Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar 22. október 2026 12:33 Í hlaðvarpsþætti Gímaldsins 8. október sl. sagði framkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar aðspurð þegar rætt var um hvað væri fjölmiðill og hvað ekki m.a.: „[E]f að við myndum fara að skoða efnistök fjölmiðla og fara að segja þið megið vera skráð og eða þið ekki, þið fáið styrki eða eitthvað slíkt að því að við erum líka með styrki fyrir fréttamiðla ekki fjölmiðla. Þarna kemur þessi skýri greinarmunur í ljós. En það að vera skráður sem fjölmiðill þar má ríkið eða stjórnvöld ekki taka einhverja svona afstöðu og segja þið megið vera skráð af því að þið eruð með þessi efnistök. Það er ritskoðun. Það er bara skilgreiningin á ritskoðun.“ Orð framkvæmdastjórans eru afdráttarlaus og verða vart skilin á annan veg en þann að ef fjölmiðlanefnd horfir til þess hver efnistök viðkomandi starfsemi eru við mat sitt á því hvort um fjölmiðil sé að ræða þá felist í því ritskoðun af hálfu nefndarinnar. Orð framkvæmdastjórans eru sérstaklega athyglisverð vegna herferðar stjórnvaldsins gegn hlaðvörpum sem nú stendur yfir. Verður þar að líta til þess hvernig nefndin ákveður hvaða hlaðvörp teljast fjölmiðlar. Í leiðbeiningum um skráningu hlaðvarpa hjá fjölmiðlanefnd, sem nefndin gaf sjálf út í apríl sl., er m.a. litið til þess „hvers konar efni hlaðvarpið miðlar“, og tekið fram að „ef um sambærilegt efni er að ræða og finna mætti í öðrum fjölmiðlum eru líkur til þess að hlaðvarpið teljist skráningarskylt“. Viðmiðin séu ekki tæmandi og hvert tilvik sé metið sérstaklega. Til að beita þessu viðmiði þarf nefndin að leggja mat á efnið sem miðlað er. Það mat hefur síðan áhrif á hvort viðkomandi telst fjölmiðill og verður þar með talinn falla undir skyldur fjölmiðlalaga. Mat á efni og efnistökum er þar með orðið einn þeirra þátta sem nefndin byggir á þegar hún ákveður hvort hlaðvarp sé skráningarskylt. Og samkvæmt sömu leiðbeiningum er ólíklegt að hlaðvarp „sem svipar til bloggsíðu að efni til“ teljist fjölmiðill. Hvort hlaðvarp líkist bloggi eða fjölmiðli að efni til ræðst ekki af öðru en efninu. Nefndin þekkir sjálf hversu teygjanlegt þetta mat er. Þegar bent var á það árið 2021 að hlaðvarp fjölmiðlanefndar, Fjórða valdið, væri óskráð var svar framkvæmdastjórans að ekki stæði til að skrá það, enda væri hlaðvarpið ekki fjölmiðill! Samkvæmt orðum framkvæmdastjórans verður ekki annað ráðið en að fjölmiðlanefnd líti svo á að rannsókn á efnistökum við mat á því hvort um fjölmiðil sé að ræða teljist ritskoðun. Í tjáningarfrelsisákvæði stjórnarskrárinnar, 73. gr., segir m.a. að „ritskoðun og aðrar sambærilegar tálmanir á tjáningarfrelsi má aldrei í lög leiða.“ Hér er ekki tekin afstaða til þess hvort skilgreining framkvæmdastjórans á ritskoðun sé rétt. Samkvæmt orðum framkvæmdastjóra fjölmiðlanefndar verður ekki betur séð en að nefndin stundi ritskoðun þegar hún rannsakar mögulega skráningarskyldu hlaðvarpa og fari þá, ef rétt reynist, gegn stjórnarskrá lýðveldisins Íslands. Á sama tíma hefur ráðherra málaflokksins lýst þeirri afstöðu í viðtali við visir.is í dag að fólk eigi að geta notað nýjar leiðir til að tjá sig „án þess að þurfa endilega að vera skilgreindir sem fjölmiðlar“, að til sé „dagskrárgerð sem þarf ekki endilega að vera fjölmiðlun“ og að drög að nýjum lögum eigi að liggja fyrir í janúar, því „það sé langbest að skýra það hvernig löggjafinn vill horfa á þetta“. Færi betur á því að nefndin léti nú staðar numið og bíði þess að löggjafinn festi í lög skýrar reglur um hvernig beri að skilgreina starfsemi sem fjölmiðil. Að öðrum kosti verður ekki hjá því komist að krefja nefndina skýringa á því hvernig rannsókn nefndarinnar á efnistökum hlaðvarpa rúmast innan marka stjórnarskrár þegar nefndin sjálf telur rannsókn á efnistökum vera ritskoðun. Höfundur er lögmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fjölmiðlar Hlaðvörp Mest lesið Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar