Gjaldþrot „
1 2 3 4 5 6 … 10 ›
„Við munum gæta réttar kröfuhafa í hvívetna“ Arnar Þór Stefánsson og Unnur Lilja Hermannsdóttir, sem skipuð voru skiptastjórar þrotabús Play í gær segja að skipti búsins séu á algjörum byrjunarreit. Tveimur kröfum hafi þegar verið lýst í búið en eftir eigi að auglýsa eftir kröfum. Kröfulýsingarfrestur verði að öllum líkindum fjórir mánuðir. Þau gera ráð fyrir því að skiptin verði yfir hausamótunum á þeim næstu misseri og benda á að skiptum á þrotabúi Wow air er ekki enn lokið, rúmum sex árum eftir gjaldþrot. Viðskipti innlent 1.10.2025 12:40
Hætti korteri eftir peppfund með Möltufólkinu Halldór Guðfinnsson, flugrekstrarstjóri Play og maltneska dótturfélagsins, fékk uppsagnarbréf hvað íslenska félagið varðar afhent fimmtán mínútum eftir starfsmannafund maltneska félagsins og sagði í kjölfarið upp störfum á Möltu. Á fundinum sagði hann að hann væri einn tveggja starfsmanna félagsins á Íslandi sem héldi vinnunni og hann væri viss um að starfsemin á Möltu væri fjármögnuð. Viðskipti innlent 1.10.2025 11:20
Isavia gefur strandaglópum engin grið Strandaglópar sem komast ekki til landsins vegna falls Play og eru með bíla sína á bílastæði Isavia við Keflavíkurflugvöll þurfa að greiða fyrir viðbótardaga í stæðunum. Viðskipti innlent 1.10.2025 10:41
Arnar Þór og Unnur Lilja skipta búi Play Dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur hefur úrskurðað Fly Play hf. gjaldþrota. Arnar Þór Stefánsson, lögmaður á Lex, og Unnur Lilja Hermannsdóttir, lögmaður á Landslögum, hafa verið skipuð skiptastjórar búsins. Viðskipti innlent 30.9.2025 15:57
Strandaglópar slaga í tuttugu þúsund Um það bil 9.300 Íslendingar sem áttu bókað flug heim að utan á næstu sjö dögum sitja fastir vegna gjaldþrots Play. Um 9.000 ferðamenn eru í sömu sporum hér á landi. Óskað hefur verið eftir því að flugfélög sem fljúga til Íslands bjóði upp á björgunarfargjöld. Innlent 30.9.2025 14:00
Eðlilegt ef farið verður yfir eftirlit með flugfélögum Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að sér þætti ekki óeðlilegt ef farið verður yfir ákveðna þætti sem snúa að eftirliti með flugfélögum, í kjölfar falls Play. Viðskipti innlent 30.9.2025 12:11
Gjaldþrotaskiptabeiðni Play tekin fyrir í héraðsdómi Gjaldþrotaskiptabeiðni Fly Play hf. verður tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan 11. Búast má við því að félagið verði úrskurðað gjaldþrota síðar í dag. Viðskipti innlent 30.9.2025 10:52
„Skrifast ekki á okkur að það hafi farið eins og er farið“ Forseti Íslenska flugstéttarfélagsins segir gjaldþrot Play ekki skrifast á stéttarfélagið og vísar slíkum ásökunum aftur til föðurhúsanna. Deilur höfðu staðið yfir milli stéttarfélagsins og Play um að staðfesta að kjarasamningar flugmanna myndu halda sér þegar félagið átti að færa starfsemi sína til Möltu. Viðskipti innlent 29.9.2025 22:44
Arnarflug lifað lengst í samkeppni við Icelandair Allt frá sameiningu Flugfélags Íslands og Loftleiða fyrir ríflega hálfri öld hafa minnst fimm íslensk félög verið stofnuð til að keppa við Icelandair í farþegaflugi til og frá Íslandi. Öll hafa þau farið á hausinn. Innlent 29.9.2025 22:22
Engin ást eftir milli flugmanna og stjórnenda Forseti Íslenska flugstéttarfélagsins (ÍFF) segir gjaldþrot Play hafa komið öllum starfsmönnum á óvart. Hann segir gjaldþrotið gríðarlega þungt fyrir hans félagsfólk en félagið hafi sýnt síðustu mánuði að það hafi horfið frá upphaflegum gildum sínum. Viðskipti innlent 29.9.2025 15:38
Koma fólkinu heim með fimmtán milljóna króna leiguflugi Tveir hópar eru í Vilníus í Litáen á vegum ferðaskrifstofunnar Eventum Travel og áttu bókað flug heim með Play í gær. Fluginu var frestað til dagsins í dag og verður því ekki farið. Ferðaskrifstofan hefur tekið flugvél á leigu fyrir fimmtán milljónir króna og vonast til þess að geta komið fleiri Íslendingum heim í kvöld. Viðskipti innlent 29.9.2025 14:34
Ekki erfitt að vera föst í 25 gráðum en ástæðan sorgleg Tæplega áttatíu starfsmenn rekstrarfélags Kringlunnar og Reita í árshátíðarferð eru fastir í Sitges á Spáni eftir að flugi Play var aflýst vegna yfirvofandi gjaldþrots félagsins. Markaðsstjóri Kringlunnar segir það ekki amalegt að vera strandaglópur í 25 gráðum en tildrögin séu þó ansi sorglegar fréttir. Innlent 29.9.2025 12:05
„Við erum ekki með öll eggin í sömu körfu“ Fjármálaráðherra segir tíðindi af gjaldþroti Play í morgun ekki góð. Aftur á móti fljúgi fjöldi flugfélaga til og frá Íslandi og því séu ekki öll eggin í sömu körfu hvað það varðar. Þá segir hann ríkið vel í stakk búið til að takast á við áfallið. Viðskipti innlent 29.9.2025 11:45
„Hver fyrir sig hvað það varðar“ Einar Örn Ólafsson, forstjóri Play, segir gjaldþrot félagsins miklar sorgarfréttir fyrir starfsfólk félagsins. Margir muni tapa á gjaldþrotinu, hluthafar, kröfuhafar, birgjar og viðskiptavinir. Þá verði það til þess að Íslendingar tapi til lengri tíma vegna hærra verðs flugfara og minna framboðs. Félagið sé illu heilli ekki í neinni stöðu til að aðstoða strandaglópa erlendis. Viðskipti innlent 29.9.2025 10:49
Lagning gjaldþrota Lagning sem hefur lagt bílum ferðalanga á leið úr landi á Keflavíkurflugvelli undanfarin ár er gjaldþrota. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Fyrirtækið var auglýst til sölu í október í fyrra. Kvartanir streyma til Neytendasamtakanna vegna gjalda sem ISAVIA innheimtir vegna bíla sem voru í geymslu Lagningar. Viðskipti innlent 26.9.2025 13:58
Lítið fékkst upp í háar kröfur í bú Blackbox Aðeins ein milljón króna fékkst upp í kröfur kröfuhafa í bú veitingastaðarins Blackbox, sem varð gjaldþrota í febrúar síðastliðnum. Kröfur hljóðuðu upp á tæpar fimmtíu milljónir króna. Viðskipti innlent 9.9.2025 15:15
Gjaldþrotin námu 1,2 milljörðum króna Skiptum er lokið á þrotabúum fjögurra félaga fjölmiðlamannsins Björns Inga Hrafnssonar, sem tekin voru til gjaldþrotaskipta á árunum 2017, 2018 og 2019. Alls var kröfum upp á 1,22 milljarða króna lýst í búið. Viðskipti innlent 27.6.2025 15:30
Flugfélög með áratuga sögu horfin af markaði Tvö rótgróin íslensk flugfélög, sem einkum hafa starfað innanlands, Flugfélagið Ernir og Mýflug, hafa hætt rekstri á skömmum tíma. Sérfræðingur um flugmál segir breyttar markaðsaðstæður og harðnandi samkeppni að hluta skýra stöðuna. Innlent 16.6.2025 23:10
Skúli og félagar aftur sýknaðir af milljarðakröfum Skúli Mogensen og aðrir stjórnarmenn Wow air hafa verið sýknaðir af öllum kröfum þátttakenda í skuldafjárútboði Wow air rétt fyrir fall félagsins. Þátttakendurnir kröfust ríflega 2,6 milljarða króna í skaðabætur. Viðskipti innlent 12.6.2025 16:05
Áttatíu milljóna gjaldþrot Heimabakarís á Húsavík Heimabakarí -Eðalbrauð ehf., sem hélt utan um rekstur Heimabakarís á Húsavík, hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta. Engar eignir fundust í búinu og skiptum var því lokið án þess að greiðsla fengist upp í lýstar kröfur, sem hljóða upp á 84,904,533 krónur. Viðskipti innlent 10.6.2025 18:12
Kastrup og Jón Mýrdal hafa skilið skiptum Jón Mýrdal, sem hefur verið vert á veitingastaðnum Kastrup við Hverfisgötu, hefur gefist upp á samningum við skattinn og leigusala og skilið skiptum við staðinn. Viðskipti innlent 26.5.2025 12:51
Tugmilljóna gjaldþrot meðhöndlarans Ekkert fékkst upp í tæplega 43 milljóna króna kröfur í þrotabú Jóhannesar Tryggva Sveinbjörnssonar, sem afplánar nú langan dóm fyrir fjölda kynferðisbrota. Innlent 16.5.2025 13:47
Ekkert fékkst upp í gjaldþrot upp á tugi milljóna Engar eignir fundust í búi GBN-2024 ehf., sem var í eigu Guðmundar Birkis Pálmasonar, sem er í daglegu tali kallaður Gummi kíró. Viðskipti innlent 7.5.2025 11:04
Sólon lokað vegna gjaldþrots Veitingahúsið Sólon er hætt starfsemi. Þórir Jóhannsson sem átti staðinn segir félagið sem hafi rekið veitingastaðinn hafa farið í gjaldþrot fyrir um tveimur mánuðum. Hann hafi reynt að halda starfseminni gangandi en ekki náð samkomulagi við húseigendur um framhald á rekstri í húsinu. Viðskipti innlent 6.5.2025 16:20
Bjarki um gjaldþrotið: „Þú ert niðurlægður á ákveðinn hátt“ Bjarki Gunnlaugsson segir að það hafi verið högg þegar hann var úrskurðaður gjaldþrota. Ekkert annað hafi þó verið í stöðunni. Hann sagði nánasta samstarfsmanni sínum hjá umboðsskrifstofunni Total Football ekki frá gjaldþrotinu fyrr en eftir að fréttir af því birtust í fjölmiðlum. Íslenski boltinn 30.4.2025 09:34
Reyndu að fá Ingu á sitt band með fötu af „extra crispy“ kjúklingavængjum Katrín Eir Ásgeirsdóttir, forseti KÍNEMA, nemendafélags Kvikmyndaskóla Íslands og Breki Snær Baldursson, varaforseti, félagsins fóru með tíu leggja fötu af „extra crispy“ kjúklingavængjum til Ingu Sæland, félags- og vinnumarkaðsráðherra, í tilraun til að fá hana til að bjarga Kvikmyndaskólanum. Katrín og Breki ræddu mál skólans í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Innlent 22.4.2025 09:16
„Til hamingju hálfvitar“ Börkur Gunnarsson, fyrrverandi rektor Kvikmyndaskólans, gagnrýnir ríkisstjórnina harðlega fyrir „að leggja menntastofnun í rúst“ og „ráðast gegn þekkingu og menntun“. Innlent 21.4.2025 19:00
„Stjórnvöldum er að takast að loka Kvikmyndaskóla Íslands“ Stofnandi Kvikmyndaskóla Íslands segir gjaldþrot skólans eingöngu stjórnvöldum að kenna og sakar þau um að vera á móti uppbyggingu skólans. Þau hafi neitað að greiða til skólans af fjárlögum og skert aðgengi nemenda að skólanum. Hann er þakklátur fyrir yfirtöku Rafmenntar en telur að námið muni samt sem áður breytast til muna. Innlent 21.4.2025 10:48
Rafmennt í samstarf og kaupir eignir þrotabúsins Þekkingarfyrirtækið Rafmennt hefur gengið til samninga við skiptastjóra þrotabús Kvikmyndaskóla Íslands og tryggt sér allar eignir þess. Skólastjóri Rafmenntar sér fram á að hægt verði að ljúka önninni og rektor Kvikmyndaskólans lítur björtum augum til framtíðar. Innlent 17.4.2025 20:55
Nemendurnir neita að fara í Tækniskólann Nemendur í Kvikmyndaskóla Íslands hafa afþakkað boð um að halda námi sínu áfram í Tækniskólanum og segja tillögurnar um áframhaldandi nám óljósar og illa ígrundaðar. Innlent 14.4.2025 21:30