Handbolti

Ís­lensku stelpurnar unnu Pól­verja eftir flotta endur­komu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Elín Klara Þorkelsdóttir var frábær í sigrinum á Póllandi í kvöld.
Elín Klara Þorkelsdóttir var frábær í sigrinum á Póllandi í kvöld. EPA/RONALD WITTEK

Íslenska kvennalandsliðið í handbolta vann þriggja marka sigur á Póllandi, 35-32, í vináttulandsleik í Katowice í kvöld.

Íslensku stelpurnar mæta Pólverjum tvisvar um helgina en þessi fyrri leikur liðanna fór fram fyrir luktum dyrum.

Elín Klara Þorkelsdóttir skoraði ellefu mörk fyrir Ísland og fór fyrir íslenska liðinu en þær Lilja Ágústsdóttir og

Sonja Lind Sigsteinsdóttir voru með fjögur mörk hvor.

Leikurinn var jafn og spennandi frá fyrstu mínútu. Pólland var marki yfir eftir tíu mínútna leik, 7–6, en íslenska liðið sneri taflinu við og var komið yfir, 11–12, eftir 20 mínútur. Pólverjar enduðu fyrri hálfleikinn betur og leiddu 17–16 þegar flautað var til hálfleiks.

Pólland byrjaði seinni hálfleikinn vel og var tveimur mörkum yfir, 24–22, eftir 40 mínútur og enn marki yfir, 29–28, þegar tíu mínútur lifðu leiks.

Á lokakaflanum sýndu stelpurnar okkar mikinn karakter, unnu síðustu tíu mínúturnar 7–3 og tryggðu sér 35–32 sigur.

Liðin mætast aftur á laugardag klukkan fjögur.

  • Mörk Íslands í 35-32 sigri á Pólverjum:
  • Elín Klara Þorkelsdóttir 11
  • Lilja Ágústsdóttir 4
  • Sonja Lind Sigsteinsdóttir 4
  • Thea Imani Sturludóttir 3
  • Sandra Erlingsdóttir 3/2
  • Lovísa Thompson 2
  • Katrín Tinna Jensdóttir 2
  • Katrín Anna Ásmundsdóttir 2
  • Elín Rósa Magnúsdóttir 1
  • Sara Dögg Hjaltadóttir 1
  • Elísa Elíasdóttir 1
  • Rakel Oddný Guðmundsdóttir 1
  • Varin skot
  • Hafdís Renötudóttir 3
  • Sara Sif Helgadóttir 3
  • Ethel Gyða Bjarnasen 2



Fleiri fréttir

Sjá meira


×