Heldur brasið áfram á Brazell í Bestu deildinni? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. ágúst 2026 14:00 Christopher Brazell var fyrst aðstoðarþjálfari Vals en tók síðan við sem aðalþjálfari þegar Hermann Hreiðarsson var látinn fara. @Valur Fótbolti Engan langar örugglega meira í sigur á Hlíðarenda í kvöld en 34 ára Breta sem er eini þjálfari Bestu deildarinnar í sumar sem hefur ekki fengið að kynnast sigurtilfinningunni.
Eini leikur kvöldsins í Bestu deild karla í fótbolta er viðureign Vals og Stjörnunnar á N1-vellinum á Hlíðarenda. Bæði lið hafa verið á fullu í Evrópukeppni en í vandræðum á heimaslóðum og því gríðarlega dýrmæt stig í boði. Leikurinn hefst klukkan 19.15 og verður í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland. Bæði félögin hafa skipt um þjálfara í sumar en Jón Þór Hauksson, þjálfari Stjörnunnar, hefur bæði náð í sigur og stig í sínum leikjum en ekki er hægt að segja sömu sögu af kollega hans. Christopher Brazell tók við Valsmönnum af Hermanni Hreiðarssyni daginn eftir að liðið vann 4-2 deildarsigur á Þórsurum. Hann hefur stýrt Valsliðinu í þremur deildarleikjum síðan en á enn eftir að ná í sitt fyrsta stig sem þjálfari í efstu deild á Íslandi. Það hefur gengið mun betur hjá Brazell í Evrópukeppninni þar sem liðið sló út bosníska félagið Zrinjski Mostar með því að vinna heimaleikinn 1-0 og gera 2-2 jafntefli í útileiknum. Brazell er því taplaus í Evrópu en hefur tapað öllum leikjum í deildinni heima. Valsliðið skoraði sitt fyrsta mark og komst yfir í fyrsta sinn undir stjórn Brazell í síðasta deildarleik en varð á endanum að sætta sig við 3-2 tap á móti Fram. Áður hafði liðið tapað 1-0 á móti ÍBV og 2-0 á móti FH. Markatalan er því 2-6 í þessum þremur fyrstu leikjum Brazell og stigalaus júlímánuður staðreynd. Þrátt fyrir þrjá tapleiki í röð er Valsliðið enn í efri hluta deildarinnar en botnliðin hafa aftur á móti nálgast hratt. Valur er í 5. sæti með 19 stig en það eru jafnmörg stig og hjá liðunum í næstu tveimur sætum fyrir neðan, ÍA og Keflavík. Stjörnumenn eru í 10. sæti með fimmtán stig og komast einu stigi á eftir Val með sigri. Það eru síðan sex stig á milli Vals og FH sem situr í fallsæti.
Besta deild karla Valur Stjarnan Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira