Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar 30. september 2026 16:00 Árin 2018 til 2020 voru umbreytingartími í sjálfbærniumræðu íslensks atvinnulífs. Áherslan færðist frá því að líta á samfélagslega ábyrgð sem styrkveitingar og góðgerðamál yfir í að skilja hana sem órjúfanlegan hluta af rekstri fyrirtækja. Sífellt fleiri fyrirtæki fóru að spyrja sig hvernig starfsemi þeirra hefði áhrif á samfélag, starfsfólk, viðskiptavini og umhverfi og hvernig þau gætu skapað verðmæti til lengri tíma með ábyrgum og sjálfbærum hætti. Á sama tíma urðu Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna leiðarljós fyrir stefnumótun bæði stjórnvalda og fyrirtækja. Skilaboðin voru skýr: sjálfbær þróun væri ekki einungis ábyrgð heldur einnig tækifæri. Fyrirtæki voru hvött til að endurskoða viðskiptalíkön sín, innleiða nýsköpun og vinna markvisst að lausnum sem mæta áskorunum í samfélaginu og umhverfinu. Samstarf, ábyrg viðskipti og langtímahugsun urðu lykilhugtök í umræðunni. Loftslagsmál urðu jafnframt eitt stærsta viðfangsefni tímabilsins og setti ríkisstjórn Íslands fram Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum árið 2018. Kröfur jukust um að fyrirtæki settu sér skýr og mælanleg markmið um samdrátt í losun og skoðuðu áhrif sín á alla virðiskeðjuna, allt frá innkaupum til fjárfestinga. Nýsköpun, græn fjármál og breytingar á neyslu- og rekstrarmynstri voru talin nauðsynleg til að takast á við loftslagsáskoranir framtíðarinnar. Kjarni tíðarandans var sá að sjálfbærni væri ekki lengur aukaverkefni eða ímyndarverkefni. Hún varð sífellt frekar hluti af góðum stjórnarháttum, samkeppnishæfni og framtíðarsýn fyrirtækja. Áhersla á sjálfbærniskýrslugjöf jókst á þessum árum og festi sig í sessi hjá íslenskum fyrirtækjum. Fyrirtæki sem vildu ná árangri til lengri tíma þurftu ekki aðeins að skila fjárhagslegum árangri heldur einnig að sýna fram á jákvæð áhrif á samfélag og umhverfi. Leiðtogar framtíðarinnar Það hafa verið blikur á lofti undanfarið í heimsstjórnmálum. Áherslan hefur farið á að bregðast við líðandi stund og um leið hefur áhersla leiðtoga minnkað á sjálfbærni og langtíma hugsun. Við megum þó ekki gleyma að verkefnið fyrir framan okkur er ennþá stórt þó árangur hafi nást. Þeir þættir sem áhersla var lögð á fyrir átta árum síðan eru ennþá mikilvægir og eiga ennþá við. Umbreytingin í átt að sjálfbærri framtíð mun fyrst og fremst ráðast af leiðtogahæfni. Forstjórar bera sérstaka ábyrgð á að tryggja að sjálfbærni sé órjúfanlegur hluti af því hvernig fyrirtæki skapa verðmæti. Leiðtogar framtíðarinnar þurfa að hafa hugrekki til að endurhugsa hefðbundin viðskiptalíkön, framtíðarsýn til að hugsa í áratugum fremur en ársfjórðungum og hæfileikann til að hvetja aðra til að taka þátt í breytingum. Þeir þurfa að sameina viðskiptalega skynsemi og sterka samfélags- og umhverfisvitund til að byggja upp fyrirtæki sem eru bæði arðbær og sjálfbær. Ekki síður þurfa þeir að vera færir um að byggja upp öflugt samstarf, bæði innan fyrirtækja og við hagaðila utan þeirra. Sjálfbær framtíð byggist á samvinnu þvert á atvinnugreinar, samfélög og landamæri. Þeir leiðtogar sem ná mestum árangri verða þeir sem skilja að langtíma hagsæld byggist á því að skapa verðmæti ekki einungis fyrir eigendur og fjárfesta, heldur einnig fyrir starfsfólk, samfélagið, komandi kynslóðir og náttúruna. Við þurfum að efla nýja hugrakka leiðtoga sem eru tilbúnir að taka ábyrgð á að gera heiminn betri fyrir alla. Höfundur er forstöðumaður stefnu og samskipta hjá ISAVIA og stjórnarformaður Festu á árunum 2018 til 2020. Tilefnið er 15 ára afmæli Festu sem verður fagnað í Tónabíó í dag, 30. september. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Isavia Sjálfbærni Loftslagsmál Mest lesið Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Sjá meira
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun