Tekjur Bílastæðasjóðs 258 milljónum yfir áætlun með hjálp skannbílsins Birgir Olgeirsson skrifar 16. september 2026 16:20 Myndavélarnar á þaki skannbílsins lesa bílnúmer svo hægt sé að kanna hvort greitt hafi verið fyrir stæði. Stöðuverðir fara síðan yfir myndirnar og ákveða hvort sekta eigi bíleigendur. Ekki stendur til að fjölga slíkum bílum, að sögn deildarstjóra Bílastæðasjóðs. Bjarki Skannbíll Bílastæðasjóðs Reykjavíkur á töluverðan þátt í að tekjur sjóðsins fóru 258 milljónum króna fram úr áætlun á fyrri helmingi ársins, að sögn deildarstjóra hans. Hann segir tæknina einnig gera sjóðnum kleift að sinna eftirliti með færra starfsfólki en áætlað var.
Matthías Bernhöj Daðason, deildarstjóri Bílastæðasjóðs, segir gott aðhald í rekstrinum. Ekki hafi verið ráðið í öll þau störf sem gert var ráð fyrir og tækniframfarir hafi hjálpað til við að halda kostnaði niðri. Samkvæmt árshlutauppgjöri umhverfis- og skipulagssviðs var launakostnaður Bílastæðasjóðs 32 milljónum króna undir áætlun. Þegar gjöld höfðu verið dregin frá tekjum stóðu tæpar 745 milljónir eftir, um 292 milljónum meira en áætlað var. Les bílnúmer og kannar hvort greitt hafi verið Skannbíllinn er eftirlitsbíll með myndavélabúnaði á þakinu. Myndavélarnar lesa bílnúmer svo hægt sé að kanna hvort greitt hafi verið fyrir stæði. Borgin kynnti þessa breytingu á eftirlitinu í apríl í fyrra. Matthías segir bílinn hafa gert eftirlitið betra og aukið tekjur. Hann auðveldi starfsfólki að sinna stærra svæði. Myndavélarnar hafi þó ekki leyst stöðuverði af hólmi. Fleiri þeirra vinni nú á skrifstofu við að fara yfir myndirnar sem bíllinn tekur og ákveða hvort eigendur bíla eigi að greiða vegna brota. Tæknin geti ekki sjálf tekið tillit til allra reglna og aðstæðna. Enn þurfi fólk að meta hvert tilvik, þótt bíllinn einfaldi vinnuna. Tekjur oft meiri en borgin reiknaði með Matthías segir einnig að tekjur Bílastæðasjóðs hafi oft verið vanáætlaðar undanfarin ár. Borgin hafi þannig reiknað með minni tekjum en síðan hafi komið inn. Hann segir tekjur af því að fólk greiði fyrir stæði hafa staðist áætlun. Tekjur af greiðslum fyrir bílastæði hafa staðist áætlun, að sögn Matthíasar Bernhöj Daðasonar, deildarstjóra Bílastæðasjóðs. Hann segir erfiðara að spá fyrir um tekjur af sektum og borgin hafi oft reiknað með minni tekjum en síðan hafi komið inn.Vilhelm Erfiðara sé að spá fyrir um hversu margir brjóti reglurnar og þurfi að greiða vegna þess. Hærri tekjur hafi ekki orðið tilefni til að auka útgjöld umfram það sem gert var ráð fyrir. Sjóðurinn hafi áfram gætt aðhalds í rekstrinum. Ekki áform um fleiri slíka skannbíla Matthías segir ekki áformað að fjölga sams konar skannbílum. Svæðið þar sem greiða þarf fyrir bílastæði sé lítið á alþjóðlegan mælikvarða og erlendir sérfræðingar mæli ekki með fleiri bílum til að sinna því. Hann sér þó möguleika á að nýta myndavélatæknina með öðrum hætti, meðal annars við eftirlit með stöðubrotum í úthverfum borgarinnar. Stöðubrot er þegar bíll er stöðvaður eða honum lagt þar sem það er bannað, til dæmis á gangstétt eða fyrir innkeyrslu. Það er annað en að greiða ekki fyrir stæði, sem leiðir til þess sem almennt er kallað stöðumælasekt. Gangandi stöðuverðir sinni slíku eftirliti nú. Matthías nefnir sem möguleika að nota annars konar bíl með myndavélum í úthverfunum og að tæknin gæti síðar nýst við eftirlit í öðrum sveitarfélögum.
Reykjavík Bílastæði Rekstur hins opinbera Borgarstjórn Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Bíði og bíði eftir Bjarna Innlent Fleiri fréttir Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Sjá meira