Viðskipti innlent

Ráðin fag­stjóri ferða­þjónustu hjá Ís­lands­stofu

Atli Ísleifsson skrifar
Elín Sigurveig Sigurðardóttir.
Elín Sigurveig Sigurðardóttir. Íslandsstofa

Elín Sigurveig Sigurðardóttir hefur verið ráðin fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu.

Í tilkynningu segir að Elín muni leiða teymi stofunnar á sviði ferðaþjónustu sem vinni í nánu samstarfi við íslensku ferðaþjónustu og aðra hagaðila, með það að markmiði að styrkja samkeppnishæfni greinarinnar og skapa aukin verðmæti.

„Elín hefur starfað í íslenskri ferðaþjónustu í 25 ár og býr að víðtækri reynslu úr greininni. Hún hefur meðal annars gegnt framkvæmdastjórastörfum hjá Icelandia og Íslenskum fjallaleiðsögumönnum og hefur umfangsmiklareynslu af rekstri, stefnumótun og uppbyggingu fyrirtækja, auk markaðs- og sölumála og alþjóðlegra markaða,“ segir í tilkynningunni. 

Ennfremur segir að Elín þekki íslenska ferðaþjónustu vel og hafi í gegnum tíðina tekið virkan þátt í samstarfi og þróun innan greinarinnar. „Hún hefur meðal annars gegnt trúnaðarstörfum fyrir Samtök ferðaþjónustunnar og setið í stjórn Íslenska ferðaklasans. Þá býr hún yfir öflugu alþjóðlegu tengslaneti og mikilli reynslu af því að kynna Ísland og íslenska ferðaþjónustu á erlendum vettvangi.“

Elín tekur til starfa hjá Íslandsstofu 7. október.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×