Nauðasamningur Rammagerðarinnar samþykktur: Bjóða 25 aura á krónuna Árni Sæberg skrifar 21. september 2026 13:59 Stærsta verslun Rammagerðarinnar er í gamla Kirkjuhúsinu á Laugavegi. Vísir/Ívar Fannar Rammagerðin ehf., sem rekur samnefndar gjafavöruverslanir, hefur gert nauðasamning við kröfuhafa, sem á nú aðeins eftir að staðfesta fyrir dómi. Samkvæmt samningnum fá þeir sem eiga kröfur allt að hundrað þúsund krónum kröfur sínar greiddar að fullu en aðrir fá aðeins fjórðung krafna greiddan. Greiðslu fjórðungs kröfuupphæðar verður dreift yfir sjö ár, án vaxta og tryggingar.
Líkt og Vísir greindi frá í júlí fékk Rammagerðin heimild hjá Héraðsdómi Reykjaness til að leita nauðasamninga við lánardrottna sína og aðra kröfuhafa þann 2. júlí síðastliðinn. Samningur samþykktur í lok ágúst Markmið nauðasamnings er að ráða bót á ógjaldfærni skuldara og þá einkum með því að lækka skuldir þannig að skuldari verði frekar fær um að standa í skilum. Í auglýsingu Héraðsdóms Reykjavíkur í Lögbirtingablaðinu í dag segir að fyrir hönd stjórnar Rammagerðarinnar hafi Heiðar Ásberg Atlason lögmaður krafist staðfestingar á nauðasamningi á grundvelli samningsfrumvarps, sem samþykkt hafi verið á fundi atkvæðismanna þann 25. ágúst síðastliðinn. Einn fjórði greiddur á sjö árum Þá segir að umsjónarmaður nauðasamningaumleitana, Sigurður Kári Kristjánsson lögmaður, hafi staðfest að frumvarp að nauðasamningi hafi verið samþykkt með nægilegum fjölda atkvæða kröfuhafa, bæði samkvæmt höfðatölu og samkvæmt kröfufjárhæð. Umsjónarmaður telji samningsboð félagsins sanngjarnt gagnvart kröfuhöfum þess í skilningi laga um gjaldþrotaskipti og fleira og telji rétt að nauðasamningurinn hljóti staðfestingu héraðsdóms. Frumvarp Rammagerðarinnar ehf. að nauðasamningi sé svohljóðandi: Kröfuhöfum er boðin lágmarksgreiðsla þannig að kröfur til og með fjárhæð kr. 100.000 greiðist að fullu. Kröfuhöfum sem fara með samningskröfur að fjárhæð kr. 100.001 til kr. 10.000.000, að teknu tilliti til greiðslu skv. 1. gr. er boðin greiðsla á 25 hundraðshlutum (%) krafna sinna. Kröfuhöfum sem fara með samningskröfur að fjárhæð kr. 10.000.001 og hærri, að teknu tilliti til greiðslna skv. 1. og 2. gr., er boðin greiðsla á 25 hundraðshlutum (%) krafna sinna. Greiðslur munu fara fram með þeim hætti að lágmarksgreiðsla skv. 1. gr. fari fram innan fimmtán (15) daga frá staðfestingu nauðasamnings. Greiðslur skv. 2. og 3. gr. fari fram í áttatíu og fjórum (84) jöfnum greiðslum, þeirri fyrstu innan fjörutíu og fimm (45) daga frá staðfestingu nauðasamnings og síðan mánaðarlega upp frá því. Ekki er gert ráð fyrir greiðslu vaxta af samningskröfum heldur er miðað við stöðu þeirra þann 2. júlí 2026. Trygging verður ekki veitt fyrir greiðslum samkvæmt framangreindu. Loks segir að með auglýsingunni sé skorað á þá, sem telja sig hafa andmæli fram að færa gegn staðfestingu nauðasamnings með ofangreindum skilmálum, að mæta á dómþing Héraðsdóms Reykjavíkur, sem verði háð í Dómhúsinu við Lækjartorg, dómsal 203, þriðjudaginn 29. september 2026, klukkan 14:30, þegar krafan verður tekin fyrir.
Verslun Reykjavík Gjaldþrot Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Allir Bónus vanilludropar innkallaðir Neytendur Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Hagnaður Kviku dróst saman Reitir féllu frá samstarfi við Art-verk Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Sjá meira