Viðskipti innlent

Plantan kveður Nor­ræna húsið: „Dæmið er ekki al­veg að ganga upp“

Atli Ísleifsson skrifar
Eigendur Plöntunnar tilkynntu um lokunina á samfélagsmiðlum í dag.
Eigendur Plöntunnar tilkynntu um lokunina á samfélagsmiðlum í dag. Norræna húsið

Eigendur Plöntunnar hafa ákveðið að loka kaffihúsi sínu í Norræna húsinu í lok mánaðarins. Frá þessu greina þau á Instagram í dag, en þau munu áfram starfrækja kaffihús Plöntunnar á Njálsgötu.

Eigendur Plöntunnar eru þau Hrafnhildur Gunnarsdóttir, Bernódus Óli Einarsson og Júlía Sif Liljudóttir.

Í færslunni segjast þau mjög stolt af þeirri uppbyggingu sem hafi átt sér stað. Dæmið sé bara ekki alveg að ganga upp. „Þetta hefur gengið vel á eiginlega allan mælikvarða, nema fjárhagslega. Fólk, gestir hafa verið mjög ánægðir og við höfum fundið fyrir miklu þakklæti. Viðbrögðin hafa alltaf verið falleg en erfitt rekstrarumhverfi gerir það að verkum að þessi eining er ekki að ganga upp í Norræna húsinu.“

Þau segjast mjög þakklát starfsfólkinu sem hafi hlaupið með sér til að reyna að láta hlutina ganga.

Þau segja hins vegar að Plantan sé ekkert á förum þar sem þau muni halda starfseminni áfram að Njálsgötu 64. „Við hlökkum til að vaxa þar.“

Leita að nýjum rekstraraðila

Á Facebook-síðu Norræna hússins segir að eftir frábært samstarf kveðji Plantan Bistró Norræna húsið en muni halda áfram að taka á móti sínum góðu gestum á Njálsgötu.

„Við erum innilega þakklát fyrir þeirra nærveru, hlýju og fagmennsku hér í húsinu og óskum þeim góðs gengis. Lokadagur Plöntunnar hér í Norræna húsinu er 31. júlí og við hvetjum gesti til að nýta tímann vel og njóta.

Nýr kafli hefst og Norræna húsið leitar nú að metnaðarfullum og traustum samstarfsaðila til að reka veitingastarfsemi í húsinu og sjá um veitingar í viðburðum. Norræna húsið er lifandi menningarvettvangur sem leggur mikla áherslu á sjálfbærni og inngildingu og er þetta kjörið tækifæri fyrir þá sem hafa áhuga á að skapa hlýlegt, skapandi og spennandi rými fyrir gesti í samvinnu við starfsfólk Norræna hússins,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×