Erlent

„At­kvæði gegn Kanada er hættu­leg blekking“

Samúel Karl Ólason skrifar
Mark Carney í Alberta í Kanada í gær.
Mark Carney í Alberta í Kanada í gær. AP/Jeff McIntosh, The Canadian press

Mark Carney varaði samlanda sína við því í gær að Bandaríkin væru að reyna að sundra Kanada. Markmið þeirra væri að eiga Kanadamenn og bað hann fólk um að greiða atkvæði í atkvæðagreiðslum um mögulegan aðskilnað Alberta-fylkis frá öðrum í Kanada eins og framtíð ríkisins væri í húfi, því það væri nákvæmlega svo.

Þetta sagði forsætisráðherrann á viðburði í Alberta og hvatti hann íbúa þar til að hefja ekki aðskilnaðarferli frá Kanada. Umrædd atkvæðagreiðsla fer fram á mánudaginn. Hún snýst ekki beint um sjálfstæði Alberta heldur um það hvort að hefja eigi ferlið fyrir bindandi atkvæðagreiðslu, samkvæmt AP-fréttaveitunni.

„Þessi atkvæðagreiðsla kemur á versta mögulega tíma,“ sagði Carney við hóp fólks á viðburðinum.

„Heimurinn er orðinn hættulegri og sundraðri. Sumir utan landamæra okkar eru að reyna að kljúfa okkur í sundur svo þeir geti eignast okkur.“

Carney nefndi Donald Trump eða Bandaríkin ekki á nafn í ávarpi sínu, sem er í takt við það sem hann hefur gert í fyrri ræðum sínum þar sem hann hefur augljóslega verið að tala um Bandaríkin.

Forsætisráðherrann kallaði eftir því að kjósendur tækju atkvæðagreiðslunni alvarlega. Það ætti ekki að nota hana til að senda yfirvöldum alríkisins í Ottawa skilaboð.

„Látið ekki blekkjast af þeirri hugmynd að þið getið „sent skilaboð“ með atkvæði ykkar,“ sagði Carney.

„Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking sem mun leiða til margra ára djúprar sundrungar og mikillar óvissu.“

Ávarp Carney í gær má sjá hér. Í spilaranum að neðan má svo sjá ummæli sem hann lét falla eftir ávarpið.


Langvarandi gremja í Alberta

Alberta er mjög stórt fylki í vesturhluta Kanada, en þar er mestallri olíu landsins dælt úr jörðu. Fylkið aflar þannig gífurlegra tekna fyrir alríkið Kanada og það hefur lengi valdið gremju í fylkinu, þar sem mörgum íhaldssömum íbúum finnst alríkið ekki koma nægilega vel fram við þá.

Fjórðu stærstu olíulindir heimsins, sem vitað er um, má finna undir yfirborðinu í Alberta. Þær stærstu eru í Venesúela, Sádi-Arabíu og Íran.

Ástandið versnaði töluvert í valdatíð Justins Trudeau en sérfræðingar segja það hafa skánað og dregið hafi úr stuðningi við sjálfstæði síðan hann hætti og Mark Carney tók við sem forsætisráðherra.

Aðskilnaðarsinnar hafa aukin áhrif í öðrum fylkjum Kanada.

Sjá einnig: Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec

Framtíð Alberta hefur einnig spilað rullu í árásum Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, gegn Kanada. Hann hefur ítrekað lýst því yfir að hann vilji gera Kanada hluta af Bandaríkjunum og hefur hann sagst vilja beita efnahagsaðgerðum til að þvinga Kanadamenn til að ganga inn í Bandaríkin.

Trump og ráðamenn í ríkisstjórn hans hafa rennt hýrum augum til Alberta og hafa leiðtogar aðskilnaðarsinna fundað með embættismönnum frá Bandaríkjunum.


Sagði gremjuna réttmæta

Carney ólst upp í Alberta og í ávarpinu tók hann fram að hann væri meðvitaður um að ergja margra íbúa fylkisins væri byggð á raunverulegum vandamálum og gremjan væri að mörgu leyti réttlætanleg.

Hann sagði þó að Kanadamenn væru sterkari sameinaðir og ítrekaði að Alberta spilaði stóra rullu í áætlunum hans um að auka sjálfstæði Kanada frá Bandaríkjunum. Vísaði hann meðal annars til nýrrar olíuleiðslu til vesturstrandar Kanada, svo hægt verði að flytja hana til Asíu, og að hún myndi skapa um 140 þúsund störf í Alberta.

Í frétt Ríkisútvarps Kanada segir að áhorfendur hafi fagnað mjög ákaft þegar Carney talaði um að reiða minna á Bandaríkin varðandi viðskipti og gantaðist forsætisráðherrann þá með að einhverjir gætu litið á fagnaðarlætin sem afskipti af þingkosningunum í Bandaríkjunum í næsta mánuði.

Að undanförnu hefur Carney farið um víðan völl í leit að nýjum vinum, vegna aðgerða og viðskiptastríðs Trumps gegn Kanada, sem segist vilja gera Kanada að 51. ríki Bandaríkjanna.

Hann hefur ferðast víða um heim en beint sérstakri athygli að Evrópusambandinu.


Tengdar fréttir

Noregur og Kanada auka sam­starf í varnar­málum

Forsætisráðherra Noregs segist vinna að því að efla samstarf við Kanada í varnar- og norðurslóðamálum. Hann sér fyrir sér að Norðmenn, Kanadamenn og Íslendingar vinni nánar með Evrópusambandinu að málefnum norðurslóða.

Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts

Íslendingar voru ekki einir um það að lítast ekki á blikuna þegar þeir sáu landsvæði sitt sveipað bandarískum fánalitum á korti sem Donald Trump Bandaríkjaforseti birti á samfélagsmiðlum í byrjun mánaðar. Frakklandsforseti og Kanadamenn senda Bandaríkjaforseta væna pillu vegna kortsins.

Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB

Donald Trump segir að það að hleypa Kanada inn í Evrópusambandið með einhverjum hætti gæti verið „fjandsamlegt“ gagnvart Bandaríkjunum. Forsetinn hótar því að beita ESB enn frekari tollum og jafnvel hætta viðskiptum við Evrópu á einhverjum sviðum.

Býður Kanada auka­aðild að Evrópu­sam­bandinu

Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins bauð Kanada að verða fyrsta aukaaðildarríki sambandsins í stefnuræðu sinni í dag. Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, var viðstaddur ræðuna.

Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins

Þrátt fyrir háværan áróður og beitingu tolla milli Bandaríkjanna og Kanada segjast greinendur vestanhafs sannfærðir um að ríkisstjórnir landanna muni komast að samkomulagi. Hvorki Bandaríkjamenn né Kanadamenn vilji í raun vera í viðskiptastríði. Donald Trump og félagar virðast þó telja sig með pálmann í höndunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×