Körfubolti

Dazia skoraði 46 stig fyrir KR

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dazia Lawrence átti stórleik með KR í kvöld og Ármenningar réðu ekkert við hana.
Dazia Lawrence átti stórleik með KR í kvöld og Ármenningar réðu ekkert við hana. Vísir/Diego

KR vann þrettán stiga sigur á Ármanni, 102-89, í fjórðu umferð Bónus deildar kvenna í körfubolta. KR hafði tapað fyrsta leiknum á tímabilinu í leiknum á undan en komst aftur á sigurbrautina í Vesturbænum í kvöld.

Ármenningar bitu frá sér í byrjun en héldu ekki út og urðu að sætta sig við fjórða tapið í fyrstu fjórum leikjunum.

Dazia Lawrence og Sara Rún Hinriksdóttir fóru fyrir KR-liðinu að þessu sinni. Lawrence skoraði 46 stig og Sara Rún var með 30 stig. Lawrence hitti úr 16 af 24 skotum sínum og var einnig með 6 fráköst, 4 stolna bolta og 4 stoðsendingar.

Það kom ekki að sök að landsliðsbakvörðurinn Rebekka Rut Steingrímsdóttir klikkaði á sjö af átta skotum sínum og fór snemma af velli með jafnmörg stig (5) og villur (5).

Diamond Battles skoraði 35 stig fyrir Ármann og Edyta Falenzcyk var með 14 stig.

Ármenningar byrjuðu vel og voru 22-18 yfir eftir fyrsta leikhlutann en KR-konur unnu annan leikhlutann 30-17 og voru níu stigum yfir í hálfleik, 48-39. Sara Rún Hinriksdóttir var komin með 18 stig í hálfleik.

KR-liðið var síðan með forystu og frumkvæði allan seinni hálfleikinn og vann öruggan sigur. Þetta snerist upp í sýningu hjá Lawrence sem skoraði 33 af 46 stigum sínum í seinni hálfleiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×