„Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Kjartan Kjartansson skrifar 31. ágúst 2026 11:09 Trygve Vedum, leiðtogi Miðflokksins, og Rasmus Gjedssø Bertelsen, gestakennari við Háskólann á Akureyri, eru á meðal þeirra sem fylgdust vel með þjóðaratkvæðagreiðslunni á Íslandi frá Noregi. Vísir Andstæðingar Evrópusambandsaðildar í Noregi fagna niðurstöðu í þjóðaratkvæðagreiðslunni á Íslandi um helgina. Norskur prófessor með tengsl við Ísland segist telja að hægri- og forréttindakreðsur hafi sannfært þá sem minna mega sín um að kjósa gegn aðildarviðræðum.
Grannt var fylgst með þjóðaratkvæðagreiðslunni á Íslandi í Noregi. Norðmenn höfnuðu í tvígang að ganga í Evrópusambandið á 20. öldinni og aðild Íslands að sambandinu skildi þá eina og Liectensteina eina eftir í EES-samningnum. Trygve Slagsvold Vedum, leiðtogi Miðflokksins, segir við norska ríkisútvarpið að höfnun Íslendinga á aðildarviðræðum sé áminning um að lönd getið unnið náið með Evrópu án þess að gefa fullveldi sitt upp á bátinn með aðild. „Ákvörðun Íslands undirstrikar það sem við í Noregi erum þegar að gera, að verja eigin hagsmuni á sama tíma og við leitum eftir samvinnu við önnur Evrópulönd og heiminn allan,“ segir Vedum. Einar Frogner, leiðtogi samtakanna Nei við ESB lýsir niðurstöðunni sem sigri við lýðræðið. Minni á Brexit Norska ríkisútvarpið ræðir einnig við Rasmus Gjedssø Bertelsen, prófessor við Norðurslóðaháskólann í Tromsø sem það segir hafa stundað nám á Íslandi og verið gestakennari við Háskólann á Akureyri. Hann segir þjóðaratkvæðagreiðsluna á Íslandi minna sig á Brexit-atkvæðagreiðsluna í Bretlandi fyrir tíu árum. Sterk efnahagsleg öfl hafi haft hagsmuni af því að viðhalda kerfi þar sem þau geta notað erlendan gjaldmiðil á sama tími og flesti Íslendingar þurfi að nota krónuna með tilheyrandi verðbólgu og háum vöxtum. „Það eru öfl á íslandi sem hafa viljað halda sig frá ESB til þess að standa vörð um eigin völd. Þetta eru hægri- og forréttindakreðsur. Þeim tókst að sannfæra þau minna megandi um að kjósa nei,“ segir Bertelsen við NRK. Bertelsen bjó á Íslandi sem barn og hefur verið gestakennari í heimskautafræðum á Akureyri samkvæmt vefsíðu háskólans þar.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Evrópusambandið Noregur Mest lesið Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Erlent Bannaði Trump að banna fjölmiðla Erlent Segja upp tveimur sérfræðingum Innlent Dagný Ósk látin Innlent Móðir lagði ríkið í Hæstarétti vegna vanrækslu á EES Innlent Færri þunganir í áhættuhópi með nýrri tegund fósturskimunar Innlent Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Erlent Barnið ekki í viðeigandi öryggisbúnaði Innlent „Mjög stór og mikilvæg niðurstaða fyrir okkur“ Innlent Stíflueyðir og gólfþrif ollu slysinu á Óseyri Innlent Fleiri fréttir Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Sjá meira