Erlent

Helsti herbloggari Rúss­lands hand­tekinn í Svart­fjalla­landi

Samúel Karl Ólason skrifar
Mikhail Zvinchuk er stofnandi einnar stærstu og áhrifamestu herbloggarasíðu Rússlands.
Mikhail Zvinchuk er stofnandi einnar stærstu og áhrifamestu herbloggarasíðu Rússlands. RuTube

Mikhail Zvinchuk, einn helsti herbloggari Rússlands og stofnandi áhrifamikils miðils sem kallast Rybar, var handtekinn í Svartfjallalandi í morgun. Forsætisráðherra landsins segir hann hafa verið handtekinn eftir viðvaranir um tilraunir til að grafa undan stöðugleika í Svartfjallalandi.

Auk Zvinchuk var eiginkona hans handtekin og þrír aðrir, samkvæmt miðlinum Vijesti, sem er frá Svartfjallalandi.

Þau voru handtekin í bænum Risan og var handtakan framkvæmd af lögregluþjónum og starfsmönnum öryggislögreglu Svartfjallalands.

Talsmaður Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, segir að Rússar séu að leita upplýsinga um málið.

Tryggja öryggi Svartfjallalands

Rybar er svokölluð herbloggarasíða sem nýtur mikilla vinsælda í Rússlandi og víðar um heim. Í yfirlýsingu á Telegramsíðu Rybar segir að þau hafi verið löglega í Svartfjallalandi og hafi ætlað sér að taka upp myndefni í klaustri í landinu.

Milojko Spajic, forsætisráðherra Svartfjallalands, birti færslu á X um málið í morgun en þar staðfesti hann að Zvinchuk hefði verið handtekinn. Það hafi verið gert í kjölfar viðvarana um fjölþáttaógnir gegn Svartfjallalandi vegna viðleitni yfirvalda þar til að ganga í Evrópusambandið.

Ráðherrann sagðist ekki geta veitt frekari upplýsingar að svo stöddu en sagði að starfsmenn öryggisstofnana væru að vinna sína vinnu og að verið væri að tryggja hagsmuni Svartfjallalands.

Áður en hann var handtekinn tók Zvinchuk upp myndband í Svartfjallalandi þar sem hann staðhæfði að verið væri að brjóta á réttindum Rússa þar í landi, eða flestum þeirra. Einhvern veginn hefðu hann og hans fólk komist inn í landið.

Rússneski útlagamiðillinn Meduza segir frá því að áður en hann var handtekinn hafi Zvinchuk stært sig af því á Instagram að hafa komist inn í Svartfjallaland, þrátt fyrir að hann hafi verið beittur refsiaðgerðum af Evrópusambandinu og Bretlandi.

„Þú getur alltaf rambað á landamæravörð sem er helvítis fífl og tæmir vasa þína en gleymir að skoða gagnagrunninn sinn.“

Var á árum áður fjármagnaður af Prígósjín

Rússneskir herbloggarar hafa lengi þjónað eins og nokkurs konar klappstýrur og málpípur fyrir rússneska herinn, þó þeir hafi margir gagnrýnt herinn þegar tilefni hefur verið til. Yfirvöld í Rússlandi hafa varið töluverðu púðri í að koma böndum á herbloggara á undanförnum árum og þá sérstaklega eftir uppreisn málaliða Wagner og auðjöfursins Jevgení Prígósjín.

Sjá einnig: Hægri hönd Pútíns skipulagði dauða Prígósjíns

Rybar var á árum áður fjármagnað af auðjöfrinum og fjallaði mikið um málaliðahópinn Wagner. Eftir að hann dó hefur miðillinn fengið fjármagn frá ríkisfyrirtækinu Rostec en Rybar er notaður til að dreifa áróðri yfirvalda í Rússlandi og fjalla um hernað Rússa á jákvæðan hátt.

Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa heitið tíu milljónum dala fyrir upplýsingar um Zvinchuk og aðra starfsmenn Rybar vegna meintra afskipta þeirra af forsetakosningum í Bandaríkjunum.

Áður en hann stofnaði Rybar var Zvinchuk talsmaður hjá varnarmálaráðuneyti Rússlands.

Stirð samskipti ríkjanna

Eins og fram kemur í frétt Reuters hafa samskipti Svartfjallalands og Rússlands lengi verið slæm. Árið 2016 sökuðu yfirvöld þar Rússa um að reyna að styðja serbneska þjóðernissinna til að fremja valdarán. Ári síðar gekk Svartfjallaland svo í Atlantshafsbandalagið.

Eftir innrás Rússa í Úkraínu 2022 tók Svartfjallaland þátt í refsiaðgerðum gegn Rússlandi. Rússneskir ríkismiðlar hafa verið bannaðir þar og rússneskir erindrekar sendir úr landi fyrir njósnir. Í kjölfarið hafa yfirvöld í Rússlandi skilgreint Svartfjallaland sem óvinveitt ríki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×