Sjáðu fernu Emmu og gífurlega mikilvægt mark Vals Aron Guðmundsson skrifar 8. ágúst 2026 11:15 Emma Nicole Phillips skoraði fjögur mörk fyrir Grindavík/Njarðvík Stefán Marteinn/Vísir Emma Nicole Phillips stal senunni í Bestu deild kvenna í fótbolta í gær er hún skoraði öll fjögur mörk Grindavíkur/Njarðvíkur gegn ÍBV. Þá Valur gífurlega mikilvægan sigur gegn Víkingi Reykjavík í botnslag deildarinnar. Öll mörk gærkvöldsins má sjá hér.
Emma Nicole Phillips var kona gærkvöldsins í uppgjöri nýliðanna en hún skoraði fernu í einum hálfleik þegar Grindavík/Njarðvík vann 4-2 sigur á ÍBV í Njarðvík. Grindavík/Njarðvík vermir 5. sæti deildarinnar og er aðeins tveimur stigum á eftir ÍBV sem er í 4.sæti. Klippa: Gri/NJA - ÍBV 4-2 Á Hlíðarenda mættust tveir Reykjavíkur risar í botnslag. Valur tók á móti Víkingi Reykjavík. Aðeins voru sex mínútur liðnar þegar Saana Emilia Tuomala, sem gekk í raðir Víkings á dögunum, var gripin í landhelgi. Hún var of lengi á boltanum fyrir utan eigin vítateig, Arnfríður Auður Arnarsdóttir vann boltann af þeirri finnsku og renndi knettinum á Emmu Hawkins sem skoraði niðri í fjær. Telma Ívarsdóttir í marki Víkings kom engum vörnum við. Reyndist þetta eina mark leiksins, mikilvægt í meira lagi. Valur fer upp fyrir Víking Reykjavík sem vermir nú botnsæti Bestu deildarinnar og hefur ekki unnið leik síðan undir lok maí. Klippa: Valur - Víkingur Reykjavík 1-0 Þór/KA vann 2-0 sigur á Fram með tveimur mörkum í síðari hálfleik og heldur liðið þar með áfram frábærum árangri sínum á VÍS-vellinum. Síðasta tap liðsins á heimavelli kom þann 30. maí. Klippa: Þór/KA - Fram 2-0
Besta deild kvenna UMF Grindavík UMF Njarðvík ÍBV Þór Akureyri KA Fram Valur Víkingur Reykjavík Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Grindavík - Njarðvík | Stórslagur á Suðurnesjunum Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Leik lokið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira