Hvar er reiði Sölvi? „Þarf mjög mikið til að fá mig til að missa kúlið“ Sindri Sverrisson skrifar 19. september 2026 17:37 Sölvi Geir Ottesen faðmar Daníel Hafsteinsson eftir að titillinn var í höfn í dag. vísir/Anton Sölvi Geir Ottesen hefur nú gert Víkinga að Íslandsmeisturum fyrstu tvö ár sín í starfi sem aðalþjálfari. Í öllum látunum í Vesturbænum í dag, þar sem Sölvi missti tvo leikmenn og tvo aðstoðarmenn í burtu með rautt spjald, virtist enginn rólegri en skipstjórinn sjálfur sem sigldi skútunni af öryggi í höfn.
Sölvi mætti í viðtal í setti Sýnar Sport strax eftir 2-1 sigurinn gegn KR í dag, sem tryggði Víkingi titilinn þó að enn séu þrjár umferðir eftir af Bestu deildinni. Bjarni Guðjónsson spurði Sölva út í lætin í leiknum og á hliðarlínunni, sérstaklega undir lok leiks, og það hvernig Sölvi virtist alltaf pollrólegur. „Hvar er reiði Sölvi?“ spurði Bjarni og minnti á að Sölvi gat alveg sýnt skap sem leikmaður á sínum tíma. Klippa: Sölvi manna rólegastur í látunum „Ég er bara búinn að sjá allt of mikið af þessu. Það þarf mjög mikið til að fá mig til að missa kúlið. Svo er ég líka með gæja fyrir aftan mig sem sjá aðallega um þetta,“ sagði Sölvi laufléttur en aðstoðarmenn hans, Aron Baldvin Þórðarson og Harudin Cardaklija, fengu báðir rautt spjald og svo leikmennirnir Daníel Hafsteinsson og Sveinn Margeir Hauksson sem og Hrafn Tómasson í liði KR. Lætin héldu svo áfram eftir leik. Aftur á móti virtist Sölvi aldrei líklegur til að fá rauða spjaldið: „Nei, nei. Þetta er einhvern veginn öðruvísi. Ég er búinn að sjá það að þegar dómarinn er búinn að flauta er ekkert sem þú getur gert. Það hefur aldrei dómur breyst eftir að dómarinn flautar. Já, ég get verið drulluósáttur við niðurstöðu dómsins en svo finnst mér að því meira sem þú röflar í dómaranum og öskra á hann, því meira fer hann í fýlu út í mann og dæmir gegn manni. Það þýðir ekkert að æsa sig. Ég hef reynt það og það gekk ekki.“ Sölvi má vera afar stoltur af sinni byrjun á ferlinum sem aðalþjálfari. Mikið gekk á hjá Víkingum í ár en liðið hefur heilt yfir verið það langbesta í deildinni, rétt eins og í fyrra. „Þetta var mikill rússíbani og byrjar í raun mjög snemma. Við missum leikmenn í veikindi og meiðsli, en höfum talað rosalega lítið um það. Við höfum ekki kvartað yfir að missa lykilleikmenn og mér finnst það bara rangt að tala of mikið um það, því það eru aðrir leikmenn sem bíða eftir tækifærinu og taka það í staðinn, og hafa gert það vel. Þetta hafa verið hæðir og lægðir en ég er virkilega stoltur af stöðugleikanum sem við sýndum þrátt fyrir mikil skakkaföll.“
Besta deild karla Víkingur Reykjavík Tengdar fréttir Uppgjörið: KR - Víkingur R. 1-2 | Fimm rauð og Víkingar meistarar Víkingur er Íslandsmeistari karla í fótbolta annað árið í röð eftir 2-1 sigur á KR að Meistaravöllum í skrautlegum leik í Bestu deild karla. Fimm rauð spjöld fóru á loft. 19. september 2026 17:00 Sjáðu trylltan fögnuð Víkinga þegar titillinn var í höfn og viðtal við hetjuna Víkingur varð í dag Íslandsmeistari í Bestu-deild karla eftir 2-1 sigur á KR á Meistaravöllum. 19. september 2026 16:15 Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira
Uppgjörið: KR - Víkingur R. 1-2 | Fimm rauð og Víkingar meistarar Víkingur er Íslandsmeistari karla í fótbolta annað árið í röð eftir 2-1 sigur á KR að Meistaravöllum í skrautlegum leik í Bestu deild karla. Fimm rauð spjöld fóru á loft. 19. september 2026 17:00
Sjáðu trylltan fögnuð Víkinga þegar titillinn var í höfn og viðtal við hetjuna Víkingur varð í dag Íslandsmeistari í Bestu-deild karla eftir 2-1 sigur á KR á Meistaravöllum. 19. september 2026 16:15