Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar 22. september 2026 16:31 Umræða um hvalveiðar hefur aftur færst inn á Alþingi í kjölfar þess að boðað hefur verið að lög um hvalveiðar verði tekin til endurskoðunar. Það er eðlilegt að þingmenn hafi ólíkar skoðanir á málinu. En þegar rætt er um framtíð hvalveiða á löggjafarþinginu verður að gera þá kröfu að umræðan byggist á staðreyndum. Í ræðu á Alþingi 16. september síðastliðinn hélt Ingibjörg Davíðsdóttir þingmaður því meðal annars fram að hvalveiðar sköpuðu umtalsverðar gjaldeyristekjur og hefðu mikil áhrif á atvinnuöryggi og lífskjör fólks. Hún sagði jafnframt að atvinnuvegaráðherra hefði „líklega“ ætlað að láta hvalveiðar hverfa með aðild Íslands að Evrópusambandinu og lýsti þróun járnbætiefnis úr hvalkjöti sem „algerlega frábærri og mikilvægri þróunarvinnu“. Að lokum hvatti hún þingmenn til að heimsækja hvalstöðina og kynna sér starfsemina. Það er sjálfsagt að þingmenn kynni sér hvalstöðina. En þá ættu þeir jafnframt að kynna sér heildarmyndina. Efnahagslegu rök þingmannsins standast ekki skoðun Árið 2023 lét matvælaráðuneytið gera óháða úttekt á efnahagslegum áhrifum hvalveiða. Niðurstaða Intellecon var að bein áhrif hvalveiða á íslenskt efnahagslíf væru lítil og að afkoma veiðanna hefði verið neikvæð síðustu tíu ár. Í skýrslunni kom jafnframt fram að neysla hvalkjöts í Japan hefði minnkað um 99% á fjórum áratugum. Það er því full ástæða til að ræða störf og áhrif á nærumhverfi hvalstöðvarinnar, en ekki er hægt að leggja þau að jöfnu við að hvalveiðar hafi verulega efnahagslega þýðingu fyrir Ísland. Það er einfaldlega ekki niðurstaða þeirrar úttektar sem stjórnvöld létu sjálf vinna. Atvinnuskapandi grein? Það er rétt að hvalveiðar skapa störf og að vertíðin getur skipt þá einstaklinga sem þar starfa verulegu máli. Það ber ekki að gera lítið úr því. En þegar rætt er um efnahagslegt mikilvægi hvalveiða fyrir íslenskt samfélag þarf jafnframt að setja þessi störf í samhengi. Samkvæmt úttekt Intellecon störfuðu um 120 manns við vinnslu hvala á þeirri vertíð sem þar var skoðuð og vinnan er tímabundin, bundin við vertíð sem almennt stendur í um fjóra mánuði á 2-3 ára fresti. Niðurstaða skýrslunnar er jafnframt skýr: „Hvalveiðar eru ekki efnahagslega mikilvægar í þjóðhagslegu samhengi og hafa ekki verið arðbær atvinnugrein undanfarin ár.” Þriggja milljarða tap af hvalveiðum Rekstrartölur Hvals hf. undirstrika þetta. Samkvæmt samantekt Gæðaendurskoðunar úr ársreikningum félagsins var kostnaður við hvalveiðar á árunum 2012–2020 um þremur milljörðum króna meiri en tekjur af þeim. Hvalur hf. skilaði vissulega miklum hagnaði á sama tímabili, en sá hagnaður kom fyrst og fremst frá fjárfestingum félagsins en ekki hvalveiðunum sjálfum. Atvinnuöryggi þeirra sem starfa við veiðarnar á einnig skilið málefnalega umræðu. En það er ekki það sama og að hvalveiðarnar sjálfar séu arðbærar eða hafi verulega efnahagslega þýðingu fyrir Ísland. Ef stjórnvöld ákveða að atvinnugrein eigi ekki framtíð fyrir sér þarf jafnframt að ræða með hvaða hætti megi styðja starfsfólk og nærsamfélög við umskipti. Markaðurinn hverfandi Sama á við um markaðinn. Japanskar opinberar upplýsingar sýna að neysla hvalkjöts er í dag aðeins brot af því sem hún var þegar hún náði hámarki á sjöunda áratugnum. Japanska sjávarútvegsstofnunin segir sjálf að framboð og neysla undanfarna áratugi hafi verið um 2.000–5.000 tonn á ári og þann markað eru Japanir sjálfir að metta eins og fram hefur komið í orðum Kristjáns sjálfs. Þegar atvinnuvegaráðherra ræddi málefni Hvals hf. á Alþingi í júní sagði hún raunar að fyrirtækið hefði óskað eftir breytingum á matvælalöggjöf til að auka möguleika á að nýta afurð „sem mér skilst að um árabil hafi ekki tekist að selja“. Þróun hugsanlegs járnbætiefnis breytir ekki þessari stöðu. Það eru ótal auðveldari og ódýrari leiðir til staðar til að framleiða járnbætiefni og enginn skortur á því. Þar að auki eru einungis þrjú ríki í heimi þar sem leyft er að versla vörur úr hvalkjöti og það eru Ísland, Noregur og Japan, hugmynd að framtíðarvöru er ekki það sama og fyrirliggjandi markaður eða staðfestar tekjur. Svo er það atriðið sem þingmaður minntist ekki á: Dýravelferð. Eftirlit Matvælastofnunar með langreyðaveiðum árið 2022 sýndi að aðeins 59% þeirra hvala sem fylgst var með drápust samstundis samkvæmt skilgreiningu Alþjóðahvalveiðiráðsins. Af 148 hvölum voru 36, eða 24%, skotnir oftar en einu sinni. Tvo hvali þurfti að skjóta fjórum sinnum; tæpa klukkustund tók að aflífa annan þeirra og tvær klukkustundir hinn. Miðgildi tíma frá fyrsta skoti til dauða þeirra hvala sem drápust ekki strax var 11,5 mínútur. Í kjölfarið komst fagráð um velferð dýra að þeirri niðurstöðu að ekki væri hægt að tryggja skjótan dauðdaga stórhvela við þessar aðstæður og að veiðiaðferðin samræmdist ekki lögum um velferð dýra. Þetta eru ekki skoðanir erlendra þrýstihópa. Þetta eru niðurstöður íslensks opinbers eftirlits og íslenskra sérfræðinga. Mikilvægi hvala í vistkerfi sjávar En umræðan um hvali snýst heldur ekki eingöngu um það hvort hægt sé að drepa þá skjótt, hvort markaður finnist fyrir kjötið eða hversu mörg tímabundin störf verða til við veiðarnar. Á síðustu árum hefur þekking okkar á hlutverki hvala í vistkerfi sjávar aukist verulega. Hvalir eru hluti af hringrás næringarefna í hafinu, hafa áhrif á frumframleiðni og líffræðilega fjölbreytni og tengjast kolefnishringrás sjávar. Ferðir þeirra tengja saman ólík hafsvæði og þegar hvalir deyja og sökkva til botns verða til sérstök vistkerfi á sjávarbotni sem eru mikilvæg heilbrigði sjávar og líffræðilegrar fjölbreytni. Þetta er líka hluti af umræðunni sem þingmenn þurfa að þekkja þegar þeir fjalla um framtíð hvalveiða. Þess vegna langar okkur hjá Hvalavinum að taka undir hvatningu Ingibjargar Davíðsdóttur um að þingmenn kynni sér málefnið af eigin raun og bjóða þeim að kynna sér fleiri hliðar þess. Miðvikudaginn 23. september kl. 14–16 fer fram málþingið Mikilvægi hvala í vistkerfi sjávar í Auðarsal í Veröld – húsi Vigdísar. Meðal fyrirlesara eru Sara M. Maxwell, vistfræðingur við Háskóla Íslands, sem fjallar um ferðir hvala um heimshöfin; Guðjón Már Sigurðsson, sjávarlíffræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, sem kynnir nýjar rannsóknir á áhrifum hvala á frumframleiðni; og Joe Roman, sjávarlíffræðingur, rithöfundur og Fulbright-styrkþegi, sem fjallar um hvernig hvalir móta vistkerfi hafsins og stuðla að líffræðilegri fjölbreytni og framleiðni. Henry Alexander Henryson, heimspekingur sem fjallar um siðferðilega sérstöðu hvalveiða og Inga Lísa Middleton myndlistarkona um samspil hvala, svifþörunga, lista og vísinda. Við bjóðum bæði þingmönnum og öðrum áhugasömum velkomin! Umræða um framtíð hvalveiða má vera hörð og skoðanir ólíkar. En þegar Alþingi tekur afstöðu til laga sem hafa gilt frá árinu 1949 ætti umræðan að byggjast á bestu fáanlegu þekkingu, um efnahag, dýravelferð og ekki síður um hvalina sjálfa og hlutverk þeirra í hafinu. Þekking og staðreyndir eru, þegar öllu er á botninn hvolft, betri grundvöllur fyrir málefnalega umræðu og ábyrga ákvarðanatöku en órökstuddar fullyrðingar. Höfundur er formaður Hvalavina-vernd hafsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Valgerður Árnadóttir Hvalveiðar Mest lesið Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Myrkraverk í Afríku Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna skrifar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Sjá meira
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir Skoðun
Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir Skoðun