Bongóblíða um nánast allt land og rofar til í borginni um stund Freyja Þórisdóttir skrifar 17. júlí 2026 14:09 Síðustu daga hefur sú gula spókað sig víða um austanvert landið og nú njóta landsmenn á ferð og flugi góða veðursins en skýjað er á Raufarhöfn og í Reykjavík. Veðurstofan Hér á landi er sannkallað sumarveður um nánast allt land í dag, þann 17. júlí. Það eru helst íbúar á Raufarhöfn og höfuðborgarsvæðinu sem njóta ekki sólar í dag en hitinn nær rétt um tólf stigum þar en fer mest upp í um tuttugu og þrjú stig á Akureyri. Veðurfræðingur segist sjá fram á að það rofi til í borginni á hverri stundu.
Hitabylgja geisar enn í Evrópu og hefur meðalhitinn náð rúmum þrjátíu og fimm gráðum yfir daginn í löndum á borð við Frakkland og Spán. Líkt og tíðkast nær hitabylgjan ekki til Reykjavíkur en veðurfræðingur segir eiga að rofa til á hverri stundu á höfuðborgarsvæðinu. Blíðan fyrir austan og norðan smitist þó líklega ekki yfir á suðvesturhornið. Hlýtt loft frá Evrópu „Við fáum kannski smá sól, það er nú aðeins að rofa til,“ segir Þorsteinn V. Jónsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, og bætir við að „við fáum ekki mikið af henni“ af þeirri hitabylgju sem hefur leikið við austanvert landið síðustu daga. En aðspurður hvort heita loftið sem hafi spilað þar inn í sé tilkomið vegna hitabylgjunnar sem geisað hefur á meginlandi Evrópu síðastliðinn mánuð eða svo segir hann það ekki svo einfalt. „Ekki beint. Jú, jú, eitthvað af þessu hlýja lofti er nú að koma frá Evrópu en eitthvað kom líka frá Kanada fyrr í vikunni og í síðustu viku,“ segir Þorsteinn og útskýrir nánar: „Það er búið að vera mjög öflug lægð þarna yfir, eða suðaustur af Íslandi og norður af Skotlandi, sem hefur dregið svona suðvestanáttir yfir okkur og það þýðir svolítið skýjað, rakt loft og skýjaþykkni sem leggst hérna upp við suður- og vesturströndina.“ Fólk í borginni fljótt að gleyma Hann kveðst sjálfur hafa fengið á kenna á því undanfarið enda starfi hann í Reykjavík. Það eigi að brotna upp á hverri stundu, „þetta á að verða góður dagur“. Fram undan séu fleiri sólardagar víða um landið en það þykkni strax aftur upp á suðvesturhorninu. „Helgin er svona frekar þungbúin áfram, það þykknar strax aftur í nótt en ég er að horfa hérna út og það er aðeins farið að sjást í birtuna hérna. En þetta stendur ekki lengi.“ Þetta góða veður fyrir austan og norðan, heldur það eitthvað? „Það heldur bara áfram, já, já, sem er nú gaman fyrir þá sem eru þar áfram alveg um helgina og fram í næstu viku, segir Þorsteinn. Fyrr í sumar hafi þó verið nokkrir góðir sumardagar veðurlega séð í höfuðborginni en fólk virðist vera fljótt að gleyma þeim og horfir nú hýru auga austur. „Það er fljótt að gleyma því, það tekur bara tvo, þrjá daga að gleyma því, sko, já já. Það væri samt vissulega gott að vera á héraði núna, ég er alveg sammála því, það væri æðislegt.“
Veður Hitabylgja í Evrópu sumarið 2026 Tengdar fréttir Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Síðustu daga hefur veðrið leikið við fólk á austurhluta landsins en á sama tíma hafa gular viðvaranir ríkt á vestanverðu landinu. Hiti fór víða yfir tuttugu og fimm gráður á Austfjörðum og Egilsstöðum um helgina og tjaldsvæði eru mörg hver að fyllast. 15. júlí 2026 21:13 Mest lesið Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Innlent Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Innlent Skotárás við Álaborg Erlent Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Innlent „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ Innlent Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Innlent Fleiri fréttir Bongóblíða um nánast allt land og rofar til í borginni um stund Bjart austantil en skýjað og svalt við vesturströndina Líkur á stöku skúrum fyrir austan Viðvaranir vegna hvassviðris Rigning og hvasst öðrum megin en sól og bjart hinum megin Vegfarendur hvattir til að fylgjast með viðvörunum Verður íslenska hitametið slegið á morgun? Ekki að vænta mikilla breytinga í veðri Mest 27 gráður en Reykvíkingar þurfa að bíða Væta vestantil en hlýjast fyrir austan Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Gular veðurviðvaranir í kortunum Bjart og allt að tuttugu og fimm stig á Austurlandi Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Dregur úr vætu síðdegis og hiti að átján stigum Hitatölurnar hækka fyrir austan Varhugaverðar hviður á Suðurlandi Víða allhvass vindur og úrkomubakki nálgast Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Allt að sautján stiga hiti Bjart og hlýtt sunnan heiða Siggi stormur spáir góðu veðri um allt land Hlýjast fyrir austan Kaldi eða strekkingur á suðvestan- og vestanverðu landinu Væta með stífri norðaustanátt Stíf norðanátt með rigningu víða um land Allvíða skúrir og lægð nálgast Víða rigning en hiti að átján stigum Úrkoma í flestum landshlutum í dag Úrkoma víða og hiti að sextán stigum Sjá meira
Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Síðustu daga hefur veðrið leikið við fólk á austurhluta landsins en á sama tíma hafa gular viðvaranir ríkt á vestanverðu landinu. Hiti fór víða yfir tuttugu og fimm gráður á Austfjörðum og Egilsstöðum um helgina og tjaldsvæði eru mörg hver að fyllast. 15. júlí 2026 21:13