Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar 28. september 2026 08:02 Í ágúst náðist mikilvægur áfangi í leikskólamálum í Reykjanesbæ þegar öll 18 mánaða börn fengu úthlutað leikskólaplássi. Raunar voru yngstu börnin sem fengu pláss 16 mánaða gömul. Þetta eru ánægjuleg tímamót fyrir barnafjölskyldur í bænum og árangur markvissrar vinnu og uppbyggingar frá árinu 2022, en leikskólaplássum fjölgaði um alls 211 á síðasta kjörtímabili. Samhliða fjölgun leikskólaplássa höfum við lagt áherslu á að bæta starfsumhverfi leikskólanna. Við bjóðum leikskólaliðum í leikskólakennaranámi góð starfsskilyrði, höfum samræmt frí milli skólastiga og tryggt að stytting vinnuviku starfsfólks skerði ekki þjónustu við börn og foreldra. Þessu höfum við komið til leiðar án þess að hækka leikskólagjöld, ólíkt því sem gert hefur verið í nokkrum öðrum sveitarfélögum. Stuðningur við nám og aukin fagmenntun Við höfum lagt áherslu á að auðvelda áhugasömu starfsfólki að sækja sér menntun í leikskólakennarafræðum. Því hefur sveitarfélagið samþykkt að starfsfólk í slíku námi geti sótt kennslustundir á dagvinnutíma án launaskerðingar. Það skiptir máli að sveitarfélagið styðji starfsfólk sitt með þessum hætti og geri því kleift að efla þekkingu sína og færni samhliða starfi. Enn er þó aðeins um þriðjungur starfsfólks leikskólanna fagmenntaður. Þótt hlutfallið sé svipað í öðrum sveitarfélögum getum við ekki látið þar við sitja. Við viljum fjölga fagmenntuðu starfsfólki og styrkja þannig leikskólana sem fyrsta skólastigið. Börnin okkar eiga skilið metnaðarfullt leikskólastarf og okkar hlutverk er að tryggja starfsfólkinu góðar aðstæður til að sinna því. Fjölgun leikskólaplássa kallar jafnframt á fleira starfsfólk. Á síðasta kjörtímabili varð ljóst að til að mæta uppbyggingunni þyrfti að manna tæplega 50 stöðugildi til viðbótar. Það er því ánægjulegt að nú hefur tekist að manna flestar stöður miðað við núverandi barnafjölda. Höldum áfram að byggja upp Góð leikskólaþjónusta skiptir máli fyrir allt samfélagið. Hún veitir börnum tækifæri til náms og þroska og foreldrum svigrúm til atvinnuþátttöku og náms. Þess vegna er uppbygging leikskólanna ein mikilvægasta fjárfesting sveitarfélagsins til framtíðar. Við höfum náð góðum árangri en verkefninu er ekki lokið. Nú þurfum við að hefjast handa við uppbyggingu Stapaleikskóla og nýs leikskóla í stað Garðasels í Keflavíkurhverfinu. Jafnframt verðum við að halda áfram að efla faglegt starf og tryggja starfsfólki leikskólanna góð starfsskilyrði. Við höfum sett þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra í forgang og getum verið stolt af því sem áunnist hefur. Á þeirri braut þurfum við að halda áfram svo Reykjanesbær verði enn betri staður fyrir barnafjölskyldur. Höfundur er oddviti Samfylkingar og bæjarfulltrúi Reykjanesbæjar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Reykjanesbær Skóla- og menntamál Leikskólar Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Skoðun Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar