Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar 22. október 2026 07:32 Hreyfihamlaðar konur eiga sama rétt og aðrar konur til krabbameinsskimunar. Aðgengi, öryggi og virðing verða að vera sjálfsagður hluti heilbrigðisþjónustunnar. Þegar boð um leghálsskimun berst ætti sjálfsagt að vera að geta bókað tíma og mætt í skoðun. Fyrir konur sem nota hjólastól getur það hins vegar verið hægara sagt en gert. Þær þurfa jafnvel að velta því fyrir sér hvort þær komist upp á skoðunarbekkinn, hvort rýmið sé nægilega stórt, hvort hægt sé að fá nauðsynlega aðstoð og hvort þær geti treyst því að aðstæður séu öruggar. Nýlega gafst mér kostur á að skoða aðgengi að legskimunaraðstöðu á heilsugæslustöð á höfuðborgarsvæðinu. Aðstaðan reyndist ekki nægilega góð til að tryggja konum sem nota hjólastól viðeigandi þjónustu. Þar vantaði skoðunarbekk sem konur gætu komist upp á sjálfar eða með aðstoð, skoðunarrýmið var mjög þröngt og skiptiaðstaða fyrir konur sem nýta hjólastól ekki til staðar, salerni var fjarri skoðunarrýminu. Þetta eru ekki smávægileg atriði. Þau geta ráðið úrslitum um hvort kona geti yfirhöfuð nýtt sér þjónustuna. „Ég hef forðast þessar skimanir“ Til að fá betri innsýn í reynslu kvenna sendi ég fyrirspurn til sjö kvenna á aldrinum 25–60 ára sem allar nota hjólastól. Fimm þeirra svöruðu. Tvær búa á landsbyggðinni og þrjár á höfuðborgarsvæðinu. Þetta var lítil, óformleg könnun en svörin gáfu mikilvæga mynd af hindrunum sem konur geta mætt. Ein kona sagði að hún hefði ekki farið í leghálsskimun á heilsugæslu vegna þess að hún þyrfti lyftibúnað til að komast úr hjólastólnum á skoðunarbekkinn. Þegar hún hefði spurt um slíkan búnað hefði svarið verið að hann væri ekki til staðar. Hún hefði því þurft að leita til kvennadeildar Landspítalans. Önnur kona lýsti því að hún hefði forðast skimun vegna slæmra frásagna annarra fatlaðra kvenna. Hún vildi vita fyrir fram hvernig aðstaðan væri, hvernig skoðunarbekkurinn liti út og hvað færi fram í skoðuninni. Hún vildi ekki mæta í óvissu og komast svo að því að hún gæti ekki nýtt sér þjónustuna. Enn önnur kona hafði mætt í skimun og verið send heim án þess að skoðunin færi fram, að stórum hluta vegna þess að hún komst ekki upp á skoðunarbekkinn. Þessar frásagnir sýna hvernig aðgengisleysi getur haft raunverulegar afleiðingar. Kona getur þurft að leita annað, fresta skoðun eða hætta við að mæta. Slík reynsla getur einnig aukið óöryggi og dregið úr trausti á heilbrigðisþjónustunni. Aðgengi er meira en lyfta og rampur Það er mikilvægt að skilja að hreyfihamlaðar konur hafa ólíkar þarfir. Sumar þurfa lyftibúnað til að komast örugglega á skoðunarbekk. Aðrar geta fært sig sjálfar ef bekkurinn er nægilega lágur, hjólastóllinn kemst nálægt honum og nægt rými er til að athafna sig. Konurnar nefndu meðal annars eftirfarandi úrbætur: Aðlögunarhæfa skoðunarbekki sem hægt er að lækka nægilega mikið. Lyftibúnað/persónulyftara þar sem þörf er á, með skýrum upplýsingum um hvar hann er til staðar. Rúmgóð skoðunarherbergi þar sem hægt er að snúa hjólastólnum og staðsetja hann rétt við bekkinn. Aðgengilega skiptiaðstöðu og salerni í næsta nágrenni. Starfsfólk sem þekkir mismunandi þarfir fólks með hreyfihömlun og kann að veita aðstoð af virðingu. Eitt atriði fannst mér sérstaklega mikilvægt í svörunum: konur þurfa að hafa stjórn á eigin aðstæðum. Þær þurfa að geta treyst því að starfsfólk hlusti á þær og virði óskir þeirra um aðstoð, þar á meðal frá eigin aðstoðarfólki þegar það á við. Viðkvæm skoðun getur valdið kvíða hjá mörgum konum. Fyrir konur sem hafa reynslu af ofbeldi eða þurfa að reiða sig á aðra við flutning og persónulega aðstoð getur það skipt enn meira máli að vita hvað mun gerast, fá útskýringar fyrir fram og finna að mörk þeirra og óskir séu virt. Það á aldrei að þurfa að fórna sjálfræði sínu eða reisn til að fá nauðsynlega heilbrigðisþjónustu. Fögnum úrbótum en flýtum framkvæmdinni Nú þegar er undirbúningur hafinn hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu að því að gera heilsugæslustöð á höfuðborgarsvæðinu aðgengilega fyrir leghálsskimanir hreyfihamlaðra kvenna. Það er jákvætt og Sjálfsbjörg landssamband hreyfihamlaðra fagnar því framtaki og hvetur til þess að framkvæmdinni verði hraðað. Jafnframt þarf að setja fram áætlun um hvernig aðgengi verður tryggt á fleiri stöðvum, bæði á höfuðborgarsvæðinu og úti á landi. Konur eiga að fá skýrar upplýsingar um aðgengi áður en þær bóka tíma. Þær eiga ekki að þurfa að leggja á sig ferðalag til að komast svo að því að skoðunin sé þeim ekki möguleg. Sjálfsbjörg lsh. skorar á heilbrigðisráðherra, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Krabbameinsfélag Íslands að vinna saman að þessum úrbótum og tryggja hreyfihömluðum konum aðgengi, öryggi og virðingu við leghálsskimanir. Engin kona á að þurfa að snúa heim úr krabbameinsskimun óskoðuð vegna þess að aðstaðan er ekki fyrir hana. Aðgengi er forsenda forvarna og öryggi, sjálfræði og reisn eiga að fylgja hverri einustu konu inn í skoðunarherbergið. Höfundur er formaður Sjálfsbjargar lsh. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þuríður Harpa Sigurðardóttir Málefni fatlaðs fólks Krabbamein Mest lesið Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson Skoðun Skoðun Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar