Viðskipti innlent

Fengið 375 milljónir endur­greiddar vegna Trump-tolla

Agnar Már Másson skrifar
Hæstiréttur dæmdi tolla Trumps ólöglega í febrúar.
Hæstiréttur dæmdi tolla Trumps ólöglega í febrúar. Samsett Mynd

Íslenska stoðtækjafyrirtækið Embla Medical, sem áður hét Össur, fékk um 375 milljónir króna endurgreiddar vegna ólögmætra tolla Bandaríkjaforseta. Félagið bíður eftir enn frekari endurgreiðslu.

Samkvæmt nýbirtum ársfjórðungsreikningi fyrir annan ársfjórðung 2026 fékk Embla Medical, sem áður hét Össur, um þrjár milljónir bandaríkjadala í endurgreiðslur fyrir tolla, sem nemur 375 milljónum króna. 

Það jafngildir um tíund af heildarhagnaði félagsins á ársfjórðungnum, en hagnaður félagsins jókst um 39 prósent miðað við sama ársfjórðung í fyrra.

Sveinn Sölvason, forstjóri Emblu Medical, segir að félagið hafi samtals sótt um endurgreiðslu upp á fimm milljónir dala í kjölfar þess að hæstiréttur Bandaríkjanna dæmdi í febrúar að tollar sem Donald Trump Bandaríkjaforseti lagði á vörur frá Íslandi væru ólögmætir.

Hann segir að fyrirtækið bíði enn eftir að fá restina endurgreidda, sem verði vonandi síðar á árinu.

„Og það kom núna í lok annars ársfjórðungs greiðsla upp á rúmar fjórar milljónir dollara. Þannig að þetta hefur nettó þriggja milljóna jákvæð áhrif í fjórðungnum þar sem við erum enn þá að borga ákveðna tolla undir öðru regluverki,“ segir Sveinn hjá Emblu Medical.

Á síðasta ári greiddi fyrirtækið tæpar átta milljónir dollara í tolla.

Sveinn fagnar jafnframt góðri niðurstöðu af ársfjórðungnum. Sala Emblu á öðrum ársfjórðungi nam um 32 milljörðum króna, og jafngildir 11 prósenta aukningu frá síðasta tímabili.

„Reksturinn er í grunninn góður, með góðum vexti og kostnaði haldið í skefjum þrátt fyrir verðbólgu og áhrif á virðiskeðjuna vegna hækkunar á olíuverði,“ segir Sveinn, sem telur framtíðarhorfur félagsins góðar.

„Okkar hlutverk er í grunninn að búa til lausnir fyrir einstaklinga sem þurfa allt sitt líf á okkar vörum og þjónustu að halda. Þannig búum við til virði fyrir heilbrigðiskerfið og fyrir notendurna sjálfa með því að gera fólki kleift að lifa sínu lífi og hreyfa sig betur og meira og það lækkar kostnað fyrir heilbrigðiskerfið.“

Engu að síður vill hann meina að heilbrigðiskerfi heimsins, sérstaklega í Evrópu, standi frammi fyrir áskorunum, svo sem öldrun sem hafi tilheyrandi áhrif á heildarkostnað við rekstur heilbrigðiskerfa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×