Breskt herskip siglir um Hvalfjörð Áróra L Davíðsdóttir skrifar 9. júlí 2026 11:50 HMS Prince of Wales fer fyrir breskri flotadeild sem að undanförnu hafi tekið þátt í æfingum Atlantshafsbandalagsins á Norður-Atlantshafi. Aðsend Breska flugmóðurskipið HMS Prince of Wales er nú statt í Hvalfirði en bresk flotadeild hefur tekið þátt í æfingum NATO á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum. Æfingar tengdar loftrýmiseftirliti og loftvörnum fara fram við Ísland.
HMS Prince of Wales er annað af tveimur flugmóðurskipum Breta. Þetta er í fyrsta skipti sem slíkt skip búið F-35 orrustuþotum sinnir loftrýmisgæslu fyrir Atlantshafsbandalagið. HMS Prince of Wales fari fyrir breskri flotadeild (e. Carrier Strike Group) sem að undanförnu hafi tekið þátt í æfingum Atlantshafsbandalagsins á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum og sé heimsóknin til Íslands liður í því verkefni, segir í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fundaði með varnarmálaráðherra Bretlands, Dan Jarvis, um borð í skipinu en þau hafi rætt um samstarf ríkjanna innan sameiginlegu viðbragðssveitarinnar (JEF) og vaxandi tvíhliða varnarsamstarf Íslands og Bretlands svo eitthvað sé nefnt. Ísland veiti aðgerð Prince of Wales gistiríkjastuðning, sem felst meðal annars í því að bjóða liðsafla bandalagsríkja NATO aðstöðu, fæði og gistingu. Breska varnarmálaráðuneytið „Innan Atlantshafsbandalagsins er nú lögð aukin áhersla á aukna viðveru á norðurslóðum, einkum með árvekniaðgerðinni Arctic Sentry, sem samstarf ríkjanna er jafnframt framlag til. Aðgerðin miðar að því að efla fælingarmátt Atlantshafsbandalagsins, stuðla að auknu öryggi og bregðast við auknum umsvifum Rússa á svæðinu,“ segir í tilkynningunni. Breskar orrustuþotur fylgdu eftir rússneskri herflugvél eftir að henni var flogið hættulega nálægt skipinu Prince of Wales í Noregshafi í síðustu viku. Tvær breskar orrustuþotur af gerðinni F-35 fylgdu rússnesku vélinni burt.
Bretland Hvalfjarðarsveit Hernaður Hafið Kjósarhreppur Öryggis- og varnarmál Mest lesið Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent „Þá bara krassa lungun“ Innlent Bruni við Breiðhöfða Innlent Dekk sprakk við lendingu vélar Innlent Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Innlent Fleiri fréttir Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Sjá meira