Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Stefán Árni Pálsson skrifar 25. ágúst 2026 10:01 Aron Sigurðarson hefur nú skorað 20 mörk í 20 leikjum fyrir KR í Bestu-deildinni á tímabilinu. vísir/lýður Knattspyrnumaðurinn Aron Sigurðarson hefur skorað 20 mörk í tuttugu leikjum á tímabilinu með KR. Markametið er innan seilingar en hann ætlar að skora þrjátíu mörk. „
Þetta er bara boltinn sem við spilum. Sóknarmennirnir hjá okkur, allir, fá upp í fimm færi í leik og ég er að taka mín vel. Maður er duglegur eftir æfingar að skjóta aukalega en svo þegar þetta byrjar að detta er þetta ákveðin tómatssósuáhrif. Ég byrjaði snemma að skora og hef síðan haldið því áfram,“ segir Aron í Sportpakkanum á Sýn í gærkvöldi en hann stefndi að því að slá markametið fyrir tímabilið. „Ég vissi alveg hvernig bolta við spilum og var bara óhræddur við að fleygja því út að planið væri að slá markametið. Það er ekki nokkur spurning að þetta er skemmtilegasta lið sem ég hef spilað í. Ég bara nýt þess í botn að spila þennan fótbolta og spila með vinum mínum og fyrir Óskar Hrafn og fyrir KR. Þetta eru langbestu stuðningsmenn landsins.“ Eftir síðasta leik, þegar Aron var kominn með þrennu eftir 28 mínútur, sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari liðsins í viðtali eftir leik að hann vildi sjá meira frá honum. „Ég er í þessu til að verða betri og er með besta þjálfarann á landinu og ef ég hlusta ekki á hann þá er ég eitthvað ruglaður. Ég veit alveg hvað hann á við. Ég er mikið í boltanum og ég er kannski stór partur af því að spilið okkar tikki og þá þurfa mínar ákvarðanir að vera betri og ég get ekki verið of eigingjarn á boltann. Við þurfum að koma fleirum í spilið, spila hratt og þannig erum við bestir.“ Markametið er 21 mark en KR-ingurinn Benóný Breki Andrésson sló það árið 2024. Aron vantar aðeins eitt mark til að jafna það. Næsti leikur KR er gegn Víkingum eftir viku. Risaleikur í meira lagi. Aron á eftir að spila sjö leiki á þessu tímabili. En hvað ætlar hann að skora mörg mörk? „Ég er að horfa í þrjátíu mörkin. Ég fæ færi í hverjum einasta leik enda spilum við þannig fótbolta. Það væri eitthvað við það að skora þrjátíu mörk.“ Hægt er að sjá viðtalið við Aron hér að ofan.
Besta deild karla KR Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira