Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands undirstrikar að fjármálakerfið hér á landi sé traust og vel í stakk búið til að mæta ófyrirséðum áföllum. Í yfirlýsingu nefndarinnar í morgun kemur fram að fjárhagsstaða kerfislega mikilvægra banka esésterk og aðgengi þeirra að markaðsfjármögnun greitt.
Hún bendir hins vegar á að alþjóðlegar verðbólguhorfur hafa versnað og seðlabankar helstu iðnríkja hækkað vexti. „Áhyggjur af sjálfbærni opinberra fjármála hafa aukist, langtímavextir ríkisskuldabréfa hækkað skarpt og skapað umrót á fjármálamörkuðum,“ segir í yfirlýsingunni.
Á Íslandi hefur ávöxtunarkrafa langra ríkisverðbréfa hérlendis hins vegar lítið breyst.
„Óverðtryggðir vextir lengri ríkisskuldabréfa hafa ekki hækkað að sama marki og gengi krónunnar haldist tiltölulega stöðugt, meðal annars vegna mikils þjóðhagslegs sparnaðar og hóflegrar skuldsetningar þjóðarbúsins. Alþjóðlegur óróleiki, viðvarandi verðbólga og háir vextir hér á landi samhliða minnkandi efnahagsumsvifum geta reynt á viðnámsþrótt fjármálakerfisins, að sögn Seðlabankans.
Fjármálastöðugleikanefnd bankans dregur fram að aukinn kaupmáttur og lítið atvinnuleysi hafi stutt við efnahag heimila síðustu árin. Þá hafa lánþegaskilyrði jafnframt styrkt viðnámsþrótt heimila, skuldahlutföll þeirra eru almennt lág og vanskil lítið.
„Skýr merki eru þó um kólnandi vinnumarkað og hægari efnahagsumsvif samhliða háum vöxtum. Húsnæðisverð hefur lækkað að raunvirði, íbúðum á sölu fjölgað og sölutími lengst, sérstaklega á nýjum íbúðum. Þessi þróun getur reynt á fyrirtæki í byggingariðnaði og aukið vanskil í greininni,“ eins og það er orðað í yfirlýsingu nefndarinnar.
Fram kemur í nýju riti Seðlabankans, Fjármálastöðugleika, að lánveitingar viðskiptabanka til byggingarstarfsemi hafi vaxið hratt og kerfisáhætta aukist. Vanskilahlutfall hefur sömuleiðis hækkað en fjárhagserfiðleikar eru „ekki útbreiddir enn sem komið er.“
Fjármálastöðugleikanefndin beinir einnig sjónum sínum að framþróun gervigreindar sem geti aukið hraða, umfang og flækjustig netárása.
„Brýnt er að aðilar á fjármálamarkaði efli varnir í takt við þróun netógna. Mikilvægt er að styrkja áfram viðnámsþrótt og samhæfa viðbúnað innan fjármálakerfisins við alvarlegum rekstraratvikum. Nú þegar er komin til framkvæmdar notkun greiðslukorta í netleysi sem er þýðingarmikill þáttur í viðnámsþrótti greiðslumiðlunar.“
Þá ákváð fjármálastöðugleikanefnd að halda gildi sveiflujöfnunaraukans óbreyttu í 2,5 prósent í samræmi við stefnu nefndarinnar um beitingu aukans. Tekið er fram að nefndin muni sem fyrr beita þeim stýritækjum sem hún hefur yfir að ráða til að varðveita fjármálastöðugleika þannig að fjármálakerfið geti staðist áföll, miðlað lánsfé og greiðslum og dreift áhættu með viðhlítandi hætti.



