Innlent

Vill sleppistæði við ungbarnaleikskóla og segir vandann heima­til­búinn

Birgir Olgeirsson skrifar
Skoða á sleppistæði við ungbarnaleikskólann í Bríetartúni eftir áhyggjur foreldra af öryggi og aðgengi. Magnea Gná Jóhannsdóttir samdi tillöguna sem meirihlutinn lagði fram.
Skoða á sleppistæði við ungbarnaleikskólann í Bríetartúni eftir áhyggjur foreldra af öryggi og aðgengi. Magnea Gná Jóhannsdóttir samdi tillöguna sem meirihlutinn lagði fram. Reykjavíkurborg

Skoða á sérstök sleppistæði við ungbarnaleikskólann í Bríetartúni eftir ábendingar foreldra um erfiða og óörugga aðkomu. Magnea Gná Jóhannsdóttir, fulltrúi Framsóknar í umhverfis- og skipulagsráði, segir að ekki hafi verið nægilega hugað að aðgengi foreldra sem koma með börn sín á bíl.

Magnea samdi tillöguna sem fulltrúar meirihlutans, Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknar, lögðu fram og var samþykkt í ráðinu í dag.

„Tillagan er lögð fram í kjölfar samtala minna við foreldra barna í leikskólanum, sem hafa lýst áhyggjum af öryggi og aðgengi að leikskólanum. Foreldrar hafa upplifað aðstæður við aðkomu að leikskólanum sem bæði erfiðar og óöruggar,“ segir Magnea Gná.

Ekki nægilega hugað að aðkomunni

Hún segir foreldra lengi hafa bent á að aðgengið sé ófullnægjandi þegar ung börn eru sótt eða þeim skilað.

„Þetta er að mörgu leyti heimatilbúinn vandi. Leikskólinn er á þéttingarreit en við skipulagið var ekki nægilega hugað að því hvernig foreldrar sem koma á bíl eiga að geta komið börnunum sínum örugglega til og frá leikskólanum.“

Magnea Gná Jóhannsdóttir, fulltrúi Framsóknar í umhverfis- og skipulagsráði, segir aðgengisvandann við leikskólann að mörgu leyti heimatilbúinn. Ekki hafi verið nægilega hugað að foreldrum sem koma með börn sín á bíl.

Leikskólinn rúmar sextíu börn í fjórum deildum og er ætlaður börnum frá tólf mánaða aldri til þriggja ára. Í greinargerð tillögunnar segir að takmarkað framboð bílastæða í nágrenninu geti gert foreldrum erfitt fyrir.

Skoða á staðsetningu sérmerktra skammtímastæða, merkingar og tímamörk svo þau nýtist við að sækja og skila börnum. Útfærslan verður síðan lögð fyrir ráðið.

Lærdómur fyrir aðra leikskóla

Magnea segir mikilvægt að bregðast við ábendingum foreldra.

„Þetta er líka lærdómur sem við eigum að taka með okkur í skipulagningu annarra leikskóla, aðgengi foreldra og öryggi barna þarf að vera hugsað inn í skipulagið frá upphafi.“

Ráðið samþykkti jafnframt tillögu áheyrnarfulltrúa Vinstrisins um að skoða sambærileg stæði við fleiri skólabyggingar þar sem þau vantar. Sú tillaga nær til leikskóla, grunnskóla og frístundastarfs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×