Körfubolti

„Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Jóhann Þór Ólafsson er þjálfari Grindvíkinga sem hafa átt í vandræðum í upphafi móts.
Jóhann Þór Ólafsson er þjálfari Grindvíkinga sem hafa átt í vandræðum í upphafi móts. Vísir/Anton

Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Íslandsmeistara Grindavíkur í körfubolta, segir botninum hafa verið náð í gengi liðsins í upphafi móts. Grindavík hefur tapað fyrstu fjórum leikjum tímabilsins, þar af þungt tap fyrir B-deildarliði Breiðabliks í bikarnum fyrr í vikunni.

Grindavík mætir Stjörnunni í Bónus-deild karla í körfubolta í kvöld en bæði lið leita fyrsta deildarsigurs tímabilsins.

„Það er oft talað um það þegar botninum er náð, að þá er að spyrna sig frá þannig að það er eitthvað sem við þurfum að gera í kvöld,“ segir Jóhann Þór aðspurður um það hvernig hafi gengið að hrista af sér stórt tap Grindavíkur fyrir Blikum í vikunni.

Þannig að þú ert á því að það sé búið að ná botni og það er bara uppleið héðan, eða hvað?

„Við getum lítið annað en bætt okkur. Ég held að ,fjandinn hafi það, að það versni varla úr þessu þannig að við erum bara brattir og höfum átt bara tvo góða daga saman og hlökkum til kvöldsins sko.“

Hefur þetta sem sagt verið svo slæmt að það versni ekki héðan af?

„Já, allavega þessi leikur á mánudaginn. Þessir tveir leikir sem við spilum í deildinni voru svona ekkert alltof slæmir. Við vorum klaufar á móti Val í síðustu umferð en samt fullt af góðum hlutum sem að urðu þar. En botninum var algjörlega náð á mánudaginn með bara arfaslakri frammistöðu í Kópavogi þannig að við getum ekki og ég hef ekki trú á því að þetta versni eitthvað. Við bætum okkur bara það sem að eftir er,“ segir Jóhann Þór.

Andleysi og afhroð

Fyrir tapið gegn Blikum hafði Grindavík tapað fyrstu deildarleikjunum tveimur gegn KR og Val, líkt og hann nefnir að ofan. Sérfræðingar hafa talað um andleysi í liðinu. Hvað gefur Jóhann fyrir andleysistal?

„Já, í þessum leik á mánudaginn, allan daginn. Þetta var algjört andleysi og bara algjört afhroð en Blikar gerðu náttúrulega á sama tíma mjög vel. Við erum ekki langt á veg komnir í undirbúningi og þeir bara nýttu sér það,“ segir Jóhann og bætir við:

„Það vantaði alla orku og alla ákefð og allt í okkar leik. Það var bara algjört andleysi og flatneskja í 40 mínútur. Þannig að, já, á mánudaginn þá get ég alveg tekið undir það að þetta var andlaust og bara lélegt í alla staði.“

Of snemmt að segja hvort menn séu saddir

Grindavík hefur því tapað fjórum fyrstu keppnisleikjum liðsins á tímabilinu. Auk fyrstu tveggja deildarleikjanna tapaði liðið fyrir KR í Meistarakeppni KKÍ og svo umræddum bikarleik gegn Blikum.

En er sedda eftir meistaratitil vorsins einhver skýring? Eru Grindvíkingar saddir?

„Ég held það sé bara of snemmt að tala um það. Þetta er skrifast algjörlega á undirbúningsleysi og bara að menn séu að koma seint inn og ástæður sem við einhvern veginn ráðum ekki við, meiðsli og annað,“

„En ég held að það sé of snemmt að tala um það að menn séu saddir og eitthvað svoleiðis, skilurðu? Við unnum þetta í fyrra og núna er bara nýtt mót og nýir tímar þannig að við fáum ekkert forskot eða neitt þótt við höfum unnið þetta í fyrra,“ segir Jóhann og bætir við:

„Þetta er nýtt mót og nýtt upplegg þannig að við erum bara að vinna hart að því að verða betri í því sem við erum að gera og frá degi til dags og ég hef fulla trú á því að við verðum klárir fyrir kvöldið og við munum klára þennan leik á móti Stjörnunni.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×