Innherji

Óttast „harða lendingu“ með efna­hags­sam­drætti og veru­legu at­vinnu­leysi

Hörður Ægisson skrifar
„Ríkisstjórnin situr í augnablikinu þögul með Svarta-Pétur á hendi og hefur ekki sýnt á spilin,“ segja greinendur verðbréfafyrirtækisins og bæta við að boðuð 5,2 prósenta hækkun krónutölugjalda væri „taktlaus við núverandi aðstæður“.
„Ríkisstjórnin situr í augnablikinu þögul með Svarta-Pétur á hendi og hefur ekki sýnt á spilin,“ segja greinendur verðbréfafyrirtækisins og bæta við að boðuð 5,2 prósenta hækkun krónutölugjalda væri „taktlaus við núverandi aðstæður“. Anton Brink

Skýr merki eru komin fram um að hagkerfið sé að kólna mun hraðar en flestar hagspár hafa gert ráð fyrir og hætta er á að áfram dragi úr hagvexti á næsta ári samhliða verulega auknu atvinnuleysi, að mati greinenda Acro. Þeir óttast að þrálát verðbólga og háar verðbólguvæntingar komi í veg fyrir að Seðlabankinn geti brugðist við versnandi efnahagsástandi með vaxtalækkunum og að niðurstaðan verði „hörð lending“.

„Nú blása kaldir vindar um hagkerfið,“ segir í nýrri greiningu Acro verðbréfa í aðdraganda vaxtaákvörðunar peningastefnunefndar miðvikudaginn 7. október næstkomandi. Tólf mánaða verðbólgan hækkaði milli mánaða í september úr 5,6 í 5,9 prósent og hefur verið yfir fimm prósentum allt árið en útlit er fyrir að toppnum sé náð og að hún muni hjaðna á síðasta fjórðungi ársins.

Ástæðan er sögð fyrst og fremst snörp kólnun eftirspurnar. Atvinnuleysi fer vaxandi, svartsýni hefur aukist verulega meðal bæði almennings og atvinnurekenda og krónan hefur styrkst. Þá virðast fyrirtæki í auknum mæli halda aftur af verðhækkunum eða jafnvel lækka verð, eftirspurn hefur minnkað á leigumarkaði og framboð íbúða til sölu hefur aldrei verið meira.

Við óttumst að þessi staða muni knýja fram harða lendingu í hagkerfinu, með samdrætti í landsframleiðslu og verulega auknu atvinnuleysi.

Greinendur Acro telja „nær útilokað“ að peningastefnunefnd breyti vöxtum í október – spár annarra hagfræðinga hafa einnig allar gert ráð fyrir óbreyttum vöxtum – og reikna heldur ekki með neinum vaxtabreytingum það sem eftir lifir ársins. Miklu muni hins vegar skipta hvernig stjórnvöld bregðast við, meðal annars með gjaldskrárhækkunum, og hvort núverandi kjarasamningar haldi.

Í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir 5,2 prósenta hækkun gjaldskráa og krónutölugjalda milli ára en sveitarfélög hafa lýst yfir vilja til að miða slíkar hækkanir við 2,5 prósent. Þá hefur mátt skilja af ummælum forystumanna ríkisstjórnarinnar að hækkun krónutölugjalda verði mögulega endurskoðuð í tengslum við innlegg stjórnvalda vegna kjarasamninga á almennum vinnumarkaði.

„Ríkisstjórnin situr í augnablikinu þögul með Svarta-Pétur á hendi og hefur ekki sýnt á spilin,“ segir í umfjöllun verðbréfafyrirtækisins og bætt við að 5,2 prósenta hækkun væri „taktlaus við núverandi aðstæður“. Telja þeir vaxtahækkunarferlinu lokið ef ríkisstjórnin bindur gjaldskrár- og krónutöluhækkanir næsta árs við 2,5 prósent og kjarasamningar halda þrátt fyrir forsendubrest.

„Kreppumerki“ á vinnumarkaði

Það er einkum þróunin á vinnumarkaði sem vekur ugg hjá Acro. Skráð atvinnuleysi mældist 3,9 prósent í ágúst samanborið við 3,4 prósent ári áður og Vinnumálastofnun gerir ráð fyrir að atvinnuleysi verði að meðaltali 4,5 prósent á þessu ári, upp úr 3,9 prósentum í fyrra, og haldi áfram að aukast á fyrri hluta næsta árs. Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar dregur upp enn dekkri mynd, en samkvæmt henni mældist atvinnuleysi sex prósent í ágúst og 6,8 prósent að teknu tilliti til árstíðarsveiflu. Þótt sveiflurnar séu oft miklar í þeirri mælingu er leitnin engu að síður skýr og undirliggjandi atvinnuleysi er nú um 5,8 prósent samanborið við 4,5 prósent fyrir ári.

Í greiningunni er sérstaklega vikið að tölum um fjölda starfandi á vinnumarkaði og bent á að þróunin þar gefi ekki góð fyrirheit um framhaldið. Starfandi fólki hefur fækkað um 4,4 prósent milli ára að meðaltali síðustu þrjá mánuði. „Slíkri fækkun hefur sögulega fylgt talsverður samdráttur í landsframleiðslu og fátt bendir til þess að annað verði upp á teningnum í þetta skiptið,“ segir í umfjöllun Acro.

Stjórnendur fyrirtækja virðast heldur ekki sjá fyrir sér skjótan viðsnúning. Um 85 prósent fyrirtækja telja sig nú búa við nægt framboð starfsfólks en aðeins níu prósent stjórnenda gera ráð fyrir fjölgun starfsmanna næsta hálfa árið. Um 34 prósent búast hins vegar við fækkun.

Ekki meiri svartsýni frá því í farsóttinni og á bankahrunsárunum

Samhliða kólnun vinnumarkaðarins hefur orðið mikil breyting á væntingum. Væntingavísitala Gallup hefur nánast stöðugt hrapað undanfarna mánuði og farið niður í gildi sem hafa áður aðeins sést á farsóttarárunum og í kjölfar bankahrunsins. Líklegt er að þessi svartsýni muni birtast í minni einkaneyslu.

Sama þróun er einnig sjáanleg þegar litið er til atvinnurekenda. Fjórða ársfjórðunginn í röð meta stjórnendur aðstæður í hagkerfinu slæmar og væntingar þeirra til næstu sex mánaða hafa ekki verið minni frá árinu 2018. Vísitala Gallup um mat stjórnenda á núverandi stöðu mælist aðeins 19 stig, samanborið við 113 fyrir ári, en vísitala um horfur næstu sex mánaða stendur í 26 stigum á móti 60 fyrir ári.

Þrátt fyrir þessa snöggu kólnun eru verðbólguvæntingar enn langt yfir markmiði og sú staða gerir verkefni peningastefnunefndar Seðlabankans erfiðara en ella. Heimilin vænta 5,6 prósenta verðbólgu næstu tólf mánuði og fimm ára væntingar þeirra standa í fimm prósentum. Hjá fyrirtækjum eru samsvarandi tölur 4,7 og fjögur prósent. Á skuldabréfamarkaði er bæði fimm og tíu ára verðbólguálag um 3,9 prósent.

„Margt bendir til þess að sú mynd sem flestar hagspár hafa dregið upp af stöðu hagkerfisins á undanförnum mánuðum kunni að vera nokkuð bjartsýn,“ segja greinendur verðbréfafyrirtækisins. Þeir telja ólíklegt að botni núverandi niðursveiflu verði náð á þessu ári, heldur bendi þvert á móti flest til minni hagvaxtar og aukins atvinnuleysis á næsta ári.

Í þjóðhagsspá Seðlabankans frá því í ágúst er reiknað með því að hagvöxtur þessa árs verði 1,4 prósent en hækki í 1,9 prósent á árinu 2027. Í nýjum hagspám frá Arion og Íslandsbanka, sem birtust í þessari viku, eru á svipuðum slóðum og talið að hagvöxturinn í ár verði á bilinu 1,2 til 1,4 prósent en síðan 1,6 til 1,8 prósent á næsta ári.

Getur ekki „gefið afslátt“ af raunvaxtastiginu

Verðbólga hefur nú verið yfir markmiði Seðlabankans í 77 mánuði samfleytt, eða í meira en sex ár, og vegna skorts á trúverðugleika og hárra verðbólguvæntinga þá er peningastefnunefndin ekki í þeirri stöu að geta „gefið afslátt“ af raunvaxtastiginu.

„Óháð stöðu hagkerfisins verður vaxtalækkunarferlið á næsta ári gagnadrifið,“ segir í greiningu Acro og Seðlabankinn muni ekki lækka vexti fyrr en verðbólga sé komin undir fjögur prósent eða orðið „fullljóst“ að hún stefni þangað. „Við óttumst að þessi staða muni knýja fram harða lendingu í hagkerfinu, með samdrætti í landsframleiðslu og verulega auknu atvinnuleysi,“ vara greinendur verðbréfafyrirtækisins við.


Tengdar fréttir

Mælist til að bankarnir „safni eigin fé“ og séu um­fram kröfur Seðla­bankans

Núna þegar það kann að reyna á viðnámsþrótt fjármálakerfisins, meðal annars vega óróleika á alþjóðlegum mörkuðum og erfiðrar stöðu á byggingamarkaði, þá er ástæða fyrir viðskiptabankana að huga að því að „safna eigin fé“ og vera tilbúna til að takast á við möguleg áföll, að sögn seðlabankastjóra. Arðgreiðslur og kaup bankanna á eigin bréfum hafa verið með mesta móti að undanförnu og nema samtals yfir hundrað milljörðum frá áramótum.

Sendir röng skila­boð og hreyfir við verðbólgu­væntingum á brot­hættum stað

Afleiðingarnar af því að boða hækkun á gjöldum ríkisins í samræmi við verðbólgu, sem hefur verið gert í síðustu tveimur fjárlagafrumvörpum, verða til þess að hreyfa við verðbólguvæntingum sem eru fyrir á „brothættum stað“, að sögn varaseðlabankastjóra, og að Seðlabankinn myndi gjarnan vilja sjá þetta endurhugsað. Hann segir jákvætt að aðhaldsstigið í ríkisfjármálum eigi að aukast á milli ára og varar við því að fara í meiri launahækkanir á vinnumarkaði, einkum núna þegar það er að myndast „mikill slaki í þjóðarbúinu.“

Vara­seðla­banka­stjóri varar við hættu á „skarpri aðlögun“ í byggingar­geiranum

Varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, eini nefndarmaður peningastefnunefndar Seðlabankans sem vildi halda vöxtum óbreyttum við síðustu ákvörðun, varar við því að háir vextir og miklar birgðir af óseldum íbúðum muni auka hættuna á „skarpri aðlögun“ í byggingargeiranum. Hann bendir á að „raunveruleg fjármögnunarskilyrði“ heimila hafi versnað umfram stýrivaxtahækkanir samhliða mikilli hækkun verðtryggðra markaðavexta frá því í vor.

Telja að hallinn geti orðið yfir fjörutíu milljarðar þrátt fyrir fyrir­heit um af­gang

Útlit er fyrir að afkoma ríkissjóðs á árinu 2027 verði umtalsvert lakari en lagt er upp með í nýju fjárlagafrumvarpi, að mati greinenda Acro, sem telja líklegustu sviðsmyndina vera halli upp á 43 milljarða. Forsendur frumvarpsins eru sagðar of bjartsýnar, „svo ekki sé fastar að orði kveðið“, miðað við hægari efnahagsumsvif og án frekari aðgerða sé erfitt að sjá hvernig markmið um fimm milljarða afgang geti gengið eftir.

„Sannkallað efna­hags­legt og pólitískt sjálfs­mark“ hjá ríkis­stjórninni

Það „vekur furðu“ að ríkisstjórnin sé að endurtaka sömu mistökin frá því um áramótin með hækkunum á krónutölugjöldum sem ýtir undir verðbólguvæntingar og verðbólgu, að sögn sjóðstjóra á skuldabréfamarkaði, og kallar aðgerðirnar „sannkallað efnahagslegt og pólitískt sjálfsmark“ hjá stjórnvöldum. Aðhaldið sem er boðað í fjárlögunum er töluvert í sögulegu samhengi, með nokkuð minni útgjaldavexti milli ára en hefur sést að jafnaði síðasta áratuginn, en á móti benda greinendur á að viðsnúningurinn sem á að nást í afkomunni sé að litlum hluta vegna niðurskurðar eða aðhalds í rekstri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×