Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Samúel Karl Ólason skrifar 23. september 2026 13:17 Donald Trump á leið inn í Hvíta húsið í gærkvöldi. AP/Allison Robbert Embættismenn innan ríkisstjórnar Donalds Trump segja það vera „forréttindi“ fyrir fjölmiðla að fá aðgang að Hvíta húsinu. Starfsmenn CNN, MS NOW og Politico hafi brotið gegn reglum og viðmiðum um siðprýði og þess vegna hafi þeim verið meinaður aðgangur að Hvíta húsinu.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í svari ríkisstjórnarinnar við málshöfðun fjölmiðlanna gegn Trump og þremur starfsmönnum hans, í kjölfar þess að Trump meinaði starfsmönnum fjölmiðlanna aðgang að lóð Hvíta hússins og sagði berum orðum að það væri vegna neikvæðrar umfjöllunar um hann. Í svarinu eru fréttamennirnir sakaðir um að hafa birt falsfréttir, meðal annars um þjóðaröryggismál, og um að hafa birt viðkvæmar eða leynilegar upplýsingar. „Aðgangur að Hvíta húsinu eru forréttindi, ekki réttur,“ segir í svari Hvíta hússins við lögsókninni. Þar segir einnig að Hvíta húsið sé bæði heimili og vinnustaður forsetans. Hann hafi komist að þeirri niðurstöðu að starfsmenn fjölmiðlanna þriggja hafi ekki „viðhaft lágmarkskröfur um fagmennsku og siðprýði“ sem búist er við af þeim sem fá aðgang að byggingunni. Þess vegna hafi hann meinað þeim aðgang að Hvíta húsinu og segir í svarinu að um tímabundið viðbragð sé að ræða og að forsvarsmenn fjölmiðlanna hafi fram á föstudag til að svara fyrir sig. Þetta hafði aldrei komið fram áður, samkvæmt frétt New York Times. „Þegar allt kemur til alls eru það forréttindi að fá aðgang að Hvíta húsinu, ekki réttur.“ Í svarinu er því svo haldið fram að Trump sé ekki að brjóta gegn fyrsta viðauka stjórnarskrár Bandaríkjanna og bannið sé í takt við aðgerðir fyrri ríkisstjórna um að hygla suma blaðamenn á kostnað annarra. Kom eigin starfsmönnum í opna skjöldu Deilurnar hófust á föstudaginn þegar Trump lýsti því yfir á samfélagsmiðli sínum að hann ætlaði að banna þessa miðla frá Hvíta húsinu. Þetta segja heimildir fjölmiðla vestanhafs að Trump hafi gert án þess að ræða það við starfsmenn sína og ráðgjafa og það hafi komið starfsmönnum Hvíta hússins í opna skjöldu. Seinna á föstudaginn var hann spurður út í bannið en í fyrstu virtist hann ekki vita hvaða bann verið var að spyrja hann út í. Þá sagði hann meðal annars: „Ó, bannið gegn frjálsu fjölmiðlunum, rétt?“ Þá bætti Trump því við að þetta væri uppsafnað. Hann væri orðinn gífurlega þreyttur á þessu stanslausa flæði falsfrétta, sem hann sagði að umræddir blaðamenn hefðu birt, þrátt fyrir að þeir vissu að fréttirnar væru rangar. Sjá einnig: Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Á laugardeginum var starfsmönnum miðlanna svo meinaður aðgangur að Hvíta húsinu og passar þeirra teknir af þeim. Í kjölfarið var því lýst yfir að miðlarnir myndu höfða mál gegn Trump. Sami dómari úrskurðaði gegn Trump 2018 Alríkisdómarinn Timothy J. Kelly, sem var tilnefndur í embætti af Trump sjálfum árið 2017, mun halda skyndiþinghald í dómsal í dag, þar sem hann mun taka málið fyrir. Þessi sami dómari úrskurðaði gegn Trump í sambærilegu máli árið 2018, þegar forsetinn vísaði Jim Acosta frá CNN úr Hvíta húsinu. Sjá einnig: Hvíta húsið gefur eftir en setur blaðamönnum strangar reglur Aðrir fjölmiðlar og fréttaveitur hafa staðið við bak bönnuðu miðlanna þriggja. Sérstaklega hinar stóru sjónvarpsstöðvar Bandaríkjanna sem skiptast á því að fylgja forsetanum eftir með fréttamenn, tökumenn og hljóðmenn. Forsvarsmenn hinna sjónvarpsstöðvanna, ABC, CBS, Fox News og NBC News, hafa tilkynnt að þeir muni ekki fylla upp í skarðið sem bann CNN felur í sér. Ekki verður fjallað um þá viðburði Trumps sem koma upp á þeim dögum sem CNN hefði átt að standa vaktina. Sem svar við því boðaði Hvíta húsið stofnun TRUMP TV, sérstakrar sjónvarpsstöðvar sem á að fjalla um forsetann.
Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Innlent Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Innlent Árásarmaðurinn sextán ára Erlent Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Erlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Fleiri fréttir Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Sjá meira