Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Jón Þór Stefánsson skrifar 28. júlí 2026 15:54 Árásin var framin á Austurvelli árið 2022. Vísir/Vilhelm Sjö hafa verið ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás sem framin var á Austurvelli í Reykjavík í ágúst 2022. Árásin var framin í kjölfar annarrar árásar sem einn þessara sjö er ákærður fyrir að hafa framið.
Í ákæru, sem fréttastofa hefur undir höndum, er þessi eini sagður hafa ráðist á mann með því að slá hann með krepptum hnefa í höfuðið. Svo virðist sem brotaþoli síðari árásarinnar hafi ætlað að koma manninum, sem varð fyrir fyrri árásinni, til aðstoðar, en þá hafi mennirnir sjö ráðist á hann. Sjömenningunum er gefið að sök að hafa slegið brotaþolann nokkur högg í höfuð og búk, sparkað tvívegis í afturhluta hans, og taka hann hálstaki. Hann hafi svo fallið í jörðina og þá hafi þessir sjö slegið og sparkað endurtekið í hann meðan hann lá í jörðinni. Fyrir vikið hlaut hann ýmsa áverka á líkama, sem og áfallastreituröskun. Maðurinn sem varð fyrir fyrri árásinni mun á einhverjum tímapunkti hafa reynt að stöðva þá síðari, en þá hafi sá sem réðst fyrst á hann aftur ráðist á hann. Sá hlaut ýmsa áverka á höfði og andliti. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í málinu.Vísir/Vilhelm Þess er krafist fyrir hönd mannsins sem varð fyrir fyrstu og þriðju árásinni, af hálfu eins og sama mannsins, að honum verði dæmdar 700 þúsund krónur í miskabætur. Fyrir hönd þess sem varð fyrir annarri árásinni, af hálfu sjö, er þess krafist að honum verði dæmdar 2,5 milljónir króna í miskabætur. Héraðssaksóknari höfðar málið sem verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Dómsmál Reykjavík Lögreglumál Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Fleiri fréttir Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Sjá meira