Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Samúel Karl Ólason skrifar 8. október 2026 18:41 Mennirnir fóru gegnum girðingu herstöðvarinnar og virðiast hafa verið þar á vappi í um fjórar klukkustundir. Getty/Ryan Jenkinson Tveir menn frá Lettlandi voru handteknir á herstöð í Bretlandi í nótt, þar sem þeir eru sagðir hafa farið gegnum girðingu. Mennirnir eru 36 og 32 ára gamlir og búa þeir báðir í Bretlandi.
Öryggisverðir við herstöð breska flughersins við Molesworth fundu yfirgefinn bíl nærri herstöðinni um klukkan tíu í gærkvöldi, að staðartíma. Í kjölfarið fannst svo gat á girðingu herstöðvarinnar en mennirnir voru ekki gómaðir fyrr en klukkan tvö um nóttina, samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni. Fyrst voru þeir sakaðir um að vera á bannsvæði og um skemmdarverk á girðingunni. Seinna meir voru þeir einnig sakaðir um að brjóta gegn þjóðaröryggislögum Bretlands. Rannsókn málsins er leidd af hryðjuverkalögreglu Bretlands. RAF Molesworth-herstöðin hýsir meðal annars sérstaka upplýsingamiðstöð NATO og leyniþjónustudeild Bandaríkjanna fyrir Evrópu og Afríku, eins og fram kemur í frétt Sky News. Enga flugvelli má finna á herstöðinni, þó þóttn tilheyri flughernum. Sky segir einnig að húsleit hafi verið framkvæmd á minnst tveimur stöðum í Peterborough, sem er bær skammt norður af herstöðinni. Rannsókn málsins er enn á frumstigi. Stutt er síðan bresk yfirvöld voru með mikinn viðbúnað við aðra herstöð breska flughersins, sem hýsti einnig bandarískar herþotur. Sjö menn hafa verið handteknir vegna þess máls en þeim hefur öllum verið sleppt gegn tryggingu. Enn er mjög lítið vitað um það mál og í raun hvað mennirnir eru sakaðir um. Fimm menn voru handteknir eftir að þeir fundust við þrjá sendiferðabíla nærri herstöðinni. Engar sprengjur fundust í bílunum og hefur lítið sem ekkert verið gefið upp um málið af yfirvöldum, annað en að Bretar og Bandaríkjamenn telja að klerkastjórnin í Íran tengist því á einhvern hátt. Bandarískar herþotur sem voru á herstöðinni voru notaðar til árása í Íran fyrr á árinu. Þær hafa nú verið fluttar aftur til Bandaríkjanna.
Bretland England NATO Bandaríkin Lettland Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Fleiri fréttir Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Sjá meira