Körfubolti

Bara risaleikir milli jóla og ný­árs

Stefán Árni Pálsson skrifar
Stólarnir taka á móti Grindvíkingum fyrir norðan milli jóla og nýárs. 
Stólarnir taka á móti Grindvíkingum fyrir norðan milli jóla og nýárs.  Anton Brink/Vísir

Ellefta umferðin í Bónus-deild karla á næsta tímabili verður leikinn á milli jóla og nýárs. KKÍ og Sýn Sport hafa raðað umferðinni sérstaklega upp. Erkifjendur munu þar mætast.

Hér að neðan má sjá umferðina en nákvæm tímasetning á leikjunum liggur ekki fyrir. Leikdagarnir verða 28., 29. og 30. desember. Allir leikirnir verða í beinni útsendingu á sportrásum Sýnar Sport.

Svona lítur umferðin út:

11.umferð

ÍR-Ármann - Reykjavíkurslagur

Keflavík – Njarðvík – Grannaslagur af dýrari gerðinni.

Tindastóll – Grindavík– Liðin sem mættust í úrslitum í vor.

KR – Valur – Reykjavíkurslagur

Álftanes – Stjarnan– Garðabæjarslagur

Höttur – Sindri– Austurlandsslagur




Fleiri fréttir

Sjá meira


×