Viðskipti innlent

Vara við af­leiðingunum

Eiður Þór Árnason skrifar
Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélag Íslands, og Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. Hvorki hefur gengið né rekið í viðræðum samningsaðila síðustu mánuði.
Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélag Íslands, og Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. Hvorki hefur gengið né rekið í viðræðum samningsaðila síðustu mánuði. FÍ/Vísir

Stjórnendur Icelandair harma að Flugvirkjafélag Íslands hafi sett af stað atkvæðagreiðslu um ótímabundið allsherjarverkfall og vara við afleiðingunum ef slíkar aðgerðir verða að veruleika. Fulltrúi flugvirkja segir þá hafa dregist aftur úr almennri launaþróun á meðan Icelandair segir kröfurnar óraunhæfar. Flugfélagið geti ekki teygt sig lengra.

Langt er milli samningsaðila og slitnaði upp úr viðræðum þann 22. júní, að sögn Óskars Einarssonar, formanns Flugvirkjafélags Íslands. Atkvæðagreiðsla um allsherjarverkfall hófst í hádeginu í dag og stendur fram á hádegi á mánudag. Icelandair hefur sent sérstaka yfirlýsingu frá sér vegna þessa.

Óskar segir þá staðhæfingu að kröfur flugvirkja séu „langt umfram það sem gengur og gerist í samfélaginu“ slitna úr samhengi. Hann hafði ekki áður séð umrædda yfirlýsingu Icelandair og vildi lítið tjá sig um hana í samtali við fréttamann.

Það sama í boði fyrir þá og almenna vinnumarkaðinn

Icelandair segir að það geti ekki gengið lengra en í síðasta tilboði. Þið eruð væntanlega  ósammála þeirri afstöðu?

„Þeir verða að svara því. Þeir hafa bara boðið okkur það sem er almennt á vinnumarkaði en þau gleyma að telja það fram að við erum búin að vera með fastan samning síðan 2020. Það er ástæðan fyrir því að við erum á þessum stað.“

„Við höfum bara orðið á eftir. Það er það sem er í gangi og það getur vel verið að fyrirtækið upplifi það að þeir hafi boðið okkur eitthvað sambærilegt því sem er verið að bjóða almennum vinnumarkaði. 

Vinnumarkaðurinn er bara búinn að fá umfram okkur á tímanum og þess vegna erum við á þessum stað. Meira hef ég ekki um þetta að segja. Ef það er eitthvað sem þú þarft að spyrja út úr þessari yfirlýsingu þá skaltu bara snúa þér til þeirra sem senda hana.“

Kæmi á slæmum tíma

Icelandair bendir á að september sé háannatími hjá félaginu og verkfall af þessari stærðargráðu gæti haft miklar afleiðingar.

„Á þessum tíma eru flug í áætlunarflugi um 110 að meðaltali á degi hverjum og fjöldi farþega um 15 þúsund á dag. Þá myndu slíkar aðgerðir leggjast ofan á þær áskoranir sem Icelandair stendur frammi fyrir. Aðstæður hafa verið krefjandi í rekstrarumhverfinu um langa hríð, meðal annars vegna mjög hás eldsneytisverðs,“ segir í tilkynningu.

Þá varar flugfélagið við því að áhrif verkfalls myndu ná langt út fyrir starfsemi félagsins, hafa áhrif á þúsundir farþega og íslenska ferðaþjónustu og hagkerfið í heild.

Kjarasamningar Félags íslenskra atvinnuflugmanna og Flugfreyjufélags Íslands við Icelandair eru sömuleiðis lausir og hafa verið það í um ár.


Tengdar fréttir

Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall

Atkvæðagreiðsla á meðal flugvirkja sem starfa hjá Icelandair um boðun verkfallsaðgerða er sögð fara fram í dag. Kjaraviðræður á milli Flugvirkjafélagsins og Icelandair hafa staðið yfir að undanförnu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×