Umræðan

Hve­nær má stjórn­mála­maður miðla inn­herja­upp­lýsingum?

Kristinn Ingi Jónsson skrifar

Starfa sinna vegna búa stjórnmálamenn stundum yfir viðkvæmum upplýsingum sem geta snert skráð félög. Til dæmis upplýsingum um áformaðar skattahækkanir, svo nærtækt dæmi sé tekið í íslensku samhengi.

Í nýlegum dómi Evrópudómstólsins í máli C-376/24 er leitast við að svara þeirri spurningu hvort stjórnmálamaður megi miðla innherjaupplýsingum til fjölmiðla í því augnamiði að skapa umræðu um mikilvægt mál á meðal almennings.

Í málinu upplýsti belgískur stjórnmálamaður fjölmiðla um áform stjórnvalda þar í landi um mögulega sölu á hlut í skráðu póstfyrirtæki. Áformin voru háð trúnaði en stjórnmálamaðurinn hélt því fram að það væri réttur hans – sem stjórnarandstöðuþingmanns – að vekja umræðu á meðal almennings um mögulega sölu á stóru ríkisfyrirtæki. Slíkur réttur væri meðal annars varinn af tjáningarfrelsi hans.

Niðurstaða Evrópudómstólsins þýðir ekki að stjórnmálamenn geti hvenær sem er og af hvaða tilefni sem er miðlað innherjaupplýsingum sem varða skráð félög til almennings. Slík miðlun er sem fyrr að meginreglu til ekki leyfileg samkvæmt ákvæðum MAR.

Dómstóllinn eftirlét belgískum dómstólum að meta hvort miðlunin hafi verið lögmæt en veitti hins vegar eftirfarandi leiðbeiningar um hvernig túlka skuli ákvæði markaðssvikareglugerðar Evrópusambandsins (MAR):

  • Miðlun stjórnmálamanns á innherjaupplýsingum er ekki sjálfkrafa í andstöðu við ákvæði MAR. Slík miðlun getur í einhverjum tilfellum talist fara fram í eðlilegu sambandi við stöðu stjórnmálamannsins og þar með verið lögmæt. Það getur til dæmis átt við ef miðluninni er ætlað að vera innlegg í opinbera umræðu um mál sem varða almannahagsmuni. Undantekningu þessari ber hins vegar að túlka þröngt – miðlunin þarf ávallt að vera nauðsynleg og hófleg.
  • Ákvæði 21. gr. MAR veitir almennt talið blaðamönnum ákveðið svigrúm til þess að miðla innherjaupplýsingum án þess að eiga á eins mikilli hættu og annars að vera dæmdir fyrir markaðssvik. Umrætt ákvæði getur hins vegar að mati dómstólsins einnig gilt um stjórnmálamenn – og aðra – þegar þeir taka þátt í opinberri umræðu. Slíkt svigrúm er aftur á móti ekki takmarkalaust. Dómstólar þurfa að meta í hvert sinn hvort miðlunin sem um ræðir hafi þjónað almannahagsmunum, hvort hún hafi verið nauðsynleg til þess að ná slíku markmiði, hvort hún hafi verið hófleg og hvort viðkomandi stjórnmálamaður hafi sjálfur haft fjárhagslegra hagsmuna að gæta af miðluninni eða leitast við að afvegaleiða markaðinn.

Niðurstaða Evrópudómstólsins þýðir ekki að stjórnmálamenn geti hvenær sem er og af hvaða tilefni sem er miðlað innherjaupplýsingum sem varða skráð félög til almennings. Slík miðlun er sem fyrr að meginreglu til ekki leyfileg samkvæmt ákvæðum MAR. Dómurinn staðfestir hins vegar að í undantekningartilfellum er réttlætanlegt af hálfu stjórnmálamanna að miðla innherjaupplýsingum í þágu almennings. Ávallt er það skilyrði að slík miðlun sé talin nauðsynleg og sé í eðlilegu samræmi við stöðu viðkomandi stjórnmálamanns hverju sinni.

Höfundur er lögfræðingur og verkefnastjóri hjá LEX.




Umræðan

Sjá meira


×