Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar 23. október 2026 07:31 Ákvörðun um að fella niður vaxtabætur frá árinu 2027 verður að skoða í samhengi við stöðu skuldsettra heimila. Í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir að vaxtabætur verði afnumdar frá næstu áramótum. Á sama tíma eru stýrivextir 8% og vaxtakostnaður hefur um langt skeið þrengt verulega að ráðstöfunartekjum fjölskyldna með húsnæðislán. Þetta samhengi skiptir öllu máli. Vaxtabætur eru opinber fjárhagsstuðningur til fólks sem greiðir vexti af íbúðalánum vegna eigin húsnæðis. Markmiðið þeirra er að létta undir með húsnæðiskostnaði, einkum hjá fólki með lægri tekjur. Vaxtabætur eru vissulega ekki einn stærsti útgjaldaliður ríkissjóðs. En fyrir heimili sem ber mikinn húsnæðiskostnað getur brotthvarf þeirra skipt verulegu máli. Og áhrifin koma ekki ein og sér. Þau leggjast ofan á önnur gjöld, breytingar á bótum, verðtryggingu lána og þann vaxtakostnað sem heimilin bera nú þegar. Tökum dæmi af hjónum með tvö börn og 45 milljóna króna húsnæðislán. Í útreikningum Framsóknar á utreikningur.is geta áhrif þess að vaxtabætur falli niður numið um 60–70 þúsund krónum á ári. Það er ekki upphæð sem flest heimili geta einfaldlega afskrifað sem smávægilega breytingu. Hún jafngildir mörgum innkaupaferðum, kostnaði við tómstundir barna eða verulegum hluta af mánaðarlegum rekstri fjölskyldunnar. Þegar fjárlagafrumvarið er skoðað, þá eigum við ekki eingöngu að skoða hvern fjárlagalið fyrir sig heldur samanlögð áhrif ákvarðana ríkisins á heimilisbókhaldið. Afnám vaxtabóta kann að virðast hófleg sparnaðaraðgerð þegar hún er skoðuð ein og sér. Fyrir fjölskylduna kemur hún hins vegar inn í sama heimilisbókhald og hærri gjöld, húsnæðislán og önnur útgjöld. Tímasetningin skiptir máli Það má auðvitað hafa ólíkar skoðanir á því hvernig stuðningur við húsnæðiskostnað eigi að vera uppbyggður til framtíðar. Kerfi vaxtabóta er ekki hafið yfir gagnrýni og eðlilegt er að endurskoða það reglulega. En endurskoðun kerfis og afnám stuðnings eru ekki sami hluturinn. Og tímasetningin skiptir miklu. Þegar vextir eru lágir, verðbólga við markmið og kaupmáttur vex er eitt svigrúm til að breyta húsnæðisstuðningi. Þegar stýrivextir eru 8%, vaxtabyrði heimilanna mikil og efnahagsumsvif að veikjast er staðan allt önnur. Þá verður að spyrja hvort skynsamlegt sé að draga úr stuðningi við skuldsett heimili einmitt þegar vaxtakostnaðurinn bítur hvað fastast? Ríkissjóður þarf vissulega að sýna aðhald. En aðhald þarf að vera skynsamlega samsett. Það má ekki eingöngu felast í því að færa reikninginn frá ríkissjóði yfir á heimili sem þegar glíma við háan húsnæðiskostnað. Það er öfugsnúið að draga úr stuðningi við skuldsett heimili á sama tíma og vextirnir bíta þau hvað fastast. Höfundur er fyrsti varaborgarfulltrúi Framsóknar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Magnea Gná Jóhannsdóttir Framsóknarflokkurinn Fjármál heimilisins Húsnæðismál Mest lesið Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Sjá meira
Ákvörðun um að fella niður vaxtabætur frá árinu 2027 verður að skoða í samhengi við stöðu skuldsettra heimila. Í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir að vaxtabætur verði afnumdar frá næstu áramótum. Á sama tíma eru stýrivextir 8% og vaxtakostnaður hefur um langt skeið þrengt verulega að ráðstöfunartekjum fjölskyldna með húsnæðislán. Þetta samhengi skiptir öllu máli. Vaxtabætur eru opinber fjárhagsstuðningur til fólks sem greiðir vexti af íbúðalánum vegna eigin húsnæðis. Markmiðið þeirra er að létta undir með húsnæðiskostnaði, einkum hjá fólki með lægri tekjur. Vaxtabætur eru vissulega ekki einn stærsti útgjaldaliður ríkissjóðs. En fyrir heimili sem ber mikinn húsnæðiskostnað getur brotthvarf þeirra skipt verulegu máli. Og áhrifin koma ekki ein og sér. Þau leggjast ofan á önnur gjöld, breytingar á bótum, verðtryggingu lána og þann vaxtakostnað sem heimilin bera nú þegar. Tökum dæmi af hjónum með tvö börn og 45 milljóna króna húsnæðislán. Í útreikningum Framsóknar á utreikningur.is geta áhrif þess að vaxtabætur falli niður numið um 60–70 þúsund krónum á ári. Það er ekki upphæð sem flest heimili geta einfaldlega afskrifað sem smávægilega breytingu. Hún jafngildir mörgum innkaupaferðum, kostnaði við tómstundir barna eða verulegum hluta af mánaðarlegum rekstri fjölskyldunnar. Þegar fjárlagafrumvarið er skoðað, þá eigum við ekki eingöngu að skoða hvern fjárlagalið fyrir sig heldur samanlögð áhrif ákvarðana ríkisins á heimilisbókhaldið. Afnám vaxtabóta kann að virðast hófleg sparnaðaraðgerð þegar hún er skoðuð ein og sér. Fyrir fjölskylduna kemur hún hins vegar inn í sama heimilisbókhald og hærri gjöld, húsnæðislán og önnur útgjöld. Tímasetningin skiptir máli Það má auðvitað hafa ólíkar skoðanir á því hvernig stuðningur við húsnæðiskostnað eigi að vera uppbyggður til framtíðar. Kerfi vaxtabóta er ekki hafið yfir gagnrýni og eðlilegt er að endurskoða það reglulega. En endurskoðun kerfis og afnám stuðnings eru ekki sami hluturinn. Og tímasetningin skiptir miklu. Þegar vextir eru lágir, verðbólga við markmið og kaupmáttur vex er eitt svigrúm til að breyta húsnæðisstuðningi. Þegar stýrivextir eru 8%, vaxtabyrði heimilanna mikil og efnahagsumsvif að veikjast er staðan allt önnur. Þá verður að spyrja hvort skynsamlegt sé að draga úr stuðningi við skuldsett heimili einmitt þegar vaxtakostnaðurinn bítur hvað fastast? Ríkissjóður þarf vissulega að sýna aðhald. En aðhald þarf að vera skynsamlega samsett. Það má ekki eingöngu felast í því að færa reikninginn frá ríkissjóði yfir á heimili sem þegar glíma við háan húsnæðiskostnað. Það er öfugsnúið að draga úr stuðningi við skuldsett heimili á sama tíma og vextirnir bíta þau hvað fastast. Höfundur er fyrsti varaborgarfulltrúi Framsóknar.
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun