Helmingsafsláttur af mennskunni Arndís Þórarinsdóttir skrifar 9. september 2026 15:30 Ráðherra barna- og menntamálaráðherra, Inga Sæland, sat fyrir svörum í Kastljósi í gær, í tilefni af hraksmánarlegri útkomu okkar Íslendinga í PISA-könnuninni. Öll ljós blikka, ástandið er alvarlegt, það hefur lengi verið varað við þessu. Allar þessar verstu spár hafa enda ræst - tölurnar sýna að málin hafa þróast á versta veg. Við erum að svíkja börnin okkar um almennilega menntun. Orsakirnar eru margar, en óumdeilt er að námsgagnaframleiðsla hér á landi er víðsfjarri því að duga til þess að sjá nemendum fyrir vönduðu námsefni sem samið er í samræmi við nýjustu þekkingu á áhrifaríku námi. Allar samanburðarþjóðir okkar verja mun meira fé til námsefnisgerðar. Í viðtali Margrétar Helgu Erlingsdóttur í gær var það borið upp á ráðherra að einvörðungu væri gert ráð fyrir 455 milljónum í námsefnisgerð á næsta ári, sem væri sláandi í ljósi þess að sérfræðingar hafa talað um að það þyrfti milljarð til þess að halda í horfinu - enn meira ef ætti að vinna upp þá námsefnisskuld sem hefur skapast síðustu ár. Ráðherra taldi að það væri nú aldeilis ekki vandamál: „Síðan erum við að fara að taka í okkar þjónustu nýja tækni, sem heitir gervigreind... Við getum í rauninni þýtt mörgum sinnum meira af góðum og frábærum námsgögnum erlendis frá, við getum tileinkað okkur það besta sem þekkist.“ Svo bætti hún svo við: „Í ljósi stöðunnar þá erum við að stíga risastórt skref, og fyrir 455 milljónir í námsgagnaútgáfu, getum við sennilega gert jafnmikið og fyrir milljarð, miðað við þá nýju tækni sem við erum að fara að taka upp.“ Vanvirðingin sem felst í þessum orðum í garð þýðenda, höfunda, íslenskra fræðimanna, kennara og nemenda er yfirgengileg. Og verst af öllu er að ráðherra ber þessa stefnu fram sem framfarir. Ég held að ef eitthvað skýri dapran árangur okkar Íslendinga í samanburðarhæfum prófum þá liggja skýringarnar í fjölbreytilegu fúski, skyndilausnum og skítamixi um árabil. Við leysum sannarlega ekki vandann með því að bæta enn í. Það er jú fátt krefst meiri mennsku og næmni en að miðla nýrri þekkingu til ungra barna. Er það virkilega einmitt þar sem ríður mest á að skera út hið mennska? Að sjálfsögðu er upplagt að nýta erlent námsefni sem vel hefur reynst, en þetta námsefni þarf að aðlaga, staðla og þýða. Hér á landi eigum við stétt vandaðra þýðenda, fólk sem hefur sérfræðiþekkingu og þjálfun. Sömuleiðis eigum við fjölda vandaðra námsefnishöfunda sem þekkja íslenska nemendur og íslenskt skólakerfi. Hvernig má réttlæta það að íslenska ríkið leggi sig í framkróka við að sneiða hjá þessu fólki? Nú þegar það blasir við að aldrei hefur verið mikilvægara að styrkja innviði íslenskunnar er það forkastanlegt að ríkisstjórnin kynni áform um að sniðganga markvisst fagstéttir hennar. Ég velti líka fyrir mér hvað erlendum höfundum alls þessa námsefnis sem ráðherra hefur hugsað sér að kaupa finnist um það að verk þeirra verði mötuð inn í gervigreind og þýdd með tækni sem byggir á stolnum verkum. Ég velti því raunar líka fyrir mér af hverju það sé boðlegt að tala um það í Ríkissjónvarpinu, undir formerkjum framfara, að stóru gervigreindarmódelin séu nýtt gagnrýnilaust af hinu opinbera þegar það er óumdeilt að þau byggja á stolnum hugverkum. Enn hefur samfélagssamtalið um það ekki farið fram. En aðallega spyr ég: Hvernig má það teljast boðlegt og jafnvel eðlilegt að útvista námsefnisgerð til gervigreindar? Ef við gerum það, af hverju látum við gervigreindina ekki bara líka passa ömmu okkar á elliheimilinu, nú eða stýra íslenska ríkinu? Hvorugt verkefnið myndi hún víla fyrir sér ef hún væri spurð - og um leið og hið opinbera ákveður að hætta að nýta mennska, innlenda fagþekkingu á einu sviði, þá eru öll svið mannlegrar tilveru undir. Hvað stendur þá eftir fyrir okkur sem enn höfum hjörtu sem slá? Höfundur er rithöfundur og varamaður í stjórn Rithöfundasambands Íslands Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein PISA-könnun Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Skóla- og menntamál Grunnskólar Mest lesið Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson Skoðun Skoðun Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar