Vilja formlega afsökun frá Selenskí Samúel Karl Ólason skrifar 28. september 2026 10:00 Vólódímír Selenskí og Lee Jae Myung, forsetar Úkraínu og Suður-Kóreu. AP Ráðamenn í Suður-Kóreu hafa farið fram á að kollegar þeirra í Úkraínu biðji þá formlega afsökunar. Er það eftir að Vólódímír Selenskí sagði frá því að norðurkóreskir hermenn sem voru handsamaðir í Kúrsk í Rússlandi hefðu viljað fara til Suður-Kóreu og voru sendir þangað. Lee Jae Myung, forseti Suður-Kóreu, segir að með því að segja frá þessu hafi Selenskí brotið gegn samkomulagi milli ríkjanna.
Úkraínumenn hafna því að samið hafi verið um að ekki yrði sagt frá því hvar hermennirnir enduðu. Í kjölfarið gaf Seoung Ghi-hong, ráðgjafi Lee, út yfirlýsingu þar sem hann sakaði Úkraínumenn um að segja ósatt um samkomulagið og að málið hefði grafið undan trausti milli ríkjanna og skaðað samband þeirra. Fór hann fram á formlega afsökunarbeiðni. Samkvæmt AP fréttaveitunni sagði Seong að umrætt samkomulag snerist um örlög tveggja hermanna frá Norður-Kóreu og öryggi ættingja þeirra heima fyrir. Yfirvöld í Norður-Kóreu hafa lengi verið með þá stefnu að refsa fjölskyldum fólks sem flýr land og fer til annarra ríkja eins og Suður-Kóreu. Hér má sjá stutta útskýringu Yonhap-fréttaveitunnar á málinu. Ættingjum í Norður-Kóreu líklega refsað Um er að ræða tvo hermenn sem voru meðal þúsunda sem Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, hefur sent til Rússlands. Á meðan þeir voru í haldi Úkraínumanna sögðust hermennirnir vilja setjast að í Suður-Kóreu en ekki vera sendir aftur til Norður-Kóreu í fangaskiptum. Sjá einnig: Kim lofar hermenn sína sem börðust í Kúrsk sem hetjur Selenskí ræddi hermennina í ræðu sinni á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í síðustu viku. Nefndi hann meðal annars að annar þeirra hefði reynt að svipta sig lífi þegar hann áttaði sig á því að hann væri í hættu á að vera handsamaður og hefði verið miður sín yfir því að honum hefði ekki tekist það. Þá sagði hann einnig frá því hvar hermennirnir tveir enduðu. Á undanförnum árum hefur Kim sent milljónir sprengikúla, stórskotaliðsvopna, eldflaugar og menn, svo eitthvað sé nefnt, til Rússlands til aðstoðar Rússum við innrásina í Úkraínu. Fyrir þetta er talið að Norður-Kórea hafi fengið efnahagsaðstoð, aðgang að rússneskri hernaðartækni og aðstoð við nútímavæðingu herafla einræðisríkisins, sem Kim hefur lagt mikla áherslu á á undanförnum árum. Fá mikla aðstoð fyrir hjálpina Hergagnaiðnaður Suður-Kóreu er stór og hefur stækkað á undanförnum árum og er herafli ríkisins þar að auki talinn öflugur og er studdur af Bandaríkjamönnum. Suður-Kórea hefur lengi stutt Úkraínumenn með mannúðaraðstoð og tekið þátt í refsiaðgerðum gegn Rússlandi. Yfirvöld í Seoul hafa þó aldrei viljað senda Úkraínumönnum vopn og hergögn, eins og Úkraínumenn hafa lengi beðið um. Er það vegna stefnu ríkisstjórna þar að senda ekki vopn til ríkja sem standa í átökum.
Úkraína Suður-Kórea Innrás Rússa í Úkraínu Norður-Kórea Rússland Hernaður Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira