Hvað borga ferðamenn fyrir nýtingu náttúru og innviða? Jóhannes Þór Skúlason skrifar 9. september 2026 15:02 Fjárlög fyrir árið 2027 voru kynnt á mánudagsmorgunn, við gleðileik ráðherra en litla alþýðuhylli. Áform um gríðarlegar skattahækkanir sem munu snerta alla anga ferðaþjónustu ollu þar gríðarlegum vonbrigðum, enda hefur atvinnugreinin viljað vinna með stjórnvöldum að öðrum og jákvæðari leiðum til að auka skatttekjur samfélagsins af ferðaþjónustu til framtíðar. Ýmislegt hefur verið reynt til að spinna pólitíska skattalopann til réttlætingar offarinu. Fjármálaráðherra reyndi til dæmis í viðtölum á mánudag að réttlæta náttúru- og innviðagjald á ferðaþjónustu með því að segja það eðlilegt að ferðamenn greiddu fyrir aðgang að náttúruauðlindum í eigu ríkisins, eins og þeir geri það ekki í dag. Hið rétta er, sem fjármálaráðherra veit þar sem hann sér það svart á hvítu í reikniskjölum ráðuneytisins, að ferðamenn greiða nú þegar heilmikla skatta og gjöld til ríkisins fyrir að ferðast um íslenska náttúru. Hvað borgar ferðamaðurinn í alvöru fyrir að nýta auðlindir og innviði? Skoðum nokkur raundæmi. Ferðamaður sem keyrir hringinn um landið á bílaleigubíl greiðir rúmlega 9.000 krónur í kílómetragjald nú þegar, og samtals greiða ferðamenn ríkinu um 6-7 milljarða á ári í kílómetragjöld (skattur sem nú hækkar um 15,9%). Par sem gistir 10 nætur á hótelum í ferð sinni greiðir ríkinu 8000 krónur í gistináttaskatt, skatt sem hefur að markmiði að veita fé til innviðauppbyggingar og náttúruverndar á ferðamannastöðum. Samtals greiða ferðamenn um 4 milljarða á ári til ríkisins í gistináttaskatt (skattur sem nú hækkar um 5,2%). Farþegi á skemmtiferðaskipi sem siglir umhverfis landið í 5 sólarhringa greiðir ríkinu 8000 krónur í innviðagjald, skatt sem hefur líka að markmiði að veita fé til innviðauppbyggingar og náttúruverndar á ferðamannastöðum (skattur sem nú hækkar um 5,2%). Á næsta ári er áætlað að skipafarþegar greiði rúmar 400 milljónir til ríkisins í innviðagjald, skatttekjur sem nú snarlækka milli ára fyrst og fremst vegna neikvæðra áhrifa galgopalegar álagningar gjaldsins til að byrja með. Skipafarþegar greiða auk þess 4-5 milljarða í hafnargjöld og farþegagjöld til sveitarfélaga þar sem skipið leggur að bryggju, sem nýtast til uppbyggingar í nærsamfélaginu. Bílastæðagjöld á ferðamenn komu í stað náttúrupassans á sínum tíma Þessi framsetning fjármálaráðherra bendir einnig til bílastæðagjaldablindu, því að ferðamaður sem heimsækir fimm náttúrusvæði ríkisins á Suðurlandi, (t.d. Þingvallaþjóðgarð, Dyrhólaey, Skaftafell, Jökulsárlón og Landmannalaugar) greiðir ríkinu 4.915 krónur í bílastæðagjöld sem renna til þjóðgarðanna, einmitt vegna afnota ferðamannsins af náttúruauðlindunum. Hér er mikilvægt að muna að bílastæðagjöld á náttúrusvæðum í eigu ríkisins voru tekin upp í kjölfar þess að hætt var við áform um náttúrupassa 2014. Fullyrðingar ráðherra um að staðið hafi til að setja á náttúrupassakerfi fyrir afnot af auðlindum í meira en áratug eru því rangar. Bílastæðagjaldakerfið var tekið upp í stað náttúrupassa, einmitt í þeim tilgangi að ferðamenn greiddu með því fyrir aðgang að náttúruauðlindum í eigu ríkisins. Sértekjur þjóðgarða af ferðamönnum eru um 1 milljarður króna, og við það bætast gjöld sem innheimt eru á náttúrusvæðum ríkisins utan þjóðgarða. Samtals eru tekjur hins opinbera af þeim sköttum og gjöldum sem talin eru upp hér að ofan um 16-18 milljarðar á ári. 80 milljarða virðisaukaskattur er vænt gjald fyrir afnot af auðlindum ríkisins Almennt er ekki greiddur virðisaukaskattur af útflutningi á vörum, t.d. sjávarfangi eða áli. Þjónustuútflutningur til ferðamanna fer hins vegar fram í túnfætinum hér heima á Íslandi og ferðaþjónustan er því í raun eina útflutningsgrein landsins sem skilar ríkinu virðisaukaskatti yfir höfuð (skattur sem nú á að hækka um 4 milljarða). Ferðamenn greiða því nú þegar 70-80 milljarða til ríkisins í virðisaukaskatt á hverju ári . Er um áttatíu milljarða innspýting í ríkisfjármálin ekki sanngjarnt gjald fyrir afnot þessara ferðamanna af auðlindum að mati fjármálaráðherra? Betri leiðir eru í boði til að stækka sneið ríkisins af ferðaþjónustukökunni Staðreyndin um framlag ferðaþjónustunnar til samfélagsins er að hið opinbera fær nú þegar um þriðjung allrar veltu ferðaþjónustunnar í skatttekjur á hverju ári, eða um 200 milljarða króna. Það eru tvö hundruð þúsund milljónir sem ferðamennirnir og atvinnugreinin borgar ríkinu í árlegan arð fyrir nýtingu náttúruauðlindanna. Pólitísk spunamaskína ríkisstjórnarinnar breytir ekki þeirri staðreynd, en því miður höfum við skýr dæmi um hvernig glannalegar skattahækkanir stjórnvalda geta orðið til þess að minnka þennan arð til framtíðar. Við sem störfum í ferðaþjónustunni erum stolt af því að greiða svo háa skatta til samfélagsins og viljum gjarnan stækka ferðaþjónustukökuna enn meira til skila samfélaginu enn stærri sneið. En til þess er afar mikilvægt að ferðaþjónustan og stjórnvöld vinni saman að jákvæðari leiðum til að auka skatttekjur ríkisins af greininni. Það eru sameiginlegir hagsmunir alls samfélagsins. Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jóhannes Þór Skúlason Fjárlagafrumvarp 2027 Ferðaþjónusta Mest lesið Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Skoðun Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Hvernig viljum við eldast? Janus Guðlaugsson skrifar Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Sjá meira
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun