Eldur í Bryggjuhverfi Áróra L Davíðsdóttir skrifar 10. júlí 2026 10:53 Fimm slökkviliðsbílar eru á vettvangi að sögn sjónarvotts. Valur Páll Eldur kviknaði í þaki fjölbýlishúss við Naustabryggju í Reykjavík um klukkan hálf ellefu í morgun. Allt tiltækt lið slökkviliðs var sent á vettvang. Engin slys urðu á fólki. Unnið var að þakinu þegar eldurinn kviknaði en iðnaðarmenn hafi unnið að því að bræða pappa á þakinu. Eldurinn hafi komist í timbur þaksins og farið upp eftir öllu bárujárni þess að sögn Lárusar Petersen varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Lárus segir eldinn erfiðan og mannfrekan. Rífa þurfi bárujárnið af þakinu til þess að tryggja að engin glóð verði eftir undir þakplötunni. Slökkvilið gerir ráð fyrir viðveru sinni í minnst hálftíma í viðbót til þess. Engin slys hafi orðið á fólki og allir íbúar efstu hæðar hússins verið komnir út þegar slökkvilið bar að garði. Töluvert vatnstjón hafi orðið á einni íbúð hússins vegna slökkvistarfsins. Aðalatriði hafi verið að rífa mæni þaksins þannig að hægt væri að sprauta vatni hvoru megin við mæninn þar sem eldur kom upp. Lögregla hafi notað dróna til þess að nema hvar mesti hiti hafi verið og aðstoðað við slökkvistarf. Vísir/Ívar Að sögn sjónarvotts eru fimm slökkviliðsbílar á staðnum auk kranabíls. Einnig séu tveir sjúkrabílar á vettvangi. Eldurinn hafi kviknað í fjögurra hæða fjölbýlishúsi en nokkrir slökkviliðsmenn reyni nú að ráða niðurlögum eldsins á þaki þess. Vísir/Ívar Veistu meira um málið? Áttu myndir frá brunanum eða störfum slökkviliðs? Við tökum við ábendingum hér. Fréttin hefur verið uppfærð. Reykjavík Slökkvilið Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira
Unnið var að þakinu þegar eldurinn kviknaði en iðnaðarmenn hafi unnið að því að bræða pappa á þakinu. Eldurinn hafi komist í timbur þaksins og farið upp eftir öllu bárujárni þess að sögn Lárusar Petersen varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Lárus segir eldinn erfiðan og mannfrekan. Rífa þurfi bárujárnið af þakinu til þess að tryggja að engin glóð verði eftir undir þakplötunni. Slökkvilið gerir ráð fyrir viðveru sinni í minnst hálftíma í viðbót til þess. Engin slys hafi orðið á fólki og allir íbúar efstu hæðar hússins verið komnir út þegar slökkvilið bar að garði. Töluvert vatnstjón hafi orðið á einni íbúð hússins vegna slökkvistarfsins. Aðalatriði hafi verið að rífa mæni þaksins þannig að hægt væri að sprauta vatni hvoru megin við mæninn þar sem eldur kom upp. Lögregla hafi notað dróna til þess að nema hvar mesti hiti hafi verið og aðstoðað við slökkvistarf. Vísir/Ívar Að sögn sjónarvotts eru fimm slökkviliðsbílar á staðnum auk kranabíls. Einnig séu tveir sjúkrabílar á vettvangi. Eldurinn hafi kviknað í fjögurra hæða fjölbýlishúsi en nokkrir slökkviliðsmenn reyni nú að ráða niðurlögum eldsins á þaki þess. Vísir/Ívar Veistu meira um málið? Áttu myndir frá brunanum eða störfum slökkviliðs? Við tökum við ábendingum hér. Fréttin hefur verið uppfærð.
Veistu meira um málið? Áttu myndir frá brunanum eða störfum slökkviliðs? Við tökum við ábendingum hér.
Reykjavík Slökkvilið Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira