Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 15. september 2026 23:55 Trump vill ólmur að nafn hans sé á byggingunni en eftir að hann gerði það í óleyfi var honum skylt að fjarlægja nafnið á ný núna í sumar. EPA Donald Trump Bandaríkjaforseti gaf út í dag að ef nafn hans yrði ekki sett upp á byggingu Kennedy-listamiðstöðvarinnar mættu fyrirhugaðar endurbætur á byggingunni ekki fara fram. Byggingunni var lokað nokkrum klukkustundum eftir að dómari kvað upp að hann mætti ekki endurnefna miðstöðina.
Trump greindi frá því á Truth Social að stjórn Kennedy-miðstöðvarinnar hefði kosið að loka dyrum sínum í dag „af öryggisástæðum“ svo hægt væri að hefjast handa við fyrirhugaðar endurbætur. „Lokunin mun taka gildi strax en hins vegar munu endurbæturnar, sem eru umfangsmiklar og flóknar, ekki hefjast fyrr en áfrýjunardómstóll DC hefur úrskurðað um nafnið sem stjórnin samþykkti,“ skrifar forsetinn. „Ef úrskurðurinn er neikvæður, sem hann ætti ekki að vera, og Hæstiréttur Bandaríkjanna hnekkir honum ekki, mun endurbygging og endurnýjun Kennedy-miðstöðvarinnar ekki eiga sér stað.“ Trump vill bæta nafninu sínu við heitið svo miðstöðin muni heita The Donald Trump and the John F. Kennedy Memorial Center for the Performing Arts. Þegar Trump tók við sem forseti skipaði hann hollvini sína í stjórn miðstöðvarinnar og sig sjálfan sem stjórnarformann. Stjórnin greiddi atkvæði í ágúst um að tengja nafn Trumps við heitið í tilraun til að heiðra forsetann. Fyrr í dag úrskurðaði Christopher Cooper, héraðsdómari í Bandaríkjunum, að ekki mætti bæta nafni Trumps við bygginguna. Cooper hefur þegar einu sinni komið í veg fyrir tilraun forsetans til að bæta nafninu sínu við og loka síðan miðstöðinni. „Einfaldlega sagt, stefndu geta ekki sett upp minnisvarða um Trump forseta eða neinn eða neitt annað í Kennedy-miðstöðinni án blessunar þingsins,“ sagði Cooper í ákvörðuninni sinni.
Donald Trump Bandaríkin Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Sjá meira