Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Lovísa Arnardóttir skrifar 18. ágúst 2026 07:32 Skipið var flutt til Akraness til að rýma fyrir herskipum. Vísir/Einar Bandero, skip Paul Watson-samtakanna, var dregið úr höfn í gærkvöldi og til Akraness. Gísli Jóhann Hallsson, yfirhafnsögumaður hjá Faxaflóahöfnum, sagði við mbl.is í gærkvöldi að búa ætti til pláss við höfnina. Um rekstrarlega ákvörðun hafi verið að ræða.
Skipverjar Bandero voru handteknir um síðustu mánaðamót og skipið fært til hafnar. Landhelgisgæsla Íslands og sérsveit ríkislögreglustjóra fóru um borð í Bandero og tóku yfir stjórn skipsins. Skipstjóri þess var handtekinn. Ekki liggur fyrir hvenær skipið mun yfirgefa landið. Greint var frá því fyrir um tveimur vikum á Vísi að það gæti tekið nokkrar vikur að vísa skipverjunum úr landi. Áhöfninni var í fyrstu haldið um borð en fékk svo að fara frjálsir ferða sinna um höfuðborgarsvæðið. Öllum áhafnarmeðlimum var síðar birt ákvörðun um brottvísun og endurkomubann og hefur einhverjum þeirra verið vísað úr landi nú þegar. Heræfing til 3. september Haft er eftir Gísla Jóhanni í frétt mbl.is að tilgangurinn sé að rýma fyrir komu herskipa sem komin eru til Íslands til að taka þátt í varnaræfingunni Norður-Víkingi. Æfingin hefst 22. ágúst og lýkur 3. september. Áætlað er að um 150 til 200 íslenskir þátttakendur komi að æfingunni ásamt fjölþjóðlegum liðsafla frá Bandaríkjunum, Belgíu, Kanada, Danmörku, Finnlandi, Frakklandi, Noregi, Svíþjóð, Þýskalandi og Atlantshafsbandalaginu. Tilkynning stjórnarráðsins um æfinguna. Meginmarkmið æfingarinnar er að æfa varnir Íslands, þar með talið varnir mikilvægra innviða, sjóleiðirnar umhverfis Ísland, leit og björgun,gistiríkjastuðning og samhæfingu íslenskra stjórnvalda við herstjórnir Bandaríkjanna og Atlantshafsbandalagsins (NATO).
Hvalveiðar Hótanir Paul Watson vegna hvalveiða Íslendinga NATO Reykjavík Akranes Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Innlent Ók viljandi á ástralska þingkonu Erlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Sjá meira