Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Sindri Sverrisson skrifar 16. júlí 2026 10:39 Ingvar Dagur Gunnarsson og félagar í U20-landsliðinu spila um 13.-16. sæti á EM. IHF/Simion Sebastian Tataru Íslenska U20-landsliðið í handbolta karla getur nú í besta falli náð 13. sæti á Evrópumótinu í Rúmeníu, eftir 31-27 tap gegn Noregi í dag.
Ungu strákarnir okkar fóru vel af stað á mótinu og unnu Austurríki og Lettland en töpuðu fyrir ríkjandi meisturum Spánar, í riðlakeppninni. Þeir lentu í afar krefjandi milliriðli og töpuðu með eins marks mun gegn Króatíu og tveggja marka mun gegn Danmörku, og enduðu neðstir í milliriðlinum. Ísland fór því í leiki um 9.-16. sæti en tapaði í dag gegn Noregi og getur þar með best náð 13. sæti. Liðið spilar næst á morgun við Ísraelsmenn sem töpuðu fyrir Færeyingum í dag, og Færeyjar mæta Noregi í slag tveggja af liðunum sem enda fyrir ofan Ísland, í 9.-12. sæti. Ísland var tveimur mörkum yfir í hálfleik í dag, 14-12, en Norðmenn voru fljótir að jafna metin í seinni hálfleiknum og þeir voru svo komnir í 24-19 þegar enn voru tæpar tuttugu mínútur eftir. Munurinn varð mestur átta mörk en Ísland skoraði fjögur síðustu mörk leiksins og lagaði stöðuna fyrir leikslok. Jens Bragi Bergþórsson og Ágúst Guðmundsson voru markahæstir Íslands með sex mörk hvor og þeir Daníel Montoro og Andri Erlingsson skoruðu þrjú mörk hvor. Alexander Ásgrímsson varði 11 af 41 skoti sem hann fékk á sig, eða 26,83%, en markvörður Noregs, Vetle Revheim Gleditsch, var með 40% markvörslu.
Landslið karla í handbolta Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Körfubolti Fleiri fréttir KA - Afturelding | Þurfa sigur til að halda í við toppliðið Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför Sjá meira