari Péturssyni sem spilar fyrir Keflavík.

„Siggi er frábær leikmaður. Hann var í tilvistarkreppu í fyrra þessi elsku drengur en ég ætla að vara Álftnesinga við því að hann er ekki að fara að skora þrjátíu stig eða meira að meðaltali í leik. En ég er ánægður með að Siggi P hafi verið að ganga í augun á tengdapabba sínum þannig að hann verður aðalmaðurinn í næsta matarboði,“ sagði Jón Halldór Eðvaldsson um frábæra frammistöðu Sigurðar.

Klippa: Körfuboltakvöld: Bættu stigamet föður síns

Sigurður skoraði 36 stig í leiknum og var með 72 prósent skotnýtingu sem er frábær frammistaða. Sérfræðingar Sýnar Sport áttu auðvelt með að samgleðjast Sigurði en bróðir hans Hilmar átti líka góðan leik fyrir Keflavík.

Hann skoraði 32 stig fyrir Keflavík og var stigahæstur í því liði. Þeir bræðurnir skoruðu því 68 stig samtals í leiknum. Fyrra met áttu bræðurnir Pétur Ingvarsson og Jón Arnar Ingvarsson en þeir skoruðu samtals 61 stig árið 1992.

Það vill svo skemmtilega til að Pétur Ingvarsson er faðir Hilmars og Sigurðar og því er þetta met náið fjölskyldunni. Sérfræðingarnir þökkuðu því Ingvari, afa Sigurðar og Hilmars, fyrir bæði þessi met.

Umræðuna má sjá í heild sinni í spilaranum að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×