Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Samúel Karl Ólason skrifar 23. september 2026 13:30 Polo varð gífurlega kröftugur fellibylur á mjög stuttum tíma en það hefur að miklu leyti verið rakið til El niño-veðurfyrirbrigðisins. AP/NOAA Polo stefnir í að verða einhver kröftugasti fellibylur austanverðs Kyrrahafsins í áratugi. Líklegara er að fellibylurinn muni fara nærri vesturströnd Mexíkó en hann á ekki að ganga þar á land. Þrátt fyrir það er búist við miklum vindum, úrkomu og flóðum, bæði sjávarflóðum og skyndiflóðum og aurskriðum.
Fellibylurinn varð í gær þriðji fimmta flokks fellibylurinn á Kyrrahafinu á þessu ári en það er hæsti flokkurinn sem notaður er til að skilgreina fellibylji. Þann flokk fara fellibyljir í þegar vindhraði nær sjötíu metrum á sekúndu. Polo var ekki lengi í fimmta flokki og fór aftur niður í fjórða flokk. Hann er nú á leið norður með ströndum Mexíkó með um 67 m/s vindhviðum. Meðalvindurinn er, samkvæmt fellibyljaeftirliti Bandaríkjanna, um 42 m/s, þegar þetta er skrifað. Búist er við því að styrkur Polo muni aukast og minnka til skiptis á næstu dögum en sérfræðingar segja að hann verði áfram mjög hættulegur. 3 AM CST Wed Sep 23 (Advisory 11) Key Messages for Hurricane #Polo. Latest info: https://t.co/NyUGSIFCuo pic.twitter.com/OOGpQdM5E4— NHC Pacific (@NHC_Pacific) September 23, 2026 Eitthvert kröftugasta óveður sögunnar AP-fréttaveitan hefur eftir veðurfræðingi að Polo sé eitthvert kröftugasta óveður Kyrrahafsins síðan mælingar hófust. Eins og áður segir fylgir mikil rigning Polo en spár gera ráð fyrir um átta til fimmtán sentímetra rigningu við strandlengju Mexíkó. Sérfræðingar hafa sérstakar áhyggjur af skyndiflóðum og aurskriðum vegna þessarar rigningar. Við ströndina er fólk svo að undirbúa sig fyrir öldugang og hærri sjávarstöðu vegna Polo. Fólk hefur verið varað við því að vera á ströndinni og forðast einnig ár og staði þar sem flóð geta skollið á. Veðurfræðingar hafa haft orð á því að Polo hafi styrkst einstaklega hratt. Það hefur verið rakið til sérstaklega öflugs El niño. Það er náttúrulegt veðurfyrirbrigði í Kyrrahafinu í kringum miðbaug sem er tengt við hækkun meðalhita jarðar og auknar veðuröfgar. Nokkur af hlýjustu árum í mælingasögunni hafa orðið þegar El niño magnar upp þá manngerðu hlýnun sem á sér stað á jörðinni. Sjá einnig: Búast við fordæmalausum El niño næsta árið Enginn fellibylur hefur myndast á Atlantshafinu í ár og hefur aldrei áður liðið svo langt af árinu án fellibyljar. Þetta hefur einnig verið rakið til El niño.
Mexíkó Náttúruhamfarir Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Innlent Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Innlent Árásarmaðurinn sextán ára Erlent Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Erlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Fleiri fréttir Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Sjá meira